Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Side 36
34
SVEITARSTJÓRNARMÁL
hvorugir á lífi, en lifandi lögerfingjar sam-
kvæmt því, sem að frarnan segir, erfir mak-
inn helming eignanna, en allar eignirnar, ef
enginn framantaldra erfingja er á lífi.
Nú andast það hjóna, sem lengur lifir, án
þess að hafa gifzt aftur, en á ekki lifandi
niðja eða kjörniðja og hefur ekki ráðstafað
eignum sínum, og skulu þá eftirlátnar eigur
þess skiptast rnilli lögmæltra erfingja þeirra
beggja að jöfnu, þó þannig, að arfur sá, er
áður kann að hafa verið greiddur eftir hinn
fyrr látna maka, verður við arfskiptin talinn
arftaka fyrirfram greiddur arfur, og lækkar
arfshlutinn um þá upphæð.
Barn arfleifanda, getið en ófætt þegar
hann andast, en fæðist síðar lifandi, eignast
erfðarétt í dánarbúinu við fæðinguna, eins
og það hefði verið fætt fyrir andlát hans.
Fresta skal skiptingu þess arfshluta, þar til
séð er, hvort það fæðist lifandi.
Erfðaréttur hjóna á milli fellur niður við
skilnað að borði og sæng og við algeran
hjónaskilnað.
Þá eru og ákvæði um fyrirfram greiddan
arf, um arf kjörbarna og kjörforeldra og um
erfðaskrár.
En hver sá, sem orðinn er fullra 18 ára,
getur ráðstafað eignurn sínurn með erfðaskrá,
enda sé hann svo andlega heill, að hann sé
fær um að gera þá ráðstöfun á skynsamleg-
an hátt.
Nú á arfleifandi niðja á lífi og er honum
þá ekki heimilt að ráðstafa með erfðaskrá
meiru en einum fjórða hluta eigna sinna.
Ef enginn niðja er á lífi, en maki lifandi,
er honum heimilt að ráðstafa helming eigna
sinna.
Erfðaskrá skal vera skrifleg og arfleifandi
sjálfur undiirita hana eða viðurkenna efni
hennar fyrir notario publico (sýslumanni,
bæjarfógeta, borgarfógeta) eða tveimur vott-
um.
Verði maður snögglega og hættulega veik-
ur eða lendi í bráðri liættu og vilji gera erfða-
skrá, má víkja frá þeirri reglu, að erfðaskráin
sé skrifleg. Má arfleiðslan þá fara fram
munnlega fyrir tveimur tilkvöddum vottum.
Þeir skulu skrásetja efni erfðaskrárinnar und-
ir eins og þeir geta því viðkomið og stað-
festa hana með undirskrift sinni.
Slík erfðaskrá verður ógild, ef arfleifandi
hefur ekki endurnýjað hana áður en mán-
uður er liðinn frá því, að umgetnar tálm-
anir voru liðnar hjá.
Ef réttur erfingi að lögum eða samkvæmt
arfleiðsluskrá vitjar ekki arfs áður en 5 ár
eru liðin frá því, að kunnugt var um andlát
arfleifanda, þá hlýtur ríkissjóður allan arf-
inn. Sama tfmatakmark gildir, ef rnaður á
engan erfingja.
Áður urðu að líða 15 ár.
Fyrir Alþingi var lagt frumvarp til laga
i'arðandi húsaleigu. Þetta er mikill bálkur og
ýtarlegur, og er með honum gerð fyrsta til-
raun hér á landi til að móta heildarlöggjöf
um húsaleigu.
Frumvarpið er samið af félagsmálaráðu-
neytinu og verður gerð grein fyrir efni þess
í næsta hefti.
Hinn 30. marz s. 1. samþykkti Alþingi
ályktun um þátttöku íslands í Norður-
Atlantshafssamningi, og var þar með ákvörð-
uð ný stefna um utanríkismál íslendinga.
Alþingi skal næst koma saman til funda
eigi síðar en 11. október 1949.
Myndin framan á kápunni
er af Keflavík, tekin úr lofti nú í vor af
Ólafi K. Magnússyni.