Hús & Búnaður - 01.03.1967, Qupperneq 3
SKIPULAGNING
ÍBÚÐA
Það hefur verið furðu lítið um það, að fólk legði niður
fyrir sér og skipulegði húsgagnakaup ó heimilum sínum.
Oft er rokið í að kaupa, að meira eða minna leyti af
handahófi, til þess að bceta úr þörfum líðandi stundar.
Er þess þó ekki œtíð gœtt hvað hagkvœmast er eða
hentar bezt því umhverfi sem fyrir er.
Engum dettur lengur í hug að byggja sér hús ón þess
að hafa óður gert sér grein fyrir gerð þess, aflað sér
teikninga og annars sem til þarf. En þegar húsið er loks
tilbúið eða kannski aðeins komið undir tréverk er skipu-
lagningunni þar með lokið. Innbúið sjólft skiptir þó ekki
minna móli en hinn ytri búnaður. Þröngar íbúðir geta
orðið hinar vistlegustu, ef hvert rúm er nýtt en húsgögnin
ekki lótin taka upp óþarfa plóss. Stórar íbúðir verða
þreytandi ef ekki er vel raðað niður í þœr húsgögnum
svo að húsfreyjan þarf að hlaupa úr einum stað í annan
við húsverkin. Og það er til lítils að kaupa stór og dýr
húsgögn og flytja þau heim ef ekki reynist svo rúm fyrir
þ°u þar sem þeim hafði verið œtlaður staður.
Teiknið upp fyrirhugaða húsgagnaskipun,
mœlið út hvaða rúm h\«ert húsgagn þarfn-
ast og teiknið það inn á uppdróttinn.
Heimilið er fyrst og fremst staður þess fólks sem ó þar
heima. Húsbúnaður ó að vera sniðinn eftir þörfum þess.
Hann ó að endurspegla óhugamól þess og störf. Börnin
eiga ekki að vera ó flótta þaðan með kubba sína og
kassa. Handavinnudót húsmóðurinnar og tómstundafönd-
ur eiginmannsins ó að vera jafn velkomið og hœginda-
stóllinn eða kristalvasinn. Gestastofan, sem enginn mótti
stíga fœti í hér óður fyrr, nema ó sunnudögum, er orðið
blessunarlega úrelt hugtak. En þó þarf heimilið engu að
síður að vera snyrtilegt og fagurt, og það verður að bjóða
vini fjölskyldunnar velkomna inn í samfélag fjölskyldu-
lífsins.
Blaðinu er œtlað að koma út 1 1 sinnum á óri.
Utgefandi og ób.: Ragnar Agústsson
Híbýlafrœðingur: Snorri Hauksson
Askriftarverð: kr. 300.oo á ári
Lausasala: kr. 35.oo
Askriftarsími: 20433
Myndamót: (litmyndir) Prentmyndagerð Hafnarfjarðar
Prentun og setning: Prentsmiðja Jóns Helgasonar
Mœlið herborgið upp. Breidd oq lenqd er mœlt oq einnig er mœlt milli
horna ef sko kynni að herbergið reyndist hornskakkt. Séu línur brotnar af
dyrum eða öðru föstu þarf að mœla úl hvern lengdarflöt fyrir sig. Teikn-
ið gólfflötinn upp, merkið dyr og glugga, rafmagnstengingar, ofna og
annað slíkt inn á teikninguna. Gerið uppdrátinn í réttum hlutföllum.
En hvernig er hœgt að samrœma þetta allt? Hvernig á
að vera hœgt að verðq við kröfum eins án þess að það
verði á kostnað annars? Þegar flutt er í nýja Ibúð er vand-
inn kannski ekki svo ýkja mikill. En þegar um gamlar
íbúðir er að rœða og kannski búið að kaupa meira eða
minna af óhentugum húsgögnum áður þá vandast málið.
Og þó gildir I báðum tilfellum fyrst og fremst það sama.
Það er að heimilisfólkið setjist niður og rœði þessi mál.
Velti því fyrir sér, hvernig það vill haga innbúi sínu og
innréttingum.
í sumum tilfellum nœðist fullnœgjandi árangur á þenn-
an hátt. En við eigum líka lítt notaða ágœta starfskrafta
á þessu sviði. Húsgagnaarkitektar og híbýlafrœðingar
okkar biða eftir frekari verkefnum við að leiðbeina fólki
í þessum efnum. Það má furðu gegna að ekki skuli vera
meira leitað til þeirra en raun ber vitni. Sá óverulegi kostn-
aður sem af störfum þeirra leiddi myndi í flestum tilfell-
um fást endurgreiddur í hagkvœmari innkaupum og aukn-
um þœgindum.
GeriS hagkvœm innkaup, kynniS ykkur verS og gœSi þeirra húsgagna
sem henta ykkur, kaupiS þau siSan smátt og smátt eftir áœtlun ykkar,
eSa i einu lagi, og raSiS þeim upp eins og uppdráttur ykkar segir til um!