Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Side 6
Nýr félagsmálaráðherra
Sveitarstjórnarstörf in
eru gott veganesti
Árni Magnússon tók við embætti félagsmálaráherra á dögunum. Hann hafði áður gegnt starfi bæjar-
fulltrúa í Hveragerðisbæ og átt sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem að hann gegndi
varaformennsku. Hinn nýi félagsmálaráðherra kemur því beint úr sveitarstjórnarmálunum til starfa í
ráðuneytinu.
„Nei - ég ætla ekki að halda
áfram í sveitarstjórnarmálun-
um og hef sagt af mér störf-
um á þeim vettvangi. Mér
finnst það ekki samræmast
starfinu hér að ég sitji beggja
vegna borðsins ef svo má að
orði komast. Ég neita því
hins vegar ekki að ég tel
sveitarstjórnarstörfin gott
veganesti í því starfi sem ég
hef nú tekið að mér," segir
Árni.
Kynni af fólki munu
nýtast mér
„Ég held að aldrei fari hjá
því að sú reynsla sem maður
ávinnur sér hafi áhrif á þau
störf sem maður tekur sér
fyrir hendur. Ég bý vissulega
að þeirri reynslu sem ég fékk
við að vera sveitarstjórnar-
maður í nokkur ár og að
hafa kynnst því sem brennur
á sveitarstjórnarmönnum og
sveitarstjórnarstiginu; fyrst
sem bæjarfulltrúi í minni-
hluta og síðan að taka þátt í
kosningum þar sem útkoman
varð betri, taka þátt í myndun meirihluta
og starfa sem formaður bæjarráðs. Þótt ég
hafi ekki tekið þátt í störfum Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga nema í
skamman tíma þá fékk ég
ákveðna innsýn í málin frá
þeim sjónarhóli og reynslu
sem ég tel einsýnt að muni
nýtast mér nú í þessu nýja
starfi. Ég hef bæði kynnst mál-
efnum og rekstri einstaks
sveitarfélags og síðan heildarmyndinni í
gegnum sambandið. Þetta er auðvitað gott
fyrir mig en það sem ég tel ekki síðra í
þessu tilviki er að ég kynntist mörgu fólki
mikils virði. Það er nauðsyn-
legt að fólk geti spjallað sam-
an á óformlegum nótum en
ekki alltaf með þeim formerkj-
um að það sé ráðherra og for-
svarsmenn sveitarfélaganna
sem ræðast við. Ég vona að
þetta muni hafa áhrif því þótt
ég sé kominn hinumegin
borðsins þá eru sveitarstjórn-
armálin hluti af uppeldi mínu
og bakgrunni og mér eru mál-
efni sveitarfélaganna hug-
leikin."
Ár undirbúnings
Árni kveðst telja að margt hafi
áunnist í sveitarstjórnarmálum
á undanförnum árum. Þar
skipti sú tilfærsla sem orðið
hefur á verkefnum frá ríkinu
til sveitarfélaganna miklu
máli. „Ég held að bæði sam-
eining sveitarfélaganna og
þessi tilfærsla verkefna frá rík-
inu sé liður í ákveðinni fram-
þróun. En við getum ekki látið
staðar numið. Við verðum að
halda áfram. Ég hef tekið þátt
í stefnumótunarstarfi, sem hefur farið fram
á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga
og ég hef ekki skipt um skoðun þótt ég
hafi skipt um stól. Ég er þeirrar skoðunar
að sveitarfélögin þurfi að halda
áfram að eflast og að besta
leiðin að því markmiði sé að
þau stækki. Sveitarfélög eru fær
um að leysa stór og krefjandi
verkefni vel af hendi og eðlilegt
að frekari tilfærsla verkefna frá
ríki til sveitarfélaga verði könn-
uð. Á sama hátt er mikilvægt að tekju-
stofnar sveitarfélaga séu í samræmi við
lögbundin og eðlileg verkefni þeirra."
Nú þegar hefur Árni rætt við forsvarsmenn
Árni Magnússon, þá varaformaöur Sambands íslenskra sveitarfélaga, í ræðustól á
ráðstefnu á vegum sambandsins um Evrópumál fyrr á þessu ári.
sem er að vinna að sveitarstjórnarmálum
víðs vegar um landið. Ég held að þau
kynni eigi ekki síður eftir að nýtast mér en
reynslan af hinum ýmsu málum og mála-
Sveitarfélög eru fær um að leysa stór og krefjandi
verkefni vel af hendi og eðlilegt að frekari til-
færsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga verði
könnuð.
flokkum sem sveitarstjórnir eru að fást við.
Það skapast ákveðnar tengingar og að
geta rætt við sveitarstjórnarfólk sem allt að
því kunningja er að mínum dómi ákaflega
s