Morgunblaðið - 06.12.2011, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2011
Vilt þú bæta heilsuna þína?
Auka orkuna eða koma þér í form?
Prófaðu Herbalife!
Hafðu samband:
774 2924, Baldur.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Gisting
Gisting allt árið í notalegum
bústöðum
Heitir pottar og notalegheit.
Þú átt það skilið að slappa af fyrir
jólin. Fjölskyldur og hópar.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Tómstundir
Fjarstýrðar innanhússþyrlur og
margt fl.
Mikið úrval af fjarstýrðum innanhúss-
þyrlum á góðu verði. Netlagerinn slf.
Verslun í Dugguvogi 17-19, 2. hæð.
Sími 517-8878. Vefsíða Tactical.is
Frí heimsending til jóla.
Plastmódel í miklu úrvali
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
AKUREYRI
Höfum til leigu 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, sími 897 5300.
Heilsa
Málarar Alhliðamálningarþjónusta.
Getum bætt við okkur verkefnum, til-
boð eða tímavinna. Vönduð vinnu-
brögð, hagstæð verð í boði og góðir
greiðsluskilmálar.
Sími 823 8547 og 659 9676.
Málarar
Elsku afi, núna
ertu farinn og líður örugglega
betur þar sem þú ert núna.
Takk fyrir öll árin og allt
sem þú kenndir mér. Alltaf svo
rólegur og þolinmóður.
Þær voru margar sögurnar
sem þú last fyrir mig á kvöldin.
Allar ferðirnar saman upp í
hesthús og að gefa hænunum
og í hverri einustu spurðir þú
mig hvað þessi eða hinn fuglinn
héti. Alla útreiðartúrana, ég
alltaf berbakt því það var bara
til einn hnakkur og stundum
hafði ég ekkert beisli heldur og
þá átti ég að halda í faxið en ég
hélt alltaf svo laust því ég vildi
ekki hárreyta hestana.
Þú gafst mér mína fyrstu og
einu veiðistöng og kenndir mér
að veiða. Sama dag og ég fékk
veiðistöngina fórum við á ára-
bátnum út á vatn að vitja um
netið og ég prufukeyrði veiði-
stöngina fínu og veiddi þá líka
þennan risastóra silung.
Einu sinni fórum við á bátn-
um en þú varst þá nýkominn úr
uppskurði og baðst mig að róa
alla leiðina sem ég gerði, en
það var mikið puð fyrir mig,
Loftur Jóhannsson
✝ Loftur Jó-hannsson fædd-
ist á Eyrarbakka 13.
desember 1923.
Hann lést á Hrafn-
istu í Reykjavík 12.
nóvember 2011.
Útför Lofts fór
fram frá Selfoss-
kirkju 19. nóvember
2011.
bara 9 eða 10 ára,
en ég var svo stolt
af þessu, fannst ég
alveg vera að
bjarga málunum.
Þær voru líka
ófáar útilegurnar
sem þið amma fór-
uð með okkur
Bjögga frænda í.
Ég hugsa oft til
þess eftir að ég
eignaðist mín börn
og bílferðirnar með þau í aft-
ursætinu, hversu þolinmóð þið
voruð. Á þeim tíma voru bíl-
belti aðeins til skrauts og við
Bjöggi kútveltumst í aftursæt-
inu í einhverjum leikjum og
það sem okkur þótti skemmti-
legast var að hendast með
rassinn ofan í gólf og með lapp-
irnar uppi í sætinu með tilheyr-
andi brölti að komast upp aft-
ur.
Það hlýtur að hafa verið
pirrandi að vera í framsætinu
þegar þessi leikur stóð sem
hæst en aldrei heyrðum við
kvartað. Mér finnst eins og við
höfum ferðast um allt Ísland og
margir staðir vekja upp minn-
ingar um þessi ferðalög.
Takk, elsku afi minn, og
bestu kveðjur til ömmu.
Bjartur máninn á himni skín
sendir geisla inn um gluggann minn.
Þó þú sért ekki hér
ég finn fyrir þér
í hjarta mér.
(Hjördís Linda Jónsdóttir.)
Lilja Leifsdóttir
og fjölskylda.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 28.
nóvember. Spilað var á 13 borðum.
Meðalskor: 312 stig. Árangur N-S:
Valdimar Ásmundss. – Björn Pétursson 412
Ingibjörg Stefánsd. – Ingveldur Viggósd.
341
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 338
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónsson 333
Árangur A-V:
Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrímss. 382
Bergur Ingimundarson – Axel Lárusson 362
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 352
Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 338
Einni umferð ólokið
í Guðmundarmótinu
í Gullsmára
Spilað var á 13 borðum fimmtu-
daginn 1. desember. Úrslit í N-S:
Þorsteinn Laufdal – Páll Ólason 332
Gunnar Sigurbjss. – Sigurður Gunnlss. 328
Pétur Antonsson – Örn Einarsson 320
Leifur Jóhanness. – Guðm. Magnússon 291
A/V:
Ármann J. Lárusson – Guðl. Nielsen 342
Elís Helgason – Gunnar Alexanderss. 305
Sigurður Njálss. – Pétur Jónsson 302
Jónína Pálsd. – Sveinn Sigurjónsson 292
Og eftir fjögur skipti (af fimm) í
Guðmundarmótinu er staða efstu
para þessi:
Ármann J. Láruss. – Guðl. Nielsen 1325
Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 1280
Sigurður Gunnlss. – Gunnar Sigurjss. 1237
Elís Helgason – Gunnar Alexanderss. 1212
Pétur Antonsson – Örn Einarsson 1152
Leifur Jóhanness. – Guðm. Magnússon 1132
Haustsveitakeppni
Bridsfélags Reykjavíkur
Að loknum 6 kvöldum af 8 er stað-
an í fyrstu deild þessi:
Málning 322
Sparisjóður Siglufjarðar 312
Sölufélag Garðyrkjumanna 311
Staðan í annarri deild er þessi:
Grant Thornton 280
Bergur 279
Ólafur Steinason 271
Grant Thornton og Bergur flytjast
upp í fyrstu deild næsta þriðjudag.
Reykjanesmót í tvímenningi
Reykjanesmót í tvímenningi verð-
ur haldið sunnudaginn 11. des., á
Mánagrund í Reykjanesbæ og hefst
kl. 13.
Auk hefðbundinna verðlauna fær
efsta parið þátttökugjald í tvímenn-
ingi á Bridshátíð. Þáttökugjald er
5.000 kr. á parið. Skráning hjá Erlu
s. 659 3013, Garðari s. 893 2974 og
Lofti s. 897 0881.
Sveit Birgis Arnar
Kópavogsmeistari
Nú er Aðalsveitakeppni Brids-
félags Kópavogs lokið eftir æsi-
spennandi lokaumferð sl. fimmtu-
dag. Þrjár sveitir áttu möguleika á
efsta sætinu og spiluðu tvær þeirra
innbyrðis í síðustu umferðinni. Þar
tryggði sveit Birgis Arnar Stein-
grímssonar sér sigurinn með því að
vinna sveit Hjálmars S. Pálssonar
með 19-11. Lokastaða efstu sveita
varð þessi.
Birgir Örn Steingrímsson 155
Þorsteinn Berg 151
Hjálmar S. Pálsson 149
Sveinn Símonarson 142
Vinir 142
Fimmtudagana 8. og 15. des verð-
ur tveggja kvölda jólatvímenningur.
Veitt verða verðlaun fyrir saman-
lagðan árangur en pör eru ekki
bundin af því að mæta bæði kvöldin.
Spilaður verður Monrad-barómeter,
sjö umferðir með 4 spilum, alls 28
spil. Spilastaður Gjábakki, Fann-
borg 8.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Nú er lokið fjögurra kvölda tví-
menningskeppni. Þar sem þrjú
bestu kvöldin gilda til verðlauna. Úr-
slit urðu þessi.
Björn Arnarss. - Jörundur Þórðarson 836
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 810
Oddur Hanness. - Árni Hanness. 793
Sigurjóna Björgvinsd. - Gunnar Guðmss. 733
Ragnar Haraldsson—Bernhard Linn 707
Sunnudaginn 4/12 var spilað á níu
borðum. Hæsta skor kvöldsins í
Norður/Suður:
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldsson 299
Björn Arnarson - Jörundur Þórðarson 258
Þorleifur Þórarinss. - Haraldur Sverriss. 224
Austur/Vestur
Sigurjóna Björgvinsd. - Gunnar Guðmss. 283
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 251
Bergljót Aðalstd. - Björgvin Kjartanss. 219
Sunnudaginn 11/12 verður spilað-
ur eins kvölds tvímenningur. Það er
síðasta spilakvöld fyrir jól. Við byrj-
um aftur að spila á nýju ári sunnu-
daginn 8. janúar 2012.
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19
Eldri borgarar Hafnarfirði
Þriðjudaginn 29. nóvember var
spilað á 20 borðum hjá FEBH
með eftirfarandi úrslitum í N/S:
Ólafur Gíslason – Guðm. Sigurjónss. 384
Gróa Þorgeirsd. – Kristín Óskarsd. 378
Óskar Ólafss. – Magnús Jónsson 356
Örn Einarss. – Pétur Antonsson 336
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 328
A/V.
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 402
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 395
Friðrik Hermannss. – Skúli Bjarnas. 380
Bjarnar Ingimars – Bragi Björnss. 356
Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 355
Amma mín,
Guðrún Arnórs, er farin á vit
forfeðranna. Orðstír deyr aldr-
ei, þess er sér góðan gat. Það
má með sanni segja að þessi
orð eigi vel við um ömmu. Hún
gat sér gott orð hvar sem hún
kom og var hugulsöm við alla.
Amma var stolt af sínum og
fjöskyldulífið var henni mikil-
vægt. Hún fylgdist vel með og
var alltaf með á nótunum hvað
synir hennar og barnabörnin
voru að bardúsa, hvar sem þau
voru. Hún og afi voru svo að
segja óaðskiljanleg og þegar
þau þurftu að vera hvort á sín-
um staðnum gátu þau ekki beð-
ið eftir að hittast á ný. Svona
var þetta enn eftir rúmlega 62
ár í sambúð, þar af 59 í hjóna-
bandi. Það segir sitt um ástríki
og aðdáun, enda talaði hún um
að hver koss og hvert faðmlag
væri sem sprek á ástareldinn.
Alltaf heilsaði ég og kvaddi
ömmu innilega, enda vorum við
glöð að hitta hvort annað og
hlökkuðum bæði til að hittast
aftur þegar annað fór. Mikið á
ég eftir að sakna þín, elsku
amma mín. Hvíl þú í friði. Þinn
sonarsonur,
Sigurjón.
Hún tengdamóðir mín fyrr-
verandi er fallin frá eftir stutta
sjúkrahúslegu og langt um ald-
ur fram. Einhvern veginn var
ég ekki við þessu búin þegar ég
heyrði í henni fyrir fáeinum
dögum og er þess vegna í
Guðrún Arnórs
✝ Guðrún Arnórsfæddist í
Reykjavík 9. júní
1933. Hún lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans 14.
nóvember 2011.
Útför Guðrúnar
fór fram frá kirkju
Óháða safnaðarins
23. nóvember 2011.
mestu erfiðleikum
að kveðja hana al-
mennilega, þakka
henni fyrir svo
margt sem hún var
mér í gegnum tíð-
ina og gleymdist
að þakka nægjan-
lega fyrir. Ég vona
samt innilega að
hún viti hversu
mikils ég met hana
og hennar aðstoð
við mig og mína.
Það var gott að leita til Guð-
rúnar Arnórs ef vandræði voru
með handavinnu og prjónaskap
og hún fádæma ráðagóð og
lausnamiðuð, fann alltaf leiðina
út úr vandræðunum. Allt gerði
hún fumlaust og í rólegheitum,
gaf sér þann tíma sem þurfti en
ekki neitt framyfir það. Hún
var góð í tungumálum, talaði
bæði tungu manna og engla,
hún hafði einnig yndi af blóma-
og garðrækt, útiveru og dansi
svo fátt eitt sé nefnt. Hún var
hlý en frekar fámál, sérstak-
lega um sín málefni, það amaði
aldrei neitt að henni, en hún
stóð staðföst að baki sínum.
Eiginmann sinn dáði hún
alla tíð svo aldrei bar skugga
þar á og strákana sína, fannst
reyndar svolítið hart að eign-
ast ekki stelpu, en eins og hún
sagði oft í góðu tómi: „Hann
Siggi minn og ég kunnum ekki
að búa til stelpu“ og þar við
sat. Mér var hún alltaf eins og
önnur móðir þegar á þurfti á að
halda, hún hélt svo áfram og
tengdaforeldrar mínir báðir að
viðhalda sambandi við mig eft-
ir skilnaðinn. Þá mest í geng-
um son minn sem hún reyndist
alltaf mjög vel og þó sérstak-
lega á námsárum er hann bjó
hjá afa og ömmu meðan á því
stóð.
Eftir að ég kynntist öðrum
manni var hann bara einn af
þeirra fjölskyldu líka, eins og
hún ætti í honum hvert bein,
svona stórt var hjartalag Guð-
rúnar.
Elsku Sigurjón, missir þinn
er mikill nú þegar ellin sækir
að en megi góður guð vernda
þig og styrkja í sorginni og alla
þína afkomendur. Almættið
veri með ykkur.
Kær kveðja,
Þórdís.
Síðustu daga hef ég velt því
fyrir mér hvað skiptir raun-
verulega máli, og hve margir
átta sig fyrst á því, þegar það
er orðið um seinan. Ekki ég.
Amma mín var ein mikilvæg-
asta manneskjan í lífi mínu og
það hef ég alltaf vitað.
Margir vita ekki að hún tók
við móðurhlutverkinu hjá mér
frá því að ég var 13 ára gamall
og sá um mig og bræður mína
tvo eins og sín eigin börn. Á
meðan pabbi vann baki brotnu,
dag og nótt, til að ala önn fyrir
okkur, sá hún til þess að allir á
heimilinu væru búnir með
heimanámið sitt, að enginn
væri svangur og mögulega
sagði hún eina eða tvær sögur
ásamt afa fyrir háttinn.
Ég eyddi mörgum eftirmið-
dögum hjá henni þegar ég var
lítill í Hlíðaskóla í pössun.
Amma vann í einni af mest
krefjandi deildum skólans, sér-
deildinni. Mér hlaust sá heiður
að fá að fylgjast með henni
vinna með öllum brosmildu og
lífsglöðu krökkunum þar og
upplifði hvernig hún náði til
hvers eins einasta barns með
væntumþykju og skilningi.
Þannig var hún amma, alltaf
svo skilningsrík og næm á alla
hluti lífsins.
Snemma fékk ég áhuga á
gítarglamri og hafði fengið
leyfi hjá pabba til að prófa
kassagítarinn hans, með mis-
góðum árangri. Einn daginn
sat ég heima með gítarinn að
æfa gítargrip þegar amma kom
í heimsókn. Hún spurði hvort
ég væri kominn með almenni-
legt lag á gripinn og ég út-
skýrði að þetta væri mun erf-
iðara en hana grunaði. „Jæja
já?“ sagði hún og bað mig um
að rétta sér gítarinn. Hún kom
honum fyrir í fanginu og viti
menn, amma kunni sko að spila
á gítar. Undrandi spurði ég
hana hvenær hún hefði lært á
gítar og hún svaraði mér:
„Elskan mín góða, ég hef alltaf
kunnað smá á gítar.“
Seint gleymast dagarnir sem
við eyddum í Birkibæ, sum-
arbústað afa og ömmu. Sól-
skinsríkir dagar þar sem alltaf
var eitthvað að gera, og þá sér-
staklega að taka þátt í smíða-
verkefnum, sem virtust alltaf
verða fleiri og fleiri. Þess á
milli var kaffitími í Sólheimum,
taka upp kartöflur úr kartöflu-
garðinum eða fá að keyra
sláttutraktorinn á grasflötinni.
Flest afmæli mín einkennd-
ust af því að geta pantað hvað
sem ég vildi í kvöldmat og oft-
ar en ekki var hringt í ömmu
og hún spurð hvort hún vildi
ekki elda saltfisk með rófum
eða kjötbollur með kartöflum
og brúnni sósu. Vinum mínum
fannst ég vera skrýtinn að
biðja ekki frekar um pitsu eða
hamborgara, en þeir vissu ein-
faldlega ekki hversu góður
kokkur hún amma mín var. Frá
því að ég man eftir mér var far-
ið bæði á aðfangadag og ann-
aðhvort jóladag eða annan í
jólum til afa og ömmu í dýr-
indis kalkún með öllu tilheyr-
andi og svo eðalhangikjöt með
uppstúf og hennar víðfræga
kartöflusalati. Enginn gat
toppað það.
Orð fá ekki lýst hversu mikið
ég mun sakna þín, elsku amma
mín, og hvernig hægt sé að
fylla upp í þetta stóra gat sem
myndaðist eftir að þú kvaddir
þennan heim, en ég veit að þú
ert komin á betri stað. Minning
þín mun lifa í hjarta mínu alla
ævi og hvernig þú settir svip
þinn á líf allra sem þú komst í
snertingu við. Ég veit að ég er
betri manneskja fyrir það eitt
að hafa haft þig í lífinu.
Daniel Kristinn
Gunnarsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein-
in að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar