Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 27

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 27
keppni um starfsfólk með bættum launakjörum hafi sveitarfélögin verið að færa víðtækari ábyrgð til stjórnenda stofnana sinna. Þannig hafi fagleg og fjárhagsleg ábyrgð stjórnenda aukist og á sama tíma verið gerðar auknar kröf- ur um menntun til þeirra. Markmiðið með því sé einkum að bæta þjónustu stofnana og auka skilvirkni þeirra en fyrir þetta verði einnig að greiða hærri laun. Karl segir að þrátt fyrir þetta þurfi gæðaaukningin ekki að auka kostnað á hverja þjónustueiningu þótt það verði að ein- hverju leyti háð því hvernig stjórnendur bregð- ist við og standi undir aukinni ábyrgð. Nauðsyn símenntunar Nauðsyn símenntunar og þær breytingar sem tilkoma hennar hefur haft á kjör starfsfólks eru einnig umfjöllunarefni í ritinu. Þar kemur fram að nú sæki menn ekki lengur launahækkun með setu á einu og einu námskeiði heldur sé það símenntunin á grundvelli símenntunaráætl- ana sem launhækkanir byggist á þannig að þeir starfsmenn sem ekki vilji taka þátt í slíkum áætlunum lækki í launasetningu. í fræðsluritinu kemur fram að launanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi hingað til aflað sér nægilegra gagna til þess að reikna út þann kostnaðarauka sem hlýst af kjarasamningum hverju sinni en hafi á hinn bóginn ekki haft nægilega góðar upplýsingar um þróun launakjara starfsmanna sveitarfélaga. Nauðsynlegt sé að bæta úr því og því hafi komið til tals að nefndin standi sjálf að kjararannsóknum í samvinnu við hag- og upp- lýsingasvið sambandsins. Eftirsóknarvert að verða þátttakandi í niðurlagi víkur Karl að því að starfsaldur sé al- mennt hár hjá sveitarfélögunum og segja megi að kjör séu samkeppnishæf. Kannanir hafi þó sýnt að laun séu ekki aðaláhrifavaldur þegar fólk tekur ákvörðun í vinnuleit sinni. Þótt laun- in þurfi að vera samkeppnishæf þá vega einnig aðrir þættir þungt. í því sambandi má nefna starfsöryggi, starfsumhverfi og möguleika til endurmenntunar. Karl bendir á að háskóla- menntuðu fólki hafi fjölgað mjög í störfum hjá sveitarfélögunum og það sé nokkuð eftirsóknar- vert að verða þátttakandi í jafn fjölbreyttu sam- félagi starfsmanna. Karl byggir rit þetta að mestu leyti á fyrirlestrum sínum á námskeiðum fyrir sveitarstjórnarmenn, sem haldin voru í febrúar á liðnum vetri. Mikill fengur er að þessu fræðsluefni fyrir sveitarstjórnarmenn og aðra sem fara með stjórn sveitarfélaga, ein- stakra sviða, stofnana á vegum þeirra og ann- arra sem annast stjórnunarstörf og hafa manna- forráð með einhverjum hætti. Kosið eystra 20. september Nýtt sameinað sveitarfélag Búðahrepps og Stöðvarhrepps verður formlega til þann 1. október í haust og verður kosið í nýja sjö manna sveitarstjórn þann 20. september. íbúar þessara sveitarfélaga samþykktu sem kunnugt er sameiningu þeirra í atkvæða- greiðslu samhliða alþingiskosningunum nú í vor. Nafn hins nýja sveitarfélags hefur ekki verið ákveðið. Auglýst hefur verið eftir hug- myndum um nafn á sameinað sveitarfélag og skal þeim skilað fyrir 1. júlí. Tillögum má koma á framfæri á skrifstofum sveitarfélag- anna eða með tölvupósti á netfangið buda- hreppur@faskrudsfjordur.is eða skrif- stofa@stodvarfjordur.is. Skipuð verður nefnd á vegum sveitarfélaganna tveggja sem fara mun yfir tillögurnar og senda til umsagnar Örnefnanefndar en síðan leggja fram tillögur sem kosið verður á milli. SAFNARAÐI Styrkir til safno skv. safnalögum nr. 106/2001 SafnaróS auglýsir eftir umsóknum fró menningarminjasöfnum, nóttúruminjasöfnum og listasöfnum, um styrki úr safnasjóöi ó órinu 2004. IHlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undir safnalög nr. 106/2001. Safnaróð úthlutar úr sjóðnum sam- kvæmt úthlutunarreglum róðsins. Upphæð og fjöldi veittra styrkja fer eftir fjórveitingu ó fjórlögum og umsóknum. Öll söfn sem falla undir safnalög geta sótt um verkefnastyrki til sjóðsins. Til þess að eiga kost ó rekstrarstyrk þarf safn að uppfylla skilyrði skv. ókvæðum 1 0. gr. safnalaga. Höfuðsöfn og önnur söfn sem hljóta rekstrarstyrki ó fjórlögum geta ekki notið styrkja úr safnasjóði. Umsóknarfrestur er til 1. september 2003. Umsóknum skal skila á jpar til gerðu umsóknareyðublaði sem nálgast má á skrifstofu ráðsins. Nánari upplýsingar gefur starfsmaður safnaráðs, Rakel Halldórsdóttir. Umsóknir skulu berast skrifstofu ráðsins: SAFNARÁÐ Þjóðminjasafni Islands Lyngós 7-9 »210 Garðabæ • Sími: 530 2234 • Bréfsími: 530 2201 rakel@safnarad.is • Vvww.safnarad.is 27

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.