Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Blaðsíða 32

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Blaðsíða 32
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Tómas Óskar GuÖjónsson, forstöðumaður Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins, ásamt þekktasta íbúa hans, nautinu Guttormi. Vinkona Guttorms til vinstri var í stuði en hann lét sér fátt um finnast. Stöðug fjölgun gesta upphaf i Gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal í Reykjavík hefur fjölgað stöðugt og jafnt frá því að hann var opnaður. Það eru ekki aðeins þekktustu íbúar hans; nautið Guttormur og storkurinn Styrmir, sem draga gesti að heldur einnig fjölbreytt starfsemi þar sem áhersla er lögð á að bjóða eitthvað fyrir alla - unga sem aldna. Starfsemi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins má rekja til ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkur- borgar 22. apríl 1986 um byggingu húsdýra- garðs í Laugardal. Framkvæmdir við byggingu garðsins hófust þremur árum síðar og var garð- urinn formlega opnaður 19. maí 1990. Hug- myndina að stofnun garðsins átti Davíð Odds- son, sem þá gegndi starfi borgarstjóra, og Þórð- ur Þorbjarnarson, þáverandi borgarverkfræðing- ur, sem unnu saman að því að leiða hugmynd- ina til veruleika. Tómas Óskar Guðjónsson, for- stöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, segir að á þessum tíma hafi skort aðstöðu til þess að sýna og kynna íslensku húsdýrin. Færri og færri börn hafi átt kost á sveitadvöl og kynslóð tekin að alast upp sem ekki hafi átt möguleika á að komast í ná- lægð við dýr. Hin stöðugt vaxandi aðsókn að garðinum sýnir glögg- lega þessa þörf og í maímánuði á siðasta ári sóttu alls 44.012 manns garðinn og 47.820 gestir komu þangað í maí á þessu ári. Tómas segir að vetrarmánuðirnir séu ekki und- anskildir hvað vaxandi aðsókn varðar og til dæmis hafi sex af síðustu átta mánuðum verið metmánuðir í aðsókn. Sjá, læra, vera og gera Þótt börnin séu áberandi á meðal gesta Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins þá eru þau aðeins um helmingur gesta hans þegar litið er yfir meðalaldur þeirra. Tómas segir að þótt skóla- börn komi í hópum með kennurum sínum \ garðinn þá komi fjölskyldur oft saman og á síð- ari árum fjölgi fullorðnu fólki, bæði yngra og eldra, sem leggi leið sína þangað. „Það er tals- vert um að ungt fólk og stundum ástfangið I garðinum er blandað saman vistarverum dýra og ýmiss konar leiktækjum þar sem oftar en ekki reynir á margvíslega kunnáttu og þjálfun þeirra sem taka þátt í leikjunum. breytta þjónustu og aðstöðu til þess að verja tómstundum sínum. Hugtökin sem stuðst hefur verið við í uppbyggingu hans eru; sjá, læra, vera og gera. Þegar gengið er um garðinn verð- ur tryggð þeirra sem þar hafa byggt og starfa við þessi hugtök einkar Ijós. í garðinum er blandað saman vistarverum dýra og ýmiss kon- ar leiktækjum þar sem oftar en ekki reynir á margvíslega kunnáttu og þjálfun þeirra sem taka þátt í leikjunum. Tómas segir mikið lagt upp úr ratleikjum bæði fyrir börn og fullorðna og ekki sé óalgengt að sjá fólk með blöð eða blokkir og jafnvel GSM síma fara um garðinn í leit að svörum við spurningum sem lögð eru fyrir það. komi hingað í garðinn og einnig eldri borgarar sem eiga orðið tíma fyrir sjálfa sig." í markmiðslýsingu garðsins kemur fram að tilgangur hans sé að veita fjölskyldufólki fjöl- Námskeið fyrir grunnskólabörn Sérstök fræðsludeild starfar innan garðsins og sér um margvíslegra fræðslu. Fræðsludeildin annast meðal annars fræðslu fyrir grunnskólabörn þriðja bekkjar um dýrin og einnig vinnumorgna fyrir nemendur sjötta bekkjar grunnskólanna. Leiðsögn um garðinn fyrir skólahópa tekur um 32

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.