Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Síða 12

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Síða 12
Tekjustofnar sveitarfélaga Endurskoðun Ijúki um mitt næsta ár Fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga vill að vinna við endurskoðun tekjustofna sveitar- félaga hefjist um mitt þetta ár og Ijúki eigi síðar en um mitt næsta ár þannig að unnt verði að ráðast í nauðsynlegar lagabreytingar sem fyrst. Mikil búseturöskun síðustu ára hefur haft veruleg fjárhagsleg áhrif fyrir sveitarfélög- in. Þessara áhrifa gætir bæði hjá sveitarfé- lögum þar sem fbúum hefur fækkað veru- lega og einnig þeim er orðið hafa að ráð- ast í umfangsmiklar stofnframkvæmdir til að mæta mikilli og ófyrirséðri íbúafjölgun. Ýmsar laga- og reglugerðabreytingar á undanförnum árum hafa leitt til aukinna útgjalda sveitarfélaga án þess að nægjan- legir tekjustofnar hafi fylgt. Breytingar á skattkerfi þjóðarinnar hafa skert útsvars- tekjur sveitarfélaga og mörg sveitarfélög hafa séð sig knúin til þess að mæta kröf- Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi og Þórólfur Árnason, borgar■ stjóri í Reykjavík, hlýða á umræður á fundi fulltrúaráðs Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. bandið upp viðræður við ríkisstjórnina um að vinna verði hafin við heildarendur- skoðun á tekjustofnum sveitarfélaganna og á verkaskiptingu þeirra og ríkisins. Einnig segir í ályktuninni að mikilvægt sé að gera heildarúttekt á fjárhagslegu um- hverfi sveitarfélaganna og tryggja þeim nauðsynlega tekjustofna og fjárhagslegt svigrúm til þess að sinna skyldum sínum. Þröng fjárhagsleg staða í greinargerðinni segir að sveitarfélögin hafi flest búið við þrönga fjárhagslega stöðu um árabil. Rekstur þeirra hafi almennt verið erfiður. Skuldir sveitar- sjóða hafi vaxið ár frá ári og svigrúm til fram- kvæmda minnkað að sama skapi. Stöðugt meiri kröfur séu á hinn bóginn gerðar til sveitar- félaganna um fjölþætta og skilvirka þjónustu. Þá kemur fram að þessi þró- un eigi meðal annars rætur að rekja til auk- inna verkefna sem sveit- arfélögunum hafa verið lögð á herðar með ýms- um lögum og reglugerð- um íbúa um aukna þjónustu þrátt fyrir að fjárhagslega getu hafi skort. Heildarúttekt á fjár- hagslegu umhverfi Þessar ástæður fyrir versnandi afkomu sveitarfélaganna eru raktar í grein- argerð með ályktun fulltrúaráðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um heildarendur- skoðun tekjustofna sveitarfélaganna á fundi þess í apríl síðastliðnum. í ályktun- inni leggur fulltrúaráðið til að sem fyrst eftir myndun nýrrar ríkisstjórnar taki sam- Nefndin hefur lagt til að öll lög og reglugerðir sem snerta sveitarfélögin verulega verði að fara í gegnum kostnaðarmat er fari fram samhliða vinnslu frumvarpa og reglugerða. um og einnig sameiningu þeirra, sem haft hefur í för með sér aukna þjónustu við íbúana. Kostnaðarmat nauðsynlegt í skýrslu sem Evrópuráðið gaf út árið 1997 og fjallar um fjáröflun sveitarfélaga í Cunnlaugur júlíusson, sviðsstjóri hag- og upplýs- ingasviðs, flutti erindi um tekjustofnamálið á full- trúaráðsfundinum. Evrópu segir meðal annars að sveitarfélög- in skuli eiga rétt á fullnægjandi tekjum til frjálsrar ráðstöfunar í samræmi við hlut- verk sitt og skuli afla að minnsta kosti hluta þeirra með staðbundnum sköttum samkvæmt lögum. Þar segir einnig að tekjustofnar sveitarfélaga skuli vera fjöl- breytilegir og sveigjanlegir og fylgja raunverulegri þróun kostnaðar af þeim verkefnum sem þeim er gert að sinna. Hér á landi var á árinu 2001 sett á stofn nefnd um kostnaðarmat á --------- lögum og reglugerðum er varða sveitarfélögin. Nefndin hefur Iagt til að öll lög og reglugerðir sem snerta sveitarfélögin verulega verði að fara í gegnum kostnaðarmat er fari fram sam- hliða vinnslu frumvarpa og reglugerða. Vandað kostnaðarmat sé eitt skrefið til þess að efla samskipti ríkis og sveitarfé- laga. 12

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.