Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 11
Sameining sveitarfélaga myndi þó trúlega auka
þjónustu utan stærri þéttbýliskjarnanna þar sem
hún hafi ekki verið aukin nú þegar með stofnun
og rekstri byggðasamlaga. Sameining muni að
öllum líkindum hafa ýmis jákvæð áhrif fyrir
dreifbýlið en miðlægni myndi aukast og ná-
lægð minnka. Crétar Þór segir að óleyst félags-
leg úrlausnarefni muni koma upp á yfirborðið í
dreifðu byggðunum. Það muni einkum eiga sér
stað þar sem fámenn dreifbýli sameinist þéttbýli
og ekki eru fyrir hendi byggðasamlög er annast
þennan þátt.
Sameining sveitarfélaga á svæöi Eyþings, Eyjafiröinum og Þingeyjarsýslum var til umræöu á ráÖstefnu á
Húsavík nýlega. Myndin er hins vegar frá Grenilundi, sambýli aldraðra á Grenivík í Grýtubakkahreppi -
sem er við Eyjafjöröinn en tilheyrir Suður-Þingeyjarsýslu.
Ávinningur í atvinnumálum
Grétar Þór segir byggðaleg áhrif af sameiningu
líkast til verða meiri í Þingeyjarsýslum þar sem
samþjöppun fólks sé mun meiri í Eyjafirði.
Ávinningur af sameiningu sveitarfélaga yrði af
þeim sökum enn meiri í Þingeyjasýslum. Öll
svæðin myndu þó njóta ávinnings í atvinnu-
málum. Grétar Þór benti á að nauðsynlega
þyrfti að ná upp heildstæðri atvinnustefnu í
Eyjafirði og að þar gæti ávinningur Eyfirðinga
legið í sameiningu, en sameining myndi gefa af
sér frekari sóknarfæri í uppbyggingu innviða
samfélagsins í Þingeyjarsýslum.
Samkennd nauðsynleg
Ekki var sérstaklega athugað í þessari rannsókn
hversu mikil áhrif mismunandi leiðir til samein-
ingar myndu hafa. Grétar Þór segir vísbending-
ar þó hafa komið fram um að mikil og í flestum
tilvikum farsæl samvinna fyrir sameiningu hafi
auðveldað sameiningu og síðar starf sameinaðr-
ar sveitarstjórnar. Samkennd virðist hafa afar
mikilvægu hlutverki að gegna og einnig að íbú-
arnir skynji sig sem hluta af sameiginlegri heild.
Við slíkar aðstæður virðast sameingarmálin
ganga betur upp en þar sem samstaða og sam-
kennd er minni.