Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 28

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 28
Fráveitumál Sveitarfélög kanna ódýrari leiðir Nokkur sveitarfélög eru að kanna leiðir til þess að koma fráveitumálum sínum í viðunandi horf með ódýrari lausnum en gert hefur verið ráð fyrir að unnt væri til þessa. Einar K. Stefánsson, verkfræðing- ur hjá VSÓ Ráðgjöf, hefur meðal annars unnið að því og var viðtal við hann birt í síðasta tölublaði Sveitarstjórnarmála. Grófsíun og lengri útrásir Sveinbjörn segir að hugmyndir Einars K. Stef- ánssonar taki mið af þessum breytingum og þeim hugmyndum að hafið sé mun öflugri við- taki þar sem meira og hraðara niðurbrot eigi sér félög. í Dalvíkurbyggð eru tvær útrásir frá þétt- býliskjarnanum á Dalvík og segir Sveinbjörn að sameina verði þær í eina útrás. Hann segir að þegar hafi verið gerðar straummælingar við Dalvík sem séu forsenda fyrir legu út- rása. Þá hafi gerlamælingar einnig ver- ið framkvæmdar. Að losna við sjón- og gerlamengun Tvö atriði leggur Sveinbjörn áherslu á að framkvæmdir verið að miðast við; í fyrsta lagi að losna við sjónmengun og í öðru lagi gerlamengun. Komi í Ijós að slíkt takist ekki án þess að byggja hreinsivirki verði trúlega að ráðast í slíka framkvæmd en menn verði að gefa sér einhvern tíma til þess að slíkt komi f Ijós. Því verði allar fram- kvæmdir að miðast við að hægt sé að bæta því við síðar gerist þess á annað borð þörf. Sveinbjörn segir þetta spennandi verkefni, einkum ef í Ijós komi að unnt sé að leysa þessi mál fyrir mun minni kostnað en hingað til hefur verið talið. Á meðal þeirra sveitarfélaga sem verið hafa í sambandi við Einar vegna frá- veitumála eru Dalvíkurbyggð og Vatnsleysustrandarhreppur. í Dalvíkur- byggð eru þrjú þéttbýlissvæði þar sem sjávarútvegur er stundaður; Dalvík, Árskógssandur og Hauganes og í Vatnsleysustrandarhreppi er rúmlega 800 manna byggðakjarni ÍVogum. Kostnaður algerlega ofviða Kristján Baldursson, byggingafu11trúi og umhverfisstjóri í Vatnsleysustrand- arhreppi, segir að tilskipanir Evrópu- sambandsins og reglugerð nr. 798/1999 leggi sveitarfélögunum verulegar skyldur á herðar. Stóru sveitarfélögin hafa unn- ið mikið í þessum málum að sögn Kristjáns en staðan er erfiðari hjá þeim minni þar sem kostnaður getur verið margfalt hærri vegna frá- rennslis fiskvinnsluhúsa, sem margfaldar per- sónueiningarnar. Hann segir ekki hægt að horfa framhjá þeirri stað- reynd að mikið hefur áunnist í frá- veitumálum sveitarfélaga með allt að 70% íbúa landsins. Vandinn sé hjá fámennum sveitarfélögum þar sem algengt er að fiskvinnsla sé meginatvinnuvegur. Sá kostnaður sem fráveituframkvæmdirnar hafi í för með sér sé mörgum þeirra algerlega ofviða og því hafi menn farið að leita ódýrari lausna. „Mér finnst menn hugsa allt of mikið um ytri end- ann, hvað fari endanlega út í viðtakann en minna um hvað fer ofaní holræsin," segir Kristján Bald- ursson hjá Vatnsleysustrandarhreppi. Töldum rétt að leita fleiri umsagna Sveinbjörn Steingrímsson, bæjartækni- fræðingur í Dalvíkurbyggð, segir að farið hafi verið að huga að fráveitu- málunum fyrir nokkrum árum. Þá hafi verkfræðistofan Línuhönnun unnið ákveðna forathugun og ágæta úttekt út frá forsendum sem gerðu það að verkum að kostnaður við verkefnið hafi verið áætlaður um eða yfir 200 milljónir króna. Þetta var áður en Dal- víkurbyggð var mynduð úr fleiri sveit- arfélögum og miðaðist þessi kostnaður við um 1.500 manna sveitarfélag. Sveinbjörn segir að talið hafi verið rétt að leita umsagnar frá fleirum. Frá því Sveinbjörn að athugun Línuhönnunar var gerð hefur Dalvíkurbær sameinast Árskógs- hreppi og Svarfaðardalshreppi og nú eru þétt- býlisstaðirnir í sveitarfélaginu þrír en ekki einn. Sveinbjörn segir að á þessum tíma hafi orðið talsverðar breytingar á atvinnuháttum, einkum eftir að rækjuvinnslu hafi verið hætt. Nú sé far- ið að ræða um að fyrirtæki taki þátt í eða annist hreinsun frárennslis þeirra í stað þess að láta sveitarfélögunum það algerlega eftir. Dæmi um það er kjúklingabú, sem starfrækt er í Dalvíkurbyggð og annast sjálft um frárennslismál sín. Steingrímsson, bæjartæknifræðingur í Dalvíkurbyggð. stað en eldri áætlanir hafi verið byggðar á. Hugmyndir Einars gangi út á grófsíun skolps og að lengja útrásir en að bíða með að byggja hreinsivirki, að minnsta kosti þar til komi í Ijós hvort þeirra sé þörf. Reynist ekki þörf fyrir þann búnað verði kostnaðurinn mun minni og það geti skipt mjög miklu fyrir viðkomandi sveitar- 28

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.