Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Blaðsíða 27

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Blaðsíða 27
annarra nota. Grundvallarmarkmioio er þó að Hríseyingar verði sjálfum sér nógir um orku, jafnt raforku og varma, að um- framorka verði nýtt í eynni í formi vetnis á farartæki og að Hrísey skapi sér sérstöðu á orkusviðinu, ekki aðeins á landsvísu heldur á heimsvísu. Stuðningur stjórnvalda við verkefnið í Hrísey mun meðal annars renna til þess að Ijúka við gerð skýrslu um orku- vinnslu í eynni. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra undirrita samkomuiag um stuðning við gerð staðardagskrár 21 í fámennum sveitarfélögum og um stuðning við áform um að gera Hrísey að sjálfbæru samfélagi. Hjá þeim er Ragnar jörundsson, sveitarstjóri f Hrfsey. Úrgangur, fráveitumál, orka, samgöngur, fræðsla, ræktun og mat- vælaframleiðsla og ferðaþjónusta. Verður hér drepið á helstu at- riði nokkurra þessara flokka. Sorpmálin tekin föstum tökum Ákveðið hefur verið að taka sorpmálin föstum tökum í Hrísey en á síðastliðnu ári voru flutt 95 tonn af sorpi úr eynni, sem eru um 510 kílógrömm á hvern íbúa. Það er töluverð aukning frá árinu á undan þegar sambærileg tala var 457 kílógrömm á hvern íbúa að því er fram kemur í skýrslunni. Sorpið er að mestu flutt óflokkað í land nema hvað dagblöð, pappi og brotajárn eru að einhverju leyti flokkuð frá öðrum úrgangi. Tilraunir með flokkun lífræns úr- gangs og jarðgerð hafa ekki gengið nógu vel en átak verður gert í þeim efnum. Eitt af forgangsverkefnunum er að leggja áherslu á jarðgerð og er talið að mögulegt sé að ná verulegum árangri. Miðað við að um 2,5 kílógrömm falli til af lífrænum úrgangi á hvern íbúa í viku hverri má gera ráð fyrir að mögulegt sé að minnka sorp- magn Hríseyinga úr 510 f 380 kílógrömm á ári, eða um 130 kíló- grömm á mann. í stað 95 tonna af úrgangi, sem voru flutt í land í fyrra, gæti magnið orðið 71 tonn á ári. Sérstaða á heimsvísu Jarðhiti er til staðar undir Hrísey og hefur hann verið nýttur til upphitunar í nær þrjá áratugi. Nær öll hús í eynni njóta jarðhit- ans, sem einnig er nýttur í sundlaugina og til snjóbræðslu á hafn- arsvæðinu. í jarðhitanum liggja miklir möguleikar fyrir Hríseyinga því tal- inn er möguleiki á að stækka jarðvarmaveituna verulega með nýjum borunum og með því að samnýta jarðhitann til framleiðslu á raforku og varma. Talið er hugsanlegt að setja upp 500 kw stöð sem fram- leiða myndi helmingi meiri orku en þörf er á í eynni. Þá er talið, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar, að hægt væri að framleiða vetni í Hrísey og nýta þannig umframorkuna eða að selja hana til Áhugaverð tækifæri á flestum sviðum í öllum málaflokkum sem teknir eru fyrir í samantektinni er staðan í dag metin, sett fram markmið og tiltek- in forgangsverkefni. Til dæmis má nefna að í kaflanum um rækt- un og matvælaframleiðslu eru sett fram þessi markmið: Að Hríseyingar verði sem mest sjálfum sér nógir með fæðu sem aflað er á vistvænan hátt, að öll garðrækt í eynni verði lífræn og að Hríseyingar geti selt framleiðslu sína í land undir merkjum líf- rænna framleiðsluhátta. Þá eru sett fram markmið um að öll ferðaþjónusta í Hrísey verði sjálfbær og vottuð og markaðssett sem slík. Mikil vinna framundan Minnt er á að samhliða fyrstu skrefunum í uppbyggingu sjálfbærs samfélags í Hrísey þurfi að ráðast í gerð Staðardagskrár 21 fyrir sveitarfélagið. Þannig verði best tryggt að vilji íbúa hafi áhrif á þróun mála og að sjálfbær þróun verði jafnan höfð að leiðarljósi. Samantekt þeirra Stefáns og Arnheiðar er góður grunnur í þá vinnu en Staðardagskrá 21 þarf þó að ná til fleiri málaflokka og hafa lengri framtíðarsýn. í lokaorðum samantektarinnar er minnt á að þau forgangsverk- efni, sem þar eru sett fram, séu forsenda áframhaldandi þróunar sjálfbærs samfélags í Hrísey: „Þegar þessi fyrstu verk hafa verið unnin, er fyrst hægt að segja til um hversu kostnaðarsamt verður að gera Hrísey að sjálf- bæru samfélagi. Með opinberum stuðningi er ekki aðeins stuðlað að jákvæðri byggðaþróun í Hrísey, heldur gefst um leið einstakt tækifæri til að skapa fyrirmynd til eftirbreytni fyrir önnur samfélög landsins. Auk heldur liggja í Hrísey möguleikar sem telja má nær einstaka á heimsvísu, og eru ótvírætt til í stað 95 tonna af úrgangi sem voru flutt í land í þess faNnir að skapa jakVæða fyrra gæti magnið orðið 71 tonn á ári. ímYnd °8 umræðu. Þar er eink- ----------------------------- um átt við tækifæri til raforku- framleiðslu úr jarðvarma. Með slíkri framkvæmd og með raf- eða vetnisvæðingu bílaflota og ferju, yrði Hrísey eitt af fyrstu samfélögunum í heiminum, sem væri í raun sjálfbært í orkulegu tilliti," segir í lokaorðum saman- tektarinnar. 27

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.