Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Page 18
ar þingsins. Hann segist einnig hafa um-
talsverðar áhyggjur af vaxandi átökum á
milli dreifbýlis og þéttbýlis. „Mér finnst
umræðan komin í varhugaverðan farveg
þegar fólk í dreifbýlinu er farið að tala um
íbúa þéttbýlissvæðanna sem óvini sína.
Að þéttbýlisbúar séu farnir að stilla
byggðamálunum upp með þeim hætti að
alltof miklir peningar fari út á land. Marg-
ar framkvæmdir úti á landi eru harðiega
gagnrýndar, sumar með réttu og aðrar
röngu eins og gengur. Ég nefni sem dæmi
nauðsynlegar vegaframkvæmdir. Við get-
um aldrei litið svo á að eingöngu sé verið
að byggja samgöngumannvirki fyrir þá
sem búa á viðkomandi stöðum. Það er
allra hagur að samgöngurnar séu í góðu
lagi. Sem dæmi má nefna veginn yfir Mý-
vatnsheiði. Er verið að endurbyggja hann
fyrir Mývetninga? Aldeilis ekki. Sú fram-
kvæmd kemur öllum landsmönnum til
góða með sama hætti og tvöföldun
Reykjanesbrautar, sumum hins vegar oftar
en öðrum eins og gengur. Mér þætti dap-
urlegt ef ég heyrði foreldra sem eiga eitt
barn krefjast þess að gjalda minna til sam-
neyslunnar heldur en foreldra þriggja
barna með þeim rökum að stærstur hluti
útgjaldanna fari til skólamála og þar sé
hlutur þeirra rýrari. Ég held að fólk hugsi
málin ekki alltaf til enda þegar byggða-
málin eru annars vegar."
Verðmæti fólgin í fjölbreytninni
Sigbjörn segir verðmæti fólgin í fjölbreytni
atvinnulífsins í Mývatnssveit. „Hér er rek-
inn landbúnaður, öflug orkuframleiðsla,
stórt iðnaðarfyrirtæki og gríðarleg ferða-
þjónusta - einkum að sumarlagi. Vegna
þessa er að finna óvenju mikla breidd í
menntun fólks. Þá eru mikil menningar-
verðmæti fólgin í hinum hefðbundna
landbúnaði, sem er stundaður hér og
einnig í silungsveiðinni í Mývatni. Að
mínu mati yrði mikill sjónarsviptir af ef
landbúnaðurinn hyrfi úr Mývatnssveit.
Þessir atvinnuhættir auðga samfélagið. Ég
er hins vegar þeirrar skoðunar að ef Kísil-
iðjan hefði verið slegin af og starfsemi
hennar hætt eins og hætta var á fyrir
nokkrum árum þá væri hér í mesta lagi
samfélag um 150 manna í dag. Landbún-
aður í Mývatnssveit byggist ekki á sérstök-
um landgæðum heldur því að bændur
geta aflað tekna meðfram búskapnum í
öðrum atvinnugreinum. Mannlífið byggist
á fjölbreytninni í atvinnuháttum og með
því móti einu geta íbúarnir notið þeirra
lífsskilyrða og þjónustu sem þeim ber og
einnig að annast um hið víðfeðma og fjöl-
skrúðuga byggðarlag, sem náttúran hefur
látið þeim eftir."
Sérhönnuð upplýsinga-
og vinnslukerfi fyrir sveitarfélög
Maritech ehf. hefur á undanförnum árum unn-
ið að þróun margvíslegra hugbúnaðarlausna
fyrir sveitarfélög hér á landi. Fyrirtækið leggur
áherslu á sérþarfir þeirra enda er þjónusta- og
þróun hugbúnaðar fyrir sveitafélög eitt af kjör-
sviðum fyrirtækisins.
Hugbúnaðurinn er byggður á Microsoft
Business Solution - Navision bókhalds- og við-
skiptakerfinu og fellur því beint að Windows
vinnuumhverfinu sem flestir, sem einhvern tím-
ann hafa komið nálægt tölvum, þekkja. Brynjar
Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Maritech,
segir mikla áherslu lagða á að sinna sérstökum
þörfum sveitarfélaganna. Þarfir þeirra séu í
mörgum tilvikum aðrar og ólíkar þörfum hefð-
bundinna fyrirtækja. Starfssvið sveitarfélaganna
snerti mjög marga og ólíka þætti sem ekki teljist til hefðbund-
inna verkefna almennra fyrirtækja.
Fjármálastjórar og dagmömmur
Á meðal þeirra kerfa sem Maritech hefur unnið fyrir sveitarfélög
eru íbúaskrár, kerfi fyrir áhaldahús, fasteignastjóra, félagsmála-
stjóra, dagmömmur, hafnir, íþróttahús, leikskóla, grunnskóla og
tónlistarskóla að ógleymdum fjármála- og bókhaldskerfum.
Brynjar bendir á að bókhald sveitarfélaga og uppgjör sé unnið
með nokkuð öðrum hætti en almennra fyrirtækja og byggist á
ákveðnum reglum þar að lútandi.
Á meðal annarra lausna sem Maritech hefur unnið að og
nýtast sveitarfélögum má nefna sérstök eigna-
kerfi, innheimtukerfi, skuldabréfakerfi, kerfi er
varða samskipti við banka og sjálfvirkar banka-
afstemmingar, greiðsluáætlanakerfi og skönnun
reikninga að ógleymdum launakerfum, svo
eitthvað sé nefnt.
Styrkur í alþjóðlegu umhverfi
Brynjar segir að styrkur þessara kerfa felist
einkum í því að fyrirtækið byggir lausnir sína á
alþjóðlegum viðskiptahugbúnaði frá Microsoft
sem tryggi samhæfni og þróun kerfanna til
framtíðar. Auk MBS-Navision kerfanna á
Maritech og veitir þjónustu við AS400 kerfi
sem eru í notkun hjá sumum sveitarfélögum
hér á landi en Brynjar kveðst hafa orðið var
við aukinn áhuga á að skipta þeim hugbúnaði út fyrir lausnir
byggðar á MBS-Navision. Nýlega voru undirritaðir samningar
við Reykjanesbæ um kaup og innleiðingu á nýju upplýsinga-
kerfi en bærinn var áður með AS400 kerfi. Fyrirtækið, sem upp-
haflega var hluti Tölvumynda, var gert að sjálfstæðu fyrirtæki á
árinu 2000. Nafnið Maritech á sér langa sögu og er fyrirtækið
nú hluti af Maritech Group, sem rekur, auk starfseminnar hér á
landi, níu skrifstofur í Noregi og einnig skrifstofu í Kanada. Hér
á landi starfa um 55 manns á vegum Maritech í Kópavogi og á
Akureyri en alls starfa um 170 manns hjá Maritech Group og
vinnur fyrirtækið fyrir um 800 viðskiptavini í um 20 löndum.
Brynjar Stefánsson, sölu- og
markaðstjóri Maritech.
18