Morgunblaðið - 03.11.2011, Side 4

Morgunblaðið - 03.11.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Kantsteini við útkeyrslu út af endurvinnslustöð Sorpu á Dalvegi var breytt í fyrra, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Kópavogsbæ í gær. Afleiðingin af breytingunni er sú að öku- mönnum var gert auðveldara að taka ólöglega beygju inn á stöðina, gegn einstefnu. Eins og flestum er kunnugt varð alvarlegt slys við stöðina á Dalvegi 19. október þegar gámaflutningabíll tók ólöglega beygju, gegn ein- stefnu, og ók yfir hjólreiðamann sem var á leið niður stíginn, í sömu átt og bíllinn. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu var það haft sem vinnuregla að aka gámaflutningabílum inn á móti einstefnunni. Lögregla rannsakar nú slysið m.a. með tilliti til hugsanlegrar refsiábyrgðar stjórnenda. Í kjölfar slyssins vakti strax athygli að umferðarmannvirki virtust beinlínis hönnuð til að auðvelt væri að beygja inn á gámasvæðið, þrátt fyrir að það sé ólöglegt og að gatan sé í skipulagi Kópavogs flokkuð sem einstefnugata. Í deiliskipulagsuppdrætti af stöðinni sést greini- lega að teikning af kantsteininum er mjög frá- brugðin því hvernig hann er í raun og veru. Samkvæmt uppdrættinum hefði sá sem vildi aka á móti einstefnu þurft að taka krappa beygju en eins og sést á myndinni hér fyrir ofan er kantsteinninn hafður þannig að auðvelt er að taka ólöglega beygju inn á svæðið. Á hreinu að beygjan er víðari Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri fram- kvæmdadeildar Kópavogsbæjar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að Dalvegurinn hefði verið malbikaður í fyrra og við nánari eftir- grennslan bæjarins væri nú komið á daginn að um leið hefði verið gert við kantsteininn. „Og það er alveg á hreinu að beygjan er eitthvað víð- ari en hún var,“ sagði Stefán. Hann kvaðst enga skýringu hafa fengið á því hvers vegna kant- steininum var breytt með þessum hætti. Stefán ítrekaði að það væri skýrt að þarna væri bannað að aka inn óháð því hvernig kanturinn væri úr garði gerður. Kópavogur eða starfsmenn bæj- arins höfðu ekkert leyfi til að óska eftir því að honum yrði breytt. Eftirlit með að kantsteinninn sé í samræmi við deiliskipulag er í höndum bæjarins. Stefán sagði að það hefði líklega farið fram hjá öllum að honum hefði verið breytt með þessum hætti. Beygjan hefði verið of kröpp Kantsteinninn sem þarna var fyrir var brot- inn og Stefán sagði að ástæðan væri væntan- lega sú að gámaflutningabifreiðum hefði ítrekað verið ekið yfir hann. „Ég sé það bara í hendi mér. Og þeir hefðu væntanlega haldið áfram að aka yfir kantsteininn því ég held að þetta sé svo kröpp beygja að þú tekur hana ekki á svona stórum bíl,“ sagði hann. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort kantsteininum verði breytt þannig að ólöglegar beygjur verði erfiðari. Stefán sagði að engir aðrir en bílstjórar viðkomandi fyrirtækis hefðu brotið gegn einstefnunni, svo vitað væri, og að fyrirtækið hefði nú gefið skýr fyrirmæli um að hætta því. Gildra Þegar ekið er út af endurvinnslustöðinni má aðeins taka beygju til hægri, niður Dalveginn, en bannað að taka beygju upp götuna. Flutn- ingabílnum var ekið í veg fyrir hjólreiðamanninn sem lenti undir bílnum og stórslasaðist. Mynd birt með leyfi rannsóknarnefndar umferðarslysa. Kröpp Á deiliskipulagi frá árinu 2000 sést að taka hefði þurft mun krappari, ólöglega, beygju inn á stöðina. Ólögleg beygja gerð auðveldari  Útkeyrslu frá Sorpu á Dalvegi breytt í fyrra og ólögleg beygja inn á gámastöðina gerð auðveldari  Vegkanturinn hafði skemmst  Kópavogur gaf ekki fyrirmæli um breytingar  Fór framhjá bænum Árni Davíðsson, for- maður Landssamtaka hjólreiðamanna, segir að fyrirfram hefði hann ekki talið að út- keyrslan væri sérlega hættuleg fyrir hjól- andi og gangandi veg- farendur, enda hefði hann ekki haft hug- mynd um að gámaflutningabílum hefði jafnan verið ekið þarna inn. Þarna væri þó ástæða til að bæta úr, t.d. með því að mála stíginn þar sem hann fer yfir útkeyrsluna eða með því að hafa stíginn aðeins hærri en götuna. Leit ekki illa út VISSU EKKI AF INNAKSTRI Árni Davíðsson Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Það kom fram eindreginn vilji þeirra til að koma af stað verkefnum hérna. Það var náttúrlega það já- kvæða við þennan fund, bæði af hálfu iðnaðarráðherra og forstjóra Lands- virkjunar, og við bara fögnum því. Það var vissulega bent á að þetta er búið að taka langan tíma og við sem og aðrir orðnir svolítið óþolinmóðir en þetta var engu að síður góð yfir- lýsing fyrir okkur,“ segir Bergur Elí- as Ágústsson, bæjarstjóri sveitarfé- lagsins Norðurþings. Fái nauðsynlegan tíma Fjölmennur fundur var haldinn á Húsavík í gærkvöldi um atvinnumál á svæðinu þar sem Katrín Júlíusdótt- ir iðnaðarráðherra, Hörður Arnar- son, forstjóri Landsvirkjunar, og Sigríður Ingvarsdóttir frá Nýsköp- unarmiðstöð Íslands fluttu erindi. „Nú er málið bara komið á það stig að það snýst bara um samningavið- ræður við orkukaupendur og í sjálfu sér gerist náttúrlega fátt fyrr en þau mál ganga eftir og þá verður bara Landsvirkjun að fá þann tíma sem þarf til þess,“ segir Bergur. Eins og komið hefur fram hefur álfyrirtækið Alcoa hætt við að reisa álver á Bakka þar sem ekki var hægt að tryggja því næga raforku. Engin svör á fundinum „Það var mjög merkilegt að hlýða á einhliða lýsingar iðnaðarráðherra og forstjóra Landsvirkjunar á við- skiptum þeirra við Alcoa og ástæð- urnar fyrir því að þeirra mati að fyr- irtækið sagði sig frá þessu verki. Ég saknaði þess á fundinum, miðað við hvernig umræðan var hjá þeim, að fulltrúa Alcoa hefði ekki verið boðið til þess að upplýsa um sitt sjónar- horn,“ segir Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem var á meðal fundarmanna. Hann segir að engin svör hafi ver- ið gefin á fundinum um það af ráð- herra eða forstjóra Landsvirkjunar hvað stæði til að gera í atvinnumál- um svæðsins og að því leytinu til hefði í raun ekkert nýtt komið fram. „Það eina sem kom út úr þessum fundi var í rauninni staðfesting á fyrri yfirlýsingu um það að vilji manna standi til þess að nýta orkuna á svæðinu en menn eru í raun engu nær um hvernig eða hvenær,“ segir Kristján. Vilji til uppbyggingar en óvíst hvernig og hvenær  Fjölmennur fundur var haldinn á Húsavík í gærkvöldi um atvinnumál svæðisins Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Fjölmenni Fundurinn á Húsavík í gærkvöldi var ágætlega sóttur og fjöl- margir sem beindu fyrirspurnum til ráðherra og forstjóra Landsvirkjunar. Atvinnumál » Fundað um atvinnumál á Húsavík í kjölfar þess að ál- fyrirtækið Alcoa hætti við að reisa álver á Bakka. » Næsta skref er að Lands- virkjun semji við orkukaup- endur í tengslum við verk- efni. » Fjölmenni var á fundinum og hiti í sumum heimamanna, en að sögn þingmanns kom fátt nýtt fram um hvað er framundan í atvinnumálum. Ekkert þokaðist á fundi um kjör undirmanna á rannsóknarskipum Hafrannsóknastofnunar hjá rík- issáttarsemjara í gær. Fundurinn var stuttur og árangurslaus. Birgir Hólm Björgvinsson, fulltrúi í samninganefnd Sjómannafélags Ís- lands, sem fer með kjör undirmanna Hafró, segir mikið bera í milli. „Við ræddum saman lauslega en það var ekki neitt. Þetta er eiginlega á sama stað,“ segir Birgir. Verkfall hefur staðið í rúman mánuð. Sjómennirnir hafa verið án kjarasamnings í um þrjú ár og snú- ast kröfur þeirra um allt að 50% hækkun launa þegar allt er talið. Næsti fundur í deilunni hefur ekki verið boðaður. ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Í höfn Bjarni Sæmundsson er eitt skipa Hafrannsóknarstofnunar. Hafródeil- an í hnút Samningafundur í gær án árangurs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.