Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Side 9

Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Side 9
G E S T U R 9 ANGELA er ung, munaðarlaus stúlka, senr tvisvar á ári heimsækir aldr- aða vinkonu foreldra sinna á Branford-óðalið. Heimasætan, Meg, er ást- fangin af ungurn stjórnmálamanni, Ken Marley, sem hins vegar virðist hrifnari af Angelu. Angela dregst ósjálfrátt að unga manninum, og ákveður að vinna ástir hans. En Meg á sterkan bandamann, þar sem er Klara frænka hennar, sem sýnir Angelu andúð sínu í mörgu. Angela brýtur mikið heil- ann um fortíð sína, henni finnst dularfullur dauðdagi móður sinnar, og þeirri hugsun skýtur upp hjá henni, hvort hún geti ekki verið enn á lífi, en dulizt einhverra hluta vegna. Gæti frú Brandon ekki verið nróðir hennar? Miili þeirra Meg og hennar hefur frá |þvf fyrsta ríkt nokkur kuldi og gagnkvænr andúð, senr fær útrás, er Meg skynjar tilraunir Angelu í þá átt að ræna hana Ken. Þær gera sakirnar upp, Meg biður Angelu að sleppa honunr við sig, en Angela telur hana ekki eiga neinn einkarétt á Ken. Það var henni alltaf styrkur að segja þetta við sjálfa sig. Þetta var hvatn- ingin, sem hafði reynzt henni vel allt frá því að hún herjaði á krakkana í nágrenninu með aurkasti og steinum. Og það dugði henni prýðilega enn þann dag í dag. Hún gekk inn í upplýstan salinn og skeytti ekkert um að taka eftir nöfn- unum á fólkinu, sem Meg kynnti fyrir henni. Hún tók sér stöðu undir krist- alsljósakrónunni og brosti. Vingjarnleikinn stafaði blátt áfram út frá henni eins og svo oft áður. Frúrnar, sem voru þarna, komust ekki hjá að veita því eftirtekt, að hún var elskulegasta stúlka, en hvers vegna í ósköpunutn hafði Meg aldrei áður kom- ið með hana? Eiginmenn þeirra og bræður, sem þarna voru saman komnir vegna hátíðarinnar, þyrptust hins veg- ar utan um hana. Aðdáunin verkaði eins og áfengi á hana, svo að hún tal- aði og hló, rétt eins og hún þekkti alla. En áhrifin vörðu ekki lengi. Kom það nokkru sinni fyrir, að þau vörðu lengi. I þetta skiptið voru það Meg og Ken, sem eyðilögðu þau. Þau stóðu í hinum enda salarkynnanna og fólk tal- aði við þau og um þau, eins og þau væru eitt. Angela gerði sér skyndilega ljóst, hversu einmana hún í rauninni var. Sjálfstraustið hvarf henni smátt og smátt. Þegar Ken tók að ganga um meðal fólksins og rabba við hvern og einn, fylgdi Meg í kjölfar hans eins og ekk- ert væri sjálfsagðara. Angela sneri sér undan og brosti til karlmanns, sem stóð rétt hjá henni. Hann brosti aftur á móti til hennar, en þietta voru hin verstu mistök, jafn- skjótt og hún gerði sér ljóst, að hann var unnusti Kitty Perry, sem var ein bezta vinstúlka Meg. Hún forðaði sér í burtu eins fljótt og hún gat, en komst ekki. hjá því að heyra Kitty segja við vinkonu sína: „Sástu þetta? Vissulega er bros hennar töfrandi. En henni er samt hollast að vera ekkert að flaðra upp um hann Ronny minn!“ Angela hélt sig líka fjarri Ronald. Stundarkorni síðar upp- skar hún ofurlítil laun erfiðis síns, þegar Ken nam stundar- korn staðar við hlið hennar. Hann virtist hafa týnt Meg sem snöggvast. „Hvernig mér gengur?“ spurði Ken. „Mér fellur þessi hluti kosningabar- áttunnar bölvanlega. Ég vildi heldur flytja ræðu opinberlega og fá tómata í haúsinn, heldur en þetta“. i „Þarftu nauðsynlega að bíða eftir blómaþvaðrinu?" spurði Angela. „Ég ætla að stofna til fundar á öðr- um stað á þeim tíma“, svaraði hann alvarlegur í bragði. • ANGELA SVIPAÐIST um og kom auga á Meg í hæfilegri fjarlægð. „Gæt- irðu farið núna?“ spurði hún. Ken kinkaði kolli. „Jafnskjótt og Meg kemst frá húsmóðurinni“. „Ó, Meg. Hún verður að vera eftir“, skrökvaði Angela blíðri rödd. „Hún lofaði að hjálpa henni til við eitthvað. Ég sagði henni, að vel gæti farið svo, að við styngjum af“. „Fyrirtak", sagði Ken. „Ég ætla þá að kveðja“. „Þú verður þá klófestur“y sagði Angela í aðvörunarróm. „Á ég að flytja skilaboð frá þér, — að þú hafir orðið að flýta þér á áríðandi fund? Þú gætir komizt út um hliðardyr og beðið mín í bifreiðinni“. „Þú ert mér sannkölluð hjálpar- hella“, sagði Ken á leiðinni til dyra. Angela varp öndinni léttar, þegar hann var kominn í hvarf. Hún gekk til Meg og húsmóðurinnar. „Ken finnst það reglulega leiðinlegt, en hann varð að flýta sér af stað til þess að mæta á áríðandi fundi“, sagði hún og bætti síðan við nokkrum þakkar- og afsök- unarorðum fyrir hönd Ken. „Ég vissi ekki, að hann þyrfti neitt að flýta sér“, sagði Meg og leit tví- ræðu augnaráði á Angelu. „Hann sagði, að þú myndir vera fulltrúi hans hér á meðan“, svaraði Angela. Þetta ætti að falla í góðán jarðveg hjá Meg. Hún færði sig að stól og settist meðan Meg hafði auga með henni. En jafnskjótt og Meg sneri sér undan, stóð Angela á fætur. Hún laumaðist gegnum mannfjöldann og fram í for- stofu. Ken beið hennar hjá bifreiðinni. Jafnvel smávægileg snerting handa hans fullvissaði hana um, að hann væri öllum öðrum ólíkur. Hún leit upp í stjörnutindrandi him- ininn. „Þetta er of yndislegt kvöld til þess að geta kúldazt inni“, sagði hún. „Við skulum fara upp einhverja göt- una og síðan niður aðra, og vita hvert við komumst“, sagði Ken. Bifreiðin fór letilega af stað. Hún fann, án þess að líta á hann, að hann horfði á hana. Hrifningin gagntók hana að nýju. Hún mælti ekki orð frá vörum, en þögnin óf vef milli þeirra. Framhald i nœsta blaði.

x

Vikublaðið Gestur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.