Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 25

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 25
jm ; t: „ Við staðnæmdumst við Seltjarnarnesið. Ætli Austfirðingurinn í okkur hafi ekki dregið okkur að sjónum, segir Árni Einarsson um búsetu sína á Seltjarnarnesi. Myndin er frá fjölskyldudegi Seltirninga f byrjun apríl. heimsóttu kjósendur. Félagsmálaáhuginn fylgdi mér svo suður eins og sveitamaðurinn því að eftir nokkurra ára búsetu I Reykjavík fórum við Svala kona mín að leita að húsnæði í einhverju af nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Við staðnæmdumst við Seltjarnarnesið. Ætli Aust- firðingurinn í okkur hafi ekki dregið okkur að sjónum." „Starfsform Neslistans hentar mér vel" „Ég fór fljótlega að taka þátt í félagsstarfi á Nes- inu. í fyrstu snéri það einkum að íþrótta- og skólamálum í gegnum foreldrastarf grunnskól- ans. Eitt leiddi síðan af öðru í þeim efnum þar til fyrir sveitarstjórnakosningarnar 1998 að for- ystumenn Neslistans höfðu samband við mig og spurðu hvort ég vildi taka sæti á framboðs- lista þeirra. Starfsform Neslistans hentar mér vel. Aðstandendur hans eru lýðræðissinnað fé- lagshyggjufólk sem kemur víða að úr stjórnmál- unum, auk þess sem þar er að finna hóp af óflokksbundnu fólki. Ég telst til þess hóps, hef aldrei verið flokksbundinn eða starfað í stjórn- málaflokki, og sló því til. Fyrir kosningarnar 2002 ákvað ég svo að taka þátt í prófkjöri Bæj- armálafélagsins á Seltjarnarnesi, sem býður fram Neslistann, og sækjast eftir þriðja sæti á listanum sem var baráttusæti okkar í kosning- unum. Því markmiði náði ég og í kosningunum unnum við þetta sæti svo í bæjarstjórn, bættum við okkur einum fulltrúa." Unnið að vímuvörnum frá námslokum Árni starfaði við kennslu og skólastjórn við grunnskólann heima í Breiðdal í tvö ár að loknu framhaldsskólaprófi. Hann segir áhugann á skólamálunum hafa kviknað þá og leitt til þess að hann hóf nám í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Is- lands. Þrátt fyrir menntun sína kveðst hann þó ekki hafa sinnt eig- inlegri kennslu frá því að hann lauk námi, heldur unnið að ýmsum verkefnum sem tengjast skóla- og uppeldismálum og þá ekki síst forvarnastarfi. Hann hefur starfað að vímuefnavörnum frá því að hann lauk námi og segir starfsvettvang sinn í gegnum tíðina því hafa tengst öllum skólastig- um. Eftir að foreldraráð grunnskólanna voru sett á stofn með lögum tók hann til starfa á þeim vettvangi og sat meðal annars í fyrsta foreldra- ráði Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Grunnskólinn er hluti af ímynd sveitarfélaga Árni víkur að flutningi grunnskólastigsins frá ríkinu til sveitarfélaganna og segir að nálægðin milli ákvarðanatöku og skólastarfsins hafi aukist til muna. „Það er mun styttra að fara með álita- mál til úrlausnar og annað er varðar skólastarf- ið til forystumanna sveitarfélaganna en var á meðan skólarnir voru reknir af ríkinu. Launa- kjör kennara löguðust einnig verulega með kjarasamningum launanefndar sveitarfélaga og stéttarfélaga kennara fyrir um tveimur árum þannig að kennarastarfið er fyrir vikið áhuga- verðara en áður. Grunnskólinn er í vaxandi mæli að verða hluti af ímynd sveitarfélaga þar sem mikil áhersla er lögð á að halda uppi góðu skólastarfi með hæfu og ánægðu starfsfólki. Skólastarfið er orðið hluti af þeim tilboðum sem sveitarfélög geta gert fólki til að laða að nýja íbúa til búsetu. Grunnskólarnir eru þannig orðnir hluti af samkeppnisstöðu sveitarfélag- anna og byggðamál í þeim skilningi þar sem gott skólastarf úti um land er hluti af byggða- baráttunni og getur haft áhrif á hvar fólk vill búa. Það verður því að taka tillit til þess að margir minnstu skólarnir á landsbyggðinni eiga undir högg að sækja hvað varðar möguleika til að halda góðu starfsfólki og bjóða því þau starfsskilyrði sem það telur sig þurfa." Árni segir að þó megi ekki eingöngu horfa á nei- kvæðu hliðarnar í starfi litlu skólanna því ýmsir kostir geti falist í starfsemi fámennra skóla. „En það er engu að síður ólíku saman að jafna þeg- ar um er að ræða samanburð á skólum með innan við 70 nemendur og skóla með um 800 nemendur eins og grunnskólarnir á Seltjarnar- nesi. Stærri skóli hefur eðlilega margvíslega yf- irburði og möguleika til þess að taka á vandamálum og frávikum hvort sem þau verða vegna náms- erfiðleika eða þroskafrávika af ýmsu tagi, sem nú er almennt við- urkennt að bregðast eigi við í skólastafi. Maður trúir því að hægt sé að halda í heiðri þá grein grunnskólalaganna sem kveður á um að veita skuli hverju barni menntun við hæfi og mæta þörfum þeirra eins og kostur er. Að því vil ég stuðla," segir Árni Einarsson bæjarfulItrúi í Seltjarnarneskaupstað að lokum. „Þessi hlið virðist samt því miður einnig vera að taka á sig mynd hér á landi. í sumum tilfellum er jafnvel komin fram kynslóð fólks sem hefur fæðst inn í þetta lífsform og tekur við því sem félagsleg- um arfi sem erfitt getur reynst að koma sér út úr." ----- 25

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.