Morgunblaðið - 03.11.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.11.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 Uppi varð fótur og fit á frétta-stofu Ríkisútvarpsins í fyrra- dag þegar fréttist að George Pap- andreou, forsætisráðherra Grikkja, vildi leyfa löndum sínum að greiða atkvæði um hvort þeir ættu taka á sig þann nið- urskurð sem hin evruríkin telja nauðsyn- legan til að evr- an haldi velli.    Sem kunnugt er tíðkast það ekki íEvrópusambandinu að almenn- ingur sé spurður álits, hvorki á stjórnarskrármálum, nýrri mynt eða öðru.    Í þessum anda kom Sarkozy, for-seti Frakklands, fram og sagði alltaf gott að fá álit almennings, en öll ríkin þyrftu að fallast á þær ráð- stafanir sem taldar væru nauðsyn- legar.    Það er með öðrum orðum mik-ilvægt að heyra í almenningi, en þó er enn mikilvægara að heyra ekki í honum.    Og Jóhanna Sigurðardóttir varekki síður slegin en fréttastof- an og forysta ESB. Hún sagði menn „horfa náttúrlega með nokkrum kvíða til þess hvað gerist ef þetta verður nú samþykkt [svo] í þjóð- aratkvæðagreiðslu.“ En menn væru samt, fannst henni, „alveg bærilega bjartsýnir á framtíð Evrópu og evru“.    Viðbrögð Jóhönnu eru kunnug-leg. Hún er jafn hlynnt því og Sarkozy að almenningur fái að segja sitt álit, bara ekki þegar álitið getur haft áhrif á evruna og Evrópusambandið.    Eða Evrópusambandsaðildina,samanber Icesave. Spyrjum kjós- endur, en þó ekki STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.11., kl. 18.00 Reykjavík 3 alskýjað Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri 2 rigning Kirkjubæjarkl. 4 rigning Vestmannaeyjar 4 rigning Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 9 skúrir Ósló 10 skýjað Kaupmannahöfn 7 þoka Stokkhólmur 10 skýjað Helsinki 11 skýjað Lúxemborg 16 skýjað Brussel 13 léttskýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 12 léttskýjað London 13 léttskýjað París 17 heiðskírt Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 12 léttskýjað Berlín 12 heiðskírt Vín 8 skýjað Moskva 6 alskýjað Algarve 17 skúrir Madríd 17 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 22 skýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 13 léttskýjað Winnipeg 2 heiðskírt Montreal 12 léttskýjað New York 11 heiðskírt Chicago 15 skýjað Orlando 23 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:17 17:07 ÍSAFJÖRÐUR 9:35 16:58 SIGLUFJÖRÐUR 9:19 16:41 DJÚPIVOGUR 8:50 16:33 FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Svört atvinnustarfsemi veldur sam- félaginu miklu tjóni og er jafnframt talsvert umfangsmeiri en áður var talið. Þörf er á viðhorfsbreytingu meðal almennings til að koma í veg fyrir þetta, en auk þess skortir úrræði til að taka á og koma í veg fyrir skattalagabrot fyrirtækja. Þetta eru helstu niðurstöður um- fangsmikillar rannsóknar sem Ríkis- skattstjóri hóf í sumar í samstarfi við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Um 12% starfsmanna lítilla og meðalstórra fyrirtækja í landinu eru í svartri vinnu. Glötuð verðmæti samfélagsins vegna vantal- inna gjalda nema ríflega 13,8 millj- örðum króna á ári. „Ástandið er töluvert verra en við töldum og það eru auðvitað mikil von- brigði að horfast í augu við þá stað- reynd að jafnhátt hlutfall landsmanna sé á duldum launum og raunin er,“ sagði Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri þegar hann kynnti niður- stöður verkefnisins á blaðamanna- fundi í gær. Í ólagi hjá 55% fyrirtækja Yfir 2.000 fyrirtæki um allt land voru heimsótt í sumar og kannaður bæði rekstur sem og aðstæður rúm- lega 6.000 starfsmanna. Hjá meira en helmingi þeirra, 55%, reyndist pottur brotinn. Svört vinna reyndist vera mest á Vestfjörðum, 18,5%, en minnst á Norðausturlandi, 8,2%. Yfirleitt voru brotalamirnar ekki alvarlegri en svo að talið var nægj- anlegt að gefa leiðbeinandi tilmæli um úrbætur. Oftast var þar um að ræða frávik vegna tekjuskráningar sem að sögn Skúla mátti oftar en ekki rekja til þekkingarleysis. Af 2.024 fyrirtækjum sem voru skoðuð þótti hinsvegar tilefni til að taka 119 til nánari skoðunar vegna verulegra formgalla á skilum skatta og gjalda. 47 fyrirtæki urðu uppvís að skattsvikum eða refsiverðum brotum og sæta í kjölfarið sérstakri skatt- rannsókn. Í þeim tilfellum var fyrst og fremst um að ræða svarta vinnu og vanskil á virðisaukaskatti. Í næstu viku verður fundað um áframhaldandi meðferð þessara 47 fyrirtækja en að sögn Skúla hefur ekki verið ákveðið hvort eða hvernig refsingum verði beitt. „Við höfum tal- að um að það þyrfti skjótvirkari úr- ræði, svipað og umferðarlögreglan hefur með beitingu sekta.“ Aðspurður hvort hann teldi að skattaumhverfið hefði áhrif á umfang svikanna sagði Skúli að hefðu menn skýran ásetning um að svíkja undan sköttum þá virtist ekki skipta máli hversu há skattprósentan væri. Hann sagði líkur fyrir því að fjárhagsörð- ugleikar spiluðu inn í hjá sumum rekstraraðilum en ein meginástæða fyrir vægari brotunum væri hinsveg- ar almennt þekkingarleysi. „Sú staðreynd að gera þurfti at- hugasemdir við ríflega helming fyr- irtækja sýnir að þekking þeirra sem taka að sér þá ábyrgð að reka fyr- irtæki þarf að vera meiri,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. Það er því sameiginleg niðurstaða þeirra sem að verkefninu komu að bregðast þurfi við með aukinni fræðslu til stjórnenda fyrirtækja sem og átaki til að breyta viðhorfi starfs- fólks, stjórnenda og almennings til svartrar atvinnustarfsemi. Launafólk og lífeyrissjóðir tapa Gylfi Arnbjörnsson benti á að tapið vegna svartrar atvinnustarfsemi jafn- gilti 2% í tekjuskatti og því bæru allir landsmenn byrðarnar. Glötuð verð- mæti, vegna vantalinna skatta, gjalda og tekna í tengslum við svarta vinnu hjá litlum og meðalstórum fyrirtækj- um, eru á ársgrunni 13,8 milljarðar króna eins og áður segir. Fyrst og fremst er það ríkissjóður sem tapar, alls rúmlega 6 milljörðum króna. Lífeyrissjóðirnir tapa 3 millj- örðum á ári vegna svartrar vinnu, tapaður réttur launamanna nemur tæpum 2 milljörðum auk þess sem sveitarfélög tapa 1,6 milljörðum á ári og stéttarfélög tæpum milljarði. Þá bentu talsmenn SA á að þetta skekkti verulega samkeppni á mark- aði. „Það er algjörlega óþolandi fyrir þau fyrirtæki sem standa sig að vera í samkeppni við svarta atvinnustarf- semi. Það er kristaltær stefna SA að svona lagað gengur ekki,“ sagði Vil- mundur Jósefsson, formaður SA. Þetta er umfangsmesta skoðun sem ráðist hefur verið í á svartri at- vinnustarfsemi á Íslandi. Um áramót- in verður staðan endurmetin. Milljarðar tapast vegna svartrar atvinnustarfsemi  Umfangið meira en búist var við  Þarf fræðslu og úrræði til að taka á brotum Ves tfir ðir Ves tur lan d Su ður lan d Su ður nes Au stu rla nd NV -lan d Hö fuð b.s v. NA -lan d Einstaklingar og svört vinna eftir landshlutum 4.000 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 Starfsmenn í svartri vinnu (samtals 737) Aðrir starfsmenn (samtals 5.430) Niðurstöður benda til þess að hlutfall svartrar vinnu hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum sé að meðaltali 12% Alls: 211 Alls: 238 Alls: 745 Alls: 189 Alls: 250 Alls: 200 Alls: 3.883 Alls: 451 39 36 107 26 34 27 431 37 Fjöldi starfsmanna í svartri vinnu 13,8 milljarðar króna tapast árlega vegna svartrar atvinnustarfsemi. 50% fyrirtækja reyndust ekki fram- kvæma skil skatta og gjalda rétt. 47 fyrirtæki sæta skattrannsókn eftir að upp komst um refsiverð brot. ‹ SVÖRT ATVINNA › » Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið frá fund- inum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.