Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Qupperneq 23

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Qupperneq 23
Fullt vald til að breyta skipan í nefndir Félagsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að sveit- arstjórnir hafi fullt vald til að skipta út fulltrúum í nefndum sveitarfélaga hvenær sem er á kjör- tímabili nefnda og án þess að tilgreina ástæðu. Leitað var álits félagsmálaráðuneytisins á því hvort sveitarstjórn ónefnds sveitarfélags hafi verið heimilt að leysa formann skóla- nefndar sveitarfélagsins frá því embætti þegar viðkomandi fékk ráðningu sem leiðbeinandi við grunnskóla í sveitarfélagsins. í áliti ráðuneytisins er gegnið út frá því að sveitarstjórn hafi tekið þessa ákvörðun með hliðsjón af 42. grein sveitarstjórnar- laga en samkvæmt henni eru starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélags ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrir- tækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. í ákvæðinu felst meðal annars að starfsmenn grunnskóla eru ekki kjörgengir til setu í skólanefnd viðkomandi sveitarfélags. Tímabundin ráðning í grunnskólann Skólanefndarformaðurinn fyrrverandi var ráðinn til starfa sem leiðbeinandi við grunnskóla sveitarfélagsins tímabundið, frá 6. mars til 23. maí 2003, og óskaði álits ráðuneytisins á ákvörðun sveitarstjórnar í Ijósi þess að hann hafði óskað eftir að starfa áfram í nefndinni eftir að ráðningartíma við grunnskólann Iyki og að ekki sé af bókun hreppsnefndarinnar að ráða að formað- urinn njóti ekki lengur trausts til setu í nefndinni. Niðurstaða ráðuneytisins byggir einkum á 4. málsgrein 40. greinar sveitarstjórnarlaga þar sem er heimild fyrir sveitarstjórn til að skipta um fulltrúa í nefndum hvenær sem er á kjörtímabili nefndar. Um þetta segir í álitinu: „Þetta á meðal annars við þeg- ar fulltrúar í nefnd njóta ekki lengur trausts meirihluta hrepps- nefndar en er þó ekki bundið við þau tilvik einvörðungu. Verð- ur raunar að túlka ákvæðið svo, að sveitarstjórn þurfi ekki að tilgreina ástæður þess að hún hyggst breyta nefndaskipan." Farið var fram á það í erindinu til ráðuneytisins að farið yrði með málið sem trúnaðarmál og að álit ráðuneytisins yrði ekki birt á heimasíðu þess. Af því tilefni tekur ráðuneytið fram að öll álit og úrskurðir þess eru birt opinberlega en komið er til móts við óskina með því að birta hvorki nafn álitsbeiðanda né sveit- arfélagsins í þeirri útgáfu álitsins sem birt er opinberlega. . . Borinn Sleipnir ■ rr TIL HAMINGJU FJARÐABYGGÐ! Arðvænleg auðlind er fundin á Eskifirði. Borinn Sleipnir kom nýverið niður á 80 gráðu heitt vatn í holu sem er um 1300 metra djúp og gefur 15-17 l/sek. Sá árangur er framar björtustu vonum. Hiti og magn vatns gefa sterka vísbendingu um að það muni henta til hitaveitu á Eskifirði og efla sjálfbæra þróun í byggðarlaginu. Fari svo sem horfir, getur Eskifjörður orðið fyrsta byggðarlagið við sjávarsíðuna á Austurlandi sem fær hitaveitu með þeirri aukningu lífsgæða, hagræði og möguleikum sem henni fylgja. Jafnframt kvikna vonir um árangur víðar á þessum slóðum. Jarðboranir þakka íbúum Fjarðabyggðar gott samstarf og óska þeim til hamingju með áfangann. M JARÐBORANIR Við opnum þe'r auðlindir

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.