Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Page 21

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Page 21
þannig gerður að þegar ég sé tækifæri sem hægt er að nýta þá get ég ekki setið hjá án þess að að- hafast. Öllum hugmynd- um sem ég fæ velti ég fyr- ir mér og tek síðan ákvörðun um hvort heppi- legar séu til fram- kvæmda." Eitt af helstu verkefni bæjarfélagsins á næstu árum á sviði um- hverfis- og skipulagsmála er skipulag nýrra svæða, meðal annars svokallaðs „Nikkelsvæðis" og nýrrar íbúðabyggðar í Innri- Njarðvík Nú þegar eru framkvæmdir við Fitjar, framtíðar útivistarperlu Reykjanesbæjar, komnar vel á veg. Þá eru miklar væntingar til atvinnuupp- byggingar á nýju athafna- svæði í Helguvík og hafa tilboð vegna framkvæmda þegar verið staðfest í bæj- arstjórn Reykjanesbæjar. Um 30 þúsund manns á Ljósanótt Ein af hugmyndum Stein- þórs var að lýsa upp klettavegginn á Kefla- víkurbergi, sem er um 500 metra langur og 10 metar hár, og varð útkoman glæsi- legt útilistaverk. í tengslum við berglýsing- una var efnt til menningarhá- tíðar í Reykjanesbæ undir heitinu Ljósanótt, sem Stein- þór hefur veitt forstöðu frá upphafi. Hugmyndin - að efna til sérstakrar hátíðar í til- efni af lýsingu Bergsins - vaknaði einungis fáum vikum fyrir fyrstu Ljósanóttina sem haldin var 2. september árið 2000 en þá mættu um 10.000 manns. í framhaldi af vel heppn- aðri hátíð var ákveðið að gera Ljósanótt að árlegum viðburði í Reykjanesbæ og mættu til að mynda 30 þúsund manns á hátíðina í september í fyrra. styrkja verslun og þjónustu í heimabænum og um leið að kynna bæinn fyrir gestum á jákvæðan hátt. „Nokkur hundruð manns nýttu sér til- boðið en auk hótelsins tóku verslunarmenn þátt í fram- takinu í ár og það hefur án efa styrkt samstöðu verslana í bænum," segir Steinþór. Oft getur verið erfitt að koma nýjum hugmyndum áleiðis og kýs Steinþór að nota líkingu við ræktun þeg- ar hann ræðir hugmyndir sínar og framkvæmdir. Hann segist líta á þær sem fræ sem hann vilji fyrst sjá blómstra, til að sýna fram á að þær séu framkvæmanleg- ar, áður en hann reynir að fá aðra í lið með sér. Jóla- verslunin er gott dæmi þess. Fyrsta árið stóð Hótel Kefla- vík eitt að framtakinu en um síðustu jól komu bæjarfé- lagið, verslunareigendur og þjónustufyrirtæki af krafti inn í átakið. Fékk skófluna til baka Steinþór hefur lengi barist fyrir bættum samgöngum á Reykjanesi og veitir í dag forstöðu hópi áhugafólks um tvöföldun Reykjanesbrautar. Þessi hópur var meðal annars stofnaður vegna alvar- legra umferðarslysa sem orðið hafa á Reykjanesbrautinni. „Ég lagði strax mikla áherslu á að ögra engum með þessu verkefni heldur vinna þetta f velvild og samvinnu við alla aðila. Reykjanesbrautin er mikið sam- göngu- og öryggismál fyrir alla íbúa landsins, enda þjóðvegur að flugstöð Leifs Eiríkssonar. Önnur verkefni í þessa veru liggja fyrir; að tvöfalda Vesturlands- veginn og Hellisheiðina eru verkefni fram- tíðarinnar f samgöngumálum, þótt Reykja- nesbrautin sé vissulega forgangsverkefni í mínum huga," segir Steinþór. Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúi og hótelstjóri í Reykjanesbæ. Styrkti verslun og þjónustu í Reykjanesbæ Um síðustu jól bauð Steinþór þeim sem komu í Reykjanesbæ í verslunarferð fyrir „Ég lagði strax mikla áherslu á að ögra engum með þessu verkefni heldur vinna þetta í velvild og samvinnu við alla aðila." jólin fría gistingu með morgunverði á Hót- el Keflavík. Það eina sem gestir þurftu að gera var að sýna greiðslukvittanir fyrir vör- um og þjónustu f Reykjanesbæ að and- virði hótelgistingar. Steinþór kvaðst ekki vita til þess að þetta hafi verið gert annars staðar en hugmynd hans gengur út á að ----- 21

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.