Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Qupperneq 43
TILKYNNING
(rá almannatry^in^unum.
um endurnýjun umsókna um lífeyri.
Yfirstandandi bótatímabil almannatrygginganna er útrunnið hinn 30. júní
næstkomandi. Næsta bótatímabil hefst 1. júlí 1949 og stendur yfir til 30. júní
1950. Samkvæmt almannatryggingalögunum skal endumýja fyrir hvert einstakt
bótatímabil allar umsóknir um eftirtaldar tegundir bóta:
jEllilífeyri, örorkulíieyri,
harnalífeyri, ijölsliylduhætur,
elútnalíieyri, makabœtur,
örorhustyrlti.
Ber því öllurn þeim, sem njóta framangreindra bóta og óska að njóta þeirra
næsta bótatímabil, að sækja á ný urn bætur þessar.
Umboðsmenn Tryggingastofnunarinnar munu veita umsóknum viðtöku frá
6. maí til 6. júní n. k. Ber því umsækjendum að hafa skilað umsóknum sínum
til umboðsmanna eða póstlagt þær eigi síðar en 6. júní n.k. Eyðublöð fást hjá
umboðsmönnum.
Sérstaklega er áríðandi, að öryrkjar, sem misst hafa 50%—75% starfsork-
unnar og sækja um örorkustyrk, skili umsóknum á tilsettum tíma, ella má gera
ráð fyrir, að ekki verði unnt að taka umsóknimar til greina, þar sem upphæð sú,
sem nota má í þessu skyni, er fastákveðin.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja umsóknum, hafi
þau eigi verið lögð fram áður. Þeir umsækjendur, sem gjaldskyldir eru til trygg-
ingasjóðs, skulu sanna, með tryggingaskírteini sínu eða á annan hátt, að þeir hafi
greitt iðgjöld sín skilvíslega. Vanskil varða skerðingu eða missi bótaréttar.
Umsóknir um aðrar tegundir bóta en þær, sem hér að frarnan eru nefndar,
svo sem fæðingarstyrki, sjúkradagpeninga og ekknabætur, svo og nýjar umsóknir
um lífeyri, verða afgreiddar af umboðsmönnum á venjulegan hátt, enda hafi um-
sækjandi skilvíslega greitt iðgjöld sín til tryggingasjóðs.
Reykjavík, 3. maí 1949.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.