Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Page 10
Eldri hluti Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Þórður nefnir heilsugæsluna, öldrunarþjónustuna
og minni sjúkrahúsin, sem í raun séu víða fyrst og fremst hjúkrunarheimili, sem dæmi um verkefni er
sveitarfélög geti tekið að sér.
sveitarfélaga á svæðinu geti hugsanlega
komið í veg fyrir að þar verði til öflugt
sveitarfélag, sem nái yfir heildstætt at-
vinnu- og þjónustusvæði, þrátt fyrir meiri-
hlutavilja íbúanna."
- Hvers vegna hefur fulltrúaráð sam-
bandsins ekki lagt til að lágmarksíbúatala
í hverju sveitarfélagi verði hækkuð, til
dæmis í 1.000 íbúa, eins og tillögur hafa
komið fram um?
„Við teljum að það sé afar mikilvægt
að sveitarstjórnarmenn, í samvinnu við
ríkisvaldið, hafi frumkvæði að því að móta
sveitarfélagaskipanina í landinu með hlið-
sjón af því að þau myndi heildstæð at-
vinnu- og þjónustusvæði. Hækkun á lág-
marksíbúatölu ein sér leiðir ekki til þess
að það markmið náist."
Samhljóða byggðaáætlun
Alþingis
- Hvað um framgang þessa máls?
„Hann ræðst af viðbrögðum nýrrar rík-
isstjórnar og sérstaklega þó viðbrögðum
nýs félagsmálaráðherra en þó ekki síður af
skoðunum sveitarstjórnarmanna og íbúa
sveitarfélaganna. Ég vísa til þess að álykt-
un fulltrúaráðsins er í öllum meginatriðum
samhljóða stefnumörkun Alþingis í þessu
máli sem glögglega kemur fram í sam-
þykktri þingsályktun um stefnu í byggða-
málum 2002 til 2006. Sveitarstjórnarmenn
og íbúar sveitarfélaganna gera sér í vax-
andi mæli grein fyrir því að stækkun og
efling sveitarstjórnarstigsins býður upp á
ýmis tækifæri til að styrkja byggðirnar,
efla stjórnsýslu og bæta þjónustu í heima-
byggð. Ég tel því að víðtækur og góður
stuðningur sé við framgang þessa máls."
Landfræðilegar og félagslegar
aðstæður
- Nú kynntir þú á fulltrúaráðsfundinum
hugmynd um nýja skiptingu landsins í
sveitarfélög, hvað vilt þú segja um hana?
„Ég vil taka það skýrt fram að þessi
hugmynd er frá mér einum komin og þar
eiga engir aðrir hlut að máli. Fyrst og
fremst horfði ég til landfræðilegra að-
stæðna en tók í ýmsum tilvikum einnig til-
lit til félagslegra þátta. Ég komst að þeirri
niðurstöðu að skynsamlegt gæti verið að
skipta landinu niður í um 35 sveitarfélög.
Vegna landfræðilegra aðstæðna og strjál-
býlis væru þó enn þrjú sveitarfélög með
rétt innan við 1.000 íbúa. Með þessari
hugmynd að sveitarfélagaskipan mynduðu
sveitarfélögin heildstæðar einingar eins og
ályktað hefur verið um á vettvangi sam-
bandsins, þau gætu tekið við fleiri verk-
efnum, eflt þjónustu sína og sinnt stjórn-
sýsluhlutverki sínu mun betur en þau gera
nú," segir Þórður Skúlason.
Sameining samþykkt í
Búðahreppi og Stöðvarhreppi
Nýtt sveitarfélag með yfir 800
íbúa verður til á Austurlandi á
komandi vikum með sameiningu
Búðahrepps og Stöðvarhrepps.
Miðað við mannfjöldatölur þann 1. des-
ember síðastliðinn verða íbúarnir tæp-
lega 845 en bráðabirgðatölur Hagstof-
unnar frá 1. desember segja íbúa Búða-
hrepps hafa verið 569 og íbúa Stöðvar-
hrepps 276. Sveitarfélögin liggja ekki
saman því Fáskrúðsfjarðarhreppur, með
57 íbúa samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar 1. desember síðastliðinn,
umlykur þorpið í Fáskrúðsfirði, það er
Búðahrepp.
Sameining Búðahrepps og Stöðvar-
hrepps var samþykkt í almennri kosningu
íbúanna sem fram fór samhliða kosning-
um til Alþingis laugardaginn 10. maí.
Alls tóku 492 þátt í kosningunni í sveitar-
félögunum báðum og þar af tóku 472 af-
stöðu með eða á móti. Samþykkir sam-
einingu voru 306 eða ríflega 64,8 af
hundraði þeirra sem tóku afstöðu, en
andvígir voru 166 eða 35,2 af hundraði
þeirra sem afstöðu tóku. Alls voru 20
seðlar auðir eða ógildir í kosningunum.
Meiri stuðningur í Stöðvarfirði
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem
greiddu atkvæði í Stöðvarhreppi sam-
þykkti sameininguna. Samþykkir voru
127, andvígir voru 19 og samtals fimm
seðlar voru auðir eða ógildir. Af þeim
kjósendum í Stöðvarhreppi sem tóku af-
stöðu voru því 87% samþykkir samein-
ingunni. Sameiningin var einnig sam-
þykkt í Búðahreppi en ekki með jafn af-
gerandi hætti. Þar sögðu 179 já, 147
sögðu nei og fimmtán seðlar voru auðir
og ógildir. Af þeim sem tóku afstöðu með
og á móti í Búðahreppi voru því 55 af
hundraði samþykkir sameiningu.
10 ------