Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Síða 29

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Síða 29
heiminn. Stofnun sem starfar í alþjóðlegu samhengi án þess að missa sjónar á heimahögunum er nákvæmlega það sem ég held að sveitarfélag eins og Akureyri þurfi á að halda til að festa sig í sessi sem vænlegur búsetukostur fyrir ungt, vel menntað fólk. Ég finn líka að þessi stefna hefur skilað verulegum árangri og alls staðar fallið vel í kramið," segir Hannes. Sífellt kröfur um hærri leigu Hannes kveðst smeykur um að erfitt verði fyrir safnið að halda áfram sama dampi án frekari fjárframlaga. Fjárlög safnsins hafa hækkað lítillega milli ára en flutningur á listaverkum, oft í heilum gámum, tryggingarverðmæti sem hljóða stundum upp á hátt í milljarð, útgáfa bóka og komur erlendra gesta kosta sitt. Hann segir að sér hafi tek- ist að ná í umtalsverða styrki vegna sýninga og einnig að lækka kostnað með samningum. „Þrátt fyrir allar þessar dýru, al- þjóðlegu sýningar hefur safnið verið rekið á núlli síðustu árin, sem ég er afar stoltur af. Á móti kemur að söfn og gallerí erlendis sem hérlendis gera sífellt kröfur um hærri leigu á verkum og höf- um við orðið að hafna mörgum glæsilegum sýningum sem ekki þættu kannski svo ýkja dýrar annars staðar. Það er því nokkuð Ijóst að við verðum að dempa okkur niður í framtíðinni miðað við óbreytt fjárlög ef ekki kemur til róttæk breyting." Yfir 20 þúsund gestir Hannesi er hugleikin skipting og forgangsröðun fjármuna sem varið er til tómstunda- og menningarmála; mál sem oft eru um- deild og viðkvæm í störfum sveitarfélaga. Hann segir Listasafnið rekið fyrir um einn fjórða af fjárlögum Leikfélags Akureyrar þótt safnið starfi allan ársins hring á móti árstíðabundnu starfi Leikfé- lagsins. Hann bendir einnig á að safnið hafi ekki fengið til afnota efstu hæð þess húsnæðis sem því er ætlað þótt á sama tíma hafi verið byggt íþróttamannvirki fyrir hundruð milljóna króna. „Á síð- astliðnu ári komu yfir 20 þúsund gestir á Listasafnið. Mér er til efs að nokkur stofnun á Akureyri, fyrr eða síðar, hafi fengið meiri umfjöllun í fjölmiðlum á undaförnum árum en Listasafnið. Þetta hefur orðið til þess að starfsemi safnsins, og þá um leið hróður bæjarins, hefur breiðst út um allt land og fylgist stór hópur fólks með sýningarhaldinu. Hér er í raun um auglýsingar að ræða fyrir bæinn sem myndu kosta meira en fjárlög safnsins ef greiða þyrfti fyrir þær fullu verði." Menningarmál oft léttvæg í pólitíkinni Hannes segir að sér finnist menningarmál oft talin léttvæg þegar komi að pólitískum ákvörðunum þótt þúsundir manna hafi at- vinnu af þeim með einum eða öðrum hætti. Hann kveðst sann- færður um að þeir fjármunir sem lagðir eru í menningarstofnanir skili sér beint út í atvinnulífið aftur, örvi það og auki umsvifin með margvíslegum hætti, fyrir utan að gera tilveruna áhugaverð- ari. Hann segir að Listasafnið á Akureyri geti örugglega náð mun meiri árangri og kveðst telja að ef það starfaði fyrir svipað fé og varið er til starfsemi Leikfélags Akureyrar myndi það skipa sér við hlið stærstu safnanna í Reykjavík, Listasafns Reykjavíkur og Lista- safns Islands. „Það yrði gríðarleg lyftistöng fyrir bæinn og myndi ýta undir drifkraft og stolt íbúa ef hér væri starfrækt eitt af helstu listasöfnum landsins. Svona starfsemi leynir á sér. Hún hefur mun meiri áhrif á umhverfið en flesta getur órað fyrir. Eins og staðan er í dag væri ef til vill réttara að tala um eins konar opinbert gall- erí fremur en listasafn, eða það sem Þjóðverjar kalla Kun- sthalle. Listasafnið hefur alla burði til að taka af skarið hér heima með sérstakri áherslu á alþjóðlega samvinnu og sýn- ingarhald þar sem fetaðar eru ótroðnar slóðir, en mér finnst mikið vanta á að söfn hér á landi taki virkari þátt í þjóðfélagsumræðunni," segir Hannes Sigurðsson að lokum. Styrkir Samgönguráðuneytið óskar eftir umsóknum í styrki af óráð- stöfuðum hluta fjárlagaliðarins Vetrarsamgöngur og vöru- flutningar 10-190-112. Vetrarsamgöngur og vöruflutningar eru sérstakur liður á fjár- lögum sem ætlaður er til stuðnings við sveitarfélög þar sem svo háttar til að sveitarfélagið eða hluti þess býr við erfiðar og kostnaðarsamar samgöngur og ekki er veitt fullnægjandi samgönguþjónusta af hálfu stofnana ríkisins. Styrkir verða einungis veittir þeim sveitarfélögum sem senda rökstuddar umsóknir um þá. Umsóknir skulu berast sam- gönguráðuneytinu fyrir 8. júní 2003. Styrkir verða hvorki veittir til reksturs sérleyfa á landi, sjó eða í lofti né til stofnkostnaðar vegna kaupa á tækjum og búnaði. Umsóknir berist samgönguráðuneytinu, merktar Rúnari Guðjónssyni. „Þrátt fyrir allar þessar dýru, alþjóðlegu sýningar hefur safnið verið rekið á núlli síðustu árin, sem ég er afar stoltur af." 29

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.