Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Page 17

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Page 17
Frá Námaskarði. „Ég hef oft verið spurður að þvf afhverju ekki séu fleiri snyrtingar fyrir almenning í Mývatnssveit. Af hverju séu engin klósett við Dimmuborgir eða klósett við hverina í Námaskarði. Það er Iftið mál að byggja þau en það er talsvert mál fyrir fámennt byggðarlag að reka klósett fyrir fleiri þúsundir ferða- manna," segir sveitarstjórinn. að svo gríðarlegt landsvæði heyri undir Skútustaðahrepp." Dimmuborgir í sand „Dimmuborgir hafa um langt skeið verið í verulegri hættu vegna uppblásturs suður á öræfum. Landgræðslan hefur komið ágæt- lega að málum til verndar þessari nátt- úruperlu ásamt með fleirum og þá ekki síst sparisjóðunum í landinu. Nú er stuðn- ingi sparisjóðanna illu heilli hætt. Ef við stöndum ekki á móti gróðureyðingunni og ástundum landgræðslu þá flæðir sandur- inn hægt og bítandi yfir þessa nátt- úruperlu. Á stundum taiar fólk fjálglega um að ekki megi hrófla við náttúrunni, náttúran eigi að hafa eðlilegan framgang og skuli látin óáreitt. Ég er hræddur um að eitthvað heyrðist í þeim sömu hyrfu Dimmuuborgir undir sand og fjöl- breyttasta andavarpi Evrópu yrði rústað af að því minkar, refir og vargfuglar væru látnir óáreittir. Sannleikurinn er sá að nátt- úran verður ekki varðveitt án inngrips okkar mannanna, en varúð ber að við- hafa." Klósett hér og klósett þar „Ég hef oft verið spurður að þvf af hverju ekki séu fleiri snyrtingar fyrir almenning í Mývatnssveit. Af hverju séu engin klósett við Dimmuborgir eða klósett við hverina í Námaskarði. Það er lítið mál að byggja þau en það er talsvert mál fyrir fámennt byggðarlag að reka klósett fyrir fleiri þúsundir ferðamanna. Það þarf að ráða starfsfólk til þess að tæma klósettin, hreinsa þau og þrífa og sjá til þess að nauðsynlegustu hreinlætisáhöld séu til staðar. Slíkt er okkur hreinlega ofviða. Ég segi fyrst og fremst frá þessu sem litlu dæmi um hvað fólki finnst sjálfsagt að gert sé en gerir sér ekki grein fyrir þeim kostn- aði sem liggur að baki því að veita þjón- ustu sem má auðvitað segja að sé bæði sjálfsögð og nauðsynleg. Gjaldtaka fyrir slíka þjónustu er að mínu viti ógerleg þar sem hætt er við að kostnaður við inn- heimtuna yrði meiri en tekjurnar. Afleit lög í kjölfar deilu um virkjun í Laxá á sjöunda áratug síðustu aldar samþykkti Alþingi sér- stök lög um verndun Laxár og Mývatns. Þessi lög kveða meðal annars á um vald Náttúruverndarráðs (nú Umhverfisstofnun- ar) varðandi framkvæmdir og skipulag á Mývatnssvæðinu og hafa verið mörgum Mývetningum þyrnir í augum. „Þegar ég hóf störf sem sveitarstjóri hér í ársbyrjun 1997 fór ég fljótt að ræða við Leif Hall- grfmsson ÍVogum, þáverandi oddvita sveitarstjórnar, um nauðsyn þess að breyta lögunum um verndum Laxár og Mývatns, vegna þeirra stjórnsýslulegu erfiðleika sem lögin hafa í för með sér. Nánast alls staðar komum við að lokuðum dyrum. Fáir treystu sér til að leggja málinu lið. Smám saman opnuðust þó augu margra og fleiri og fleiri tóku undir skoðanir okkar. Barátta okkar endaði með því að fyrir hálfu öðru ári var skipuð nefnd til þess að endur- skoða lögin. Þessi nefnd náði sameigin- legri niðurstöðu, sem er mjög merkilegt út af fyrir sig vegna þess að í henni áttu sæti menn með mismunandi sjónarmið svo ekki sé meira sagt. Menn eins og ég ann- ars vegar og Gísli Már Gíslason, prófessor og formaður Náttúrurannsóknarstöðvar- innar við Mývatn (RAMÝ), hins vegar. Á ýmsu gekk í nefndinni og tekist var á um eitt og annað. Ég viðurkenni fúslega að frumvarpið hefði litið öðruvísi út ef ég hefði skrifað það upp á mitt eindæmi og það hefði líka verið með enn öðrum hætti hefði Gísli Már Gíslason skrifað það einn með sjálf- um sér. Ef þetta frumvarp nær fram að ganga eins og það lítur út eftir að nefndin komst að sameiginlegri niðurstöðu þá fel- ur það í sér gríðarlega hagsbót fyrir Mý- vetninga. En því miður dró umhverfisráð- herra að leggja frumvarpið fram þar til á síðustu dögum þingsins þannig að ekki vannst tími til þess að afgreiða það. Ég vona hins vegar innilega að ný- kjörnu þingi auðnist að Ijúka þess réttlætismáli." í varhugaverðan farveg Sigbjörn kveðst hafa séð margt í öðru Ijósi eftir að hann flutti í fámennt byggðarlag og fór að starfa að sveitar- stjórnarmálunum og er hann þó enginn nýgræðingur á sviði þjóðmála; fyrrverandi alþingismaður og formaður fjárlaganefnd- „Við erum að leggja fram um eina milljón króna á ári til landgræðslu - þessir 450 íbúar. Ég veit ekki hvaða upphæðum Akureyringar eða Reykvíkingar verja til landsgræðslu ásamt Landgræðslu ríkisins."

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.