Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Síða 6

Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Síða 6
6 G E S T U R sem hún nálgaðist takmark sitt, því meir gætti ótta hjá henni; ótta við greiðsluna, sem hún yrði að inna af hendi fyrir skuld sinni, hver myndi sú greiðsla verða? Hún gat heyrt orð Bruce, þegar hann sæi hana koma: ,.Ég vissi, að þú myndir koma. Þess vegna beið ég rólegur. Og nú ertu þá kom- in“. Og hvað myndi hann segja næst þessu? Nú stóð hún fyrir framan húsið. Hann hafði alltaf sagt, að hann myndi aldrei flytja þaðan; þar hefði faðir hans búið; þar vonaðist hann til, að hans eigin sonur myndi búa ... Það fór hrollur um hana. Það var undarlegt, að sólin skyldi hella geisl- um sínum yfir þetta hús. Þetta ískalda hús, sem enginn sólargeisli megnaði að ylja upp ... „Ronald Lane skjátlaðist |þá eftir allt saman", sagði hún við sjálfa sig. „Þetta var vitleysa, þrátt fyrir allt ... að koma hingað. Þú þekkir ekki Bruce, Ronald. Hann lætur mig aldrei lausa framar. Þú hefur misst mig, Ronald“. Angistin var líkust brimsköflum, sem skullu yfir liana, þar sem hún stóð á steintröppunum — henni fannst hún þegar vera á valdi Bruce. Hún hringdi dyrabjöllunni, og hjart- að hamraði hraðar en nokkru sinni fyrr í brjósti hennar, meðan hún beið. Hún fann kulda hússins breiða úr sér og bjóða hana velkomna, gráðugt ... Slátraradrengur hjólaði framhjá og blístraði glaðlegt lag fyrir munni sér; hún öfundaði hann af áhyggjuleysinu. DYRNAR OPNUÐUST. Eldri kona með kappa og svuntu stóð og starði á hana. Augnaráð hennar var hvorki undrandi eða áhugasamt. Hún leit ósköp álíka út og ráðskona, sem Bruce var líklegur að hafa ráðið til sín. „Já?" sagði konan. „Mig langaði til þess að hafa tal af ----". Varir Myru neituðu stundarkorn að hlýða, „----tala við herra Thorne. Er hann heima?" „Herra Thorne?" „Já“. „Hann býr ekki hérna". Myra riðaði við. „Já, en — hann bjó þó hérna . .. fyrir tíu árum?" Skyndilega lifnaði yfir andliti kon- unnar: „Æi, hann, jál Ég var næstum alveg Kvennaþáttur Nýjasta tízkan er alltaf fallegust, þótt hún sé nokkuð frá- brugðin því, sem hún var fyrir skömmu. Og hér sjást nokkrir kjól- ar af nýjustu tízku. búin að steingleyma því. Nei, hann dó í bifreiðarslysi. Það sagði fólkið, að hann hefði ekið allt of hratt, af því að hann hefði ætlað að ná konunni sinni — hún stakk nefnilega af frá honum — og svo ók bifreiðin út af veginum við Thompson-horn ... já, það hljóta að vera að minnsta kosti tíu ár síðan .. . þér hafið áreiðanlega komið auga á hvíta gerðið, sem er einmitt í beygjunni; það var sett uj)p þarna rétt eftir slysið ...". * * * Fljót löguð eplakaka. 6—8 epli 2—3 dl sykur 2 tesk kanel jj 1 dl rasp 2 matsk smjör. Ejjlin eru flisjuð, kjarnahúsið tekið úr og epl- in skorin í þunnar sneiðar. Ejalin ent lögð í f smurt mót með sykur og kanel lögum á milli,' raspinu stráð yfir og smjörið sett í litlum bit- um ofan á. Kakan bökuð í ofni við jafnan hita^j í 20 mínútur eða þangað til eplin eru meyr. ". \

x

Vikublaðið Gestur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.