Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Side 4

Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Side 4
4 G E S T U R Hulda Emilsdóttir og Sigriður Guðmundsdóttir. dóttir býr yfir talsverðri „kó- mík“ og fjöri. Sigríður Guð- mundsdóttir og Hulda Emils- dóttir hrifu áheyrendur með túlkun sinni á tveim lögum, sem vafalaust eiga eftir að ná miklum vinsældum hér á landi; frammistaða þeirra var með ágætum. Þær hafa reglu- Þuríður og Jón. lega skemmtilegar og viðfeldn- ar raddir, og eiga mikla fram- tíð fyrir sér. Enn skiptir um svið. Soffía Karlsdóttir, íklædd austur- landabúningi, syngur íslenzkan texta við þekkt dægurlag og tekst með ágætum að bregða dulrænum, austurlandablæ yf- ir túlkun sína. Þuríði Pálsdóttur og Jón iSigurbjörnsson þarf ekki að kynna, jafn glæsilegan orðstýr og þau hafa getið sér. Það er unun að heyra meðferð þeirra á lögunum, sem þau sungu. Framkoma þeirra var öll liin glæsilegasta. Rúrik Haraldsson og Soffía Karlsdóttir fóru með smellinn gamanþátt, sem nefnist í toll- inum, og vöktu verðskuldaða kátínu. Aldrei hefur söngur Ingi- bjargar Þorbergs verið með slíkum ágætum og á þessari skemmtun. Rödd hennar og túlkun, sérstaklega á laginu Softly, Softly, var með slíkurn ágætum, að fátítt er. Eftir þessa frammistöðu ber Ingi- björg höfuð og herðar yfir aðr- ar dægurlagasöngkonur. Hug- ljúf var og túlkun hennar á laginu Litil stúlka i lágum skóm. Alfreð Clausen. Aftur birtust þau Soffía og Rúrik í gamanþætti um heim- komu næturhrafnsins, og sungu bráðfyndnar gamanvísur. Jóhann Möller söng prýði- lega spánska lagið Granada, og dans þeirra Guðnýjar Péturs- dóttur og Bjargar Bjarnadótt- ur var glæsilegur og listrænn. Dansflokkur íslenzkra tóna sýndi suðurhafseyjadans, ynd isfagran; Elsa Pétursdóttir dansaði „sóló“ lipurt og smekk- lega. Alfreð Clausen söng ágæt- lega suðrænt ástarljóð. Að lokum komu allir skemmtikraftarnir fram og sungu kveðjuljóð. Áhorfendur þökkuðu þeim prýðilega skemmtun með dynjandi lófa- taki. AÐ BAKI SÝNINGETNNI liggur mikið erfiði og fyrir- höfn, enda er hún öll hin Ingibjörg Þorbergs. hinn skemmtilegasta blæ. íslenzkir tónar hafa unnið sér mikinn frama með þessari sýningu. Hún er góð skemmt- un, og hún flytur eitthvað fyr- ir alla! Hawai-dansmeyjarnar. glæsilegasta. Það er ánægjulegt að sjá, hversu mikið við eig- um af skemmtikröftum, sem vekja myndu eftirtekt hvar- vetna í heiminum. Hita og þunga dagsins ber hljómsveitarstjórinn, Jan Moravek, sem um langt skeið hefur lagt geysi mikla vinnu og vandvirkni í sýninguna. En þess ber að gæta, að kraftarn- ir, sem hann hefur notað sér til aðstoðar, eru hinir beztu. Leiktjöld Lothar Grundt eru smekkleg og vel unnin, og margbreytileg ljós gefa þeim o

x

Vikublaðið Gestur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.