Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Blaðsíða 20
Upplýsti klettaveggurinn á Keflavíkurbergi, um-
hverfislistaverk Steinþórs lónssonar, sem fyrst var
upplýst 2. september 2000, á fyrstu Ljósanótt.
Klettaveggurinn er um 500 metra langur og tíu
metra hár.
Get ilia horft á ónotuð tækifæri"
Steinþór Jónsson, athafnamaður og ferðamálafrömuður í Keflavík, tók sæti í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar að loknum síðustu bæjarstjórnarkosningum en áður hafði hann verið vara-
bæjarfulltrúi í eitt kjörtímabil.
Steinþór hefur rekið Ofnasmiðju Suður-
nesja ásamt föður sínum, Jóni William
Magnússyni, um langt skeið. Árið 1986
réðst hann ásamt fjölskyIdu sinni í bygg-
ingu Hótels Keflavíkur sem hann hefur
rekið síðan. Steinþór kveðst hafa hafið
störf hjá Ofnasmiðjunni um 12 ára aldur
en hann var aðeins 19 ára þegar faðir
hans fól honum daglegan rekstur fyrirtæk-
isins. í byrjun árs 1986 raáddu þeir mögu-
leika á rekstri gistiaðstöðu í heimabæ
þeirra, en þá var engin slík þjónusta fyrir
hendi á Suðurnesjum. „Hvorugur okkar
hafði nokkru sinni komið nálægt hótel-
rekstri og tæpast gist á hótel-
um. Mér leist þó strax vel á
hugmyndina og eftir stuttan
fjölskyldufund í janúar 1986
ákváðum við að ráðast í bygg-
ingu hótelsins sem opnaði síð-
an með 27 herbergjum 17. maí
sama ár," segir Steinþór. í dag
er Hótel Keflavík stærsta hótelið í Reykja-
nesbæ, glæsilegt fjögurra stjörnu hótel
með um 70 herbergjum og gengur rekst-
urinn að sögn Steinþórs mjög vel.
Ekki heim í nokkra mánuði
Þótt engin gistiþjónusta hafi verið fyrir
hendi á Suðurnesjum þegar Hótel Keflavík
hóf starfsemi fengu þeir feðgar fljótt sam-
keppni og var þeim ráðið frá meiri upp-
byggingu. „Við litum aftur á móti á sam-
keppnina sem ástæðu til að gera enn bet-
ur og héldum því ótrauðir áfram," segir
Steinþór. „Ég var allt í öllu fyrstu árin eins
og algengt er hjá fjölskyldufyrirtækjum. Sá
um daglegan rekstur, bókhald, stóð nætur-
vaktir og þreif herbergin. Ég fór ekki heim
f bókstaflegri merkingu í nokkra mánuði
en leit á það sem sjálfsagðan hlut á með-
an við vorum að koma fyrirtækinu í réttan
farveg."
„Ég er þannig gerður að þegar ég sé tækifæri sem
hægt er að nýta þá get ég ekki setið hjá án þess
að aðhafast."
Fjöldi ferðamanna margfaldaðist
Steinþór stóð fyrir flugi flugfélagsins
Canada 3000 hingað til lands á árunum
1996-2000. „Ég sá ónýtt tækifæri í ferða-
málum og fljótlega hafði fjöldi ferða-
manna frá Kanada margfaldast." Flugfé-
lagið skilaði verulegum tekjum til samfé-
lagsins og við nutum einnig góðs af. Árið
2000 ákváðu forráðamenn Canada 3000
að hætta flugi hingað til lands, meðal
annars vegna hárra afgreiðslugjalda sem
þá voru á Keflavíkurflugvelli. Steinþór hóf
þegar leit að nýjum samstarfsaðila til opna
þetta markaðssvæði á nýjan leik. Eftir
tveggja ára vinnu hófst síðan samstarf við
HMY Airways í lok síðasta árs og lofaði
byrjunin mjög góðu hér á landi. Má þar
helst nefna lág afgreiðslugjöld og sam-
starfsviIja stjórnvalda. Bókanirfóru strax
fram úr björtustu vonum en félagið dró
hins vegar óvænt allt flug til Evrópu til
baka - í bili að minnsta kosti. Steinþór
kveðst ánægður með hve vel
flugfélagið leysti vandamál
allra farþega eftir þessa erfiðu
ákvörðun. í dag er hann enn í
sambandi við HMY og stefnir
__________ ótrauður að frekari flugsam-
göngum milli Kanada og ís-
lands í náinni framtíð.
Get illa horft á ónotuð tækifæri
Steinþór situr í bæjarráði og er formaður
umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanes-
bæjar. Hann kveðst vonast til að bak-
grunnur hans í atvinnulífinu nýtist til
góðra verka fyrir bæjarfélagið. „Ég er
20