Morgunblaðið - 06.12.2011, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2011
Ein af þeim bókum sem veitthafa mér mesta skemmt-un á þessu ári er fyrrabindið af 100 ára sögu Ís-
landsmótsins í knattspyrnu eftir Sig-
mund Ó. Steinarsson sem kom út í
sumar. Þar var komin dæmigerð bók
sem maður
er alltaf að
taka fram
öðru hvoru,
fletta upp
leikjum eða
atvikum,
spá og spek-
úlera –
ótæmandi
fróðleiks-
brunnur
fyrir fótboltavini. Þá um sumarið
stóð einmitt hundraðasta Íslands-
mótið og eins og það fyrsta hófst með
sigri Fótboltafélags Reykjavíkur,
sem síðar forframaðist í Knatt-
spyrnufélag, þá lauk því hundraðasta
með sigri KR-inga eins og rakið er
rækilega í seinna bindi sögunnar.
Hafi mönnum vaxið í augum hvað
fyrra bindi þessarar miklu sögu var
mikið að vöxtum, þá slær það seinna
það út, 512 blaðsíður og þá sagan öll
896 síður, ríkulega myndskreytt,
uppfull af skemmtilegum sögum og
ævintýralegum, og forvitnileg töl-
fræði um alla bók.
Eðlilega þótti mér fyrra bindið
meiri tíðindi, því þar var sagt frá svo
mörgu sem ég ekki þekkti til; man
fyrst almennilega eftir fótbolta þegar
KR-ingar urðu meistarar 1968, enda
var þá mikil gleði í Vesturbænum.
Upp frá því fylgdist ég betur með og
fyrir vikið er ekki margt sem ég er að
lesa um í fyrsta sinn í seinna bindinu
sem hefst með Íslandsmótinu 1966.
Að því sögðu þá eru ótal fréttamolar
sem koma á óvart og sífellt er ég að
rekast á eitthvað nýtt eða að sjá eitt-
hvað sem ég hélt ég vissi í nýju ljósi;
nefni þar frásögnina af ævintýra-
legum „flótta“ þjálfara Víkinga í
ágúst 1978 og eins söguna af „marki
aldarinnar“ sem Magni Blöndal Pét-
ursson skoraði í september 1980.
Mér sýnist því að þessi bók eigi eftir
að endast mér eins vel ef ekki enn
betur en hin og verða uppspretta
skemmtunar og fróðleiks næstu árin.
Fótbolti var alla tíð almenn-
ingsíþrótt og lengi fannst mér eins og
litið væri niður á menn fyrir að hafa
áhuga á slíkum barbarisma. Það voru
líka oft leiðindi og slark í kringum
kappleiki, eins og Sigmundur segir
til að mynda frá í leik Keflavíkur og
Vals í maí 1977, þegar lögreglumenn
þurftu að stilla til friðar. Með tím-
anum hefur þó boltinn fengið þann
sess sem hann hefur í dag, að vera
íþrótt sem fjölskyldan skemmtir sér
við og sem betur fer eru menn hættir
að mestu að hella í sig fyrir leiki. Sú
þróun er meðal annars fyrir tilstilli
manna eins og Sigmundar sem skap-
að hafa fótboltanum, knattspyrn-
unni, faglega ímynd með umfjöllun
sinni um íþróttina í áratugi. Það stór-
virki sem eftir Sigmund liggur á
þessu ári er svo kórónan á því verki,
heimildar- og skemmtirit sem lengi
mun lifa.
Faglegt Verk Sigmundar Ó Stein-
arssonar er „ótæmandi fróðleiks-
brunnur fyrir fótboltavini“.
Heimildar- og skemmtirit
sem lengi mun lifa
100 ára saga Íslandsmótsins í knatt-
spyrnu, síðara bindi
bbbbb
Eftir Sigmund Ó. Steinarsson. Knatt-
spyrnusamband Íslands gefur út. 512
bls. í stóru broti með nafna- og korta-
skrá og ítarlegum heimildalista.
ÁRNI
MATTHÍASSON
BÆKUR
Morgunblaðið/RAX
Mörgum finnst fáttskemmtilegra og jafnspennandi og að kom-ast út fyrir landstein-
ana. Kynnast þar nýju fólki og
framandi menningarheimum og er
ofanritaður engin undantekning á
því. Fyrir þá
sem dreymir
um að flakka
heimshorna á
milli hefst sá
draumur oft
á tíðum á
lestri ým-
iskonar
ferðabóka
sem segja og
gefa í skyn
við hverju
megi búast á viðkomandi áfanga-
stað.
Nýverið kom út bókin Án vega-
bréfs – Ferðasögur eftir ljós-
myndarann og blaðamanninn Ein-
ar Fal Ingólfsson og er ekki hægt
að segja annað en að hún sé úr-
vals upphafspunktur fyrir dag-
drauma um heimshornaflakk og
framandi slóðir.
Einar Falur hefur á löngum og
farsælum ferli sínum verið á far-
aldsfæti og skrásett það sem fyrir
augu hans hefur borðið. Bæði
vopnaður myndavél og penna og
hafa margar af ferðasögum hans
birst á síðum Morgunblaðsins í
gegnum árin. Bæði í fullri lengd
og í styttri útgáfum. Í Án vega-
bréfs hefur hann tekið saman ell-
efu stórskemmtilegar, áhugaverð-
ar og oft á tíðum ótrúlegar
ferðasögur og fléttað saman við
kraftmiklar ljósmyndir af áfanga-
stöðum sínum. En það er einmitt
þessi blanda af ferðasögum og
ljósmyndum sem gerir lestur bók-
arinnar að ferðalagi út af fyrir
sig. Það er ekki bara verið að lesa
um það sem á daga Einars Fals
og ferðafélaga hans hefur drifið
hverju sinni, heldur hafa ljós-
myndirnar verið listilega vel
valdar og settar saman við ýt-
arlegar ferðasögur. En þó svo að
textinn sé í fyrirrúmi þá eru ljós-
myndirnar síður en svo í auka-
hlutverki, þvi hver og ein þeirra
hefur nefnilega sína eigin sögu að
segja.
Í bókinni fá lesendur að fara
með og gerast ferðafélagar Einars
Fals, sjá hvernig þessir ellefu
áfangastaðir hafa komið fyrir
augu hans og upplifa hvert ferða-
lag fyrir sig í gegnum ítarlegar
sögu og ljósmyndir. Hann fer með
þig djúpt ofan í silfurnámur Cerro
Rico í Bólivíu, á sólstöðuhátíð í
Cuzco við rætur Andersfjalla, gef-
ur lesendum einstaka sýn á
Þriggja gljúfra stífluna sem teygir
sig yfir Yangtze-fljótið í Kína,
hvernig tugþúsundir pílagríma
koma saman við ármót Jamuna og
Ganges á Indlandi, Maldívaeyjar
úr háloftunum, rústir Tvíbur-
aturnanna stuttu eftir árásina
2001, hvernig Vestur-Íslendingar í
Gimli minnast heimaslóðanna og
hvernig er að fara á norðurpólinn
og heim aftur, svo nokkrar af fjöl-
mörgum sögum bókarinnar séu
nefndar.
Án vegabréfs – Ferðasögur
bbbbb
Eftir Einar Fal Ingólfsson.
Crymogea gefur út. 317 bls.
MATTHÍAS ÁRNI
INGIMARSSON
BÆKUR
Höfundurinn í námu „Það er …
þessi blanda af ferðasögum og ljós-
myndum sem gerir lestur bók-
arinnar að ferðalagi út af fyrir sig.“
Ótrúlegar
ferðasögur
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
BLITZ Sýnd kl. 8 -10:15
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D Sýnd kl. 6
JACK AND JILL Sýnd kl. 6 - 8
IMMORTALS 3D Sýnd kl. 8 - 10
BORGRÍKI Sýnd kl. 10:15
HAPPY FEET 2 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHH
„HIN FULLKOMNA HELGIDAGASKEMMTUN“
- MARA REINSTEIN/ US WEEKLY
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
Í ANDA STIEG LARSSON MYNDANNA
HHHH
ÞÞ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
KHK. MBL
HHH
T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
ÞAR SEM LÖGIN TAKA ENDA
HEFST RÉTTLÆTIÐ
‚“FERSKASTA OG SKEM-
MTILEGASTA JÓLAMYND
SÍÐARI ÁRA.“
- MICHAEL RECHTSHAFFEN,
HOLLYWOOD REPORTER
„SNIÐUG, FYNDIN OG SÆT!“
- KEITH STASKIEWICZ,
ENTERTAINMENT WEEKLY
HÖRKU SPENNUMYND
ÍSLENSKT
TAL
Sjáðu n
ýja Just
in Biebe
r
myndba
ndið í þ
rívidd á
undan m
yndinni!
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR!
950 kr.3
D
3D GLERAUGU
SELD SÉR700 kr.
700 kr.
950 kr.3
D
3D GLERAUGU
SELD SÉR
950 kr.3
D
3D GLERAUGU
SELD SÉR
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA
EKKI Í BORGARBÍÓI
5%
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 6 L
BLITZ KL. 8 16
TROPA DE ELITE KL. 5.50 16
JACK AND JILL KL. 8 - 10 L / IMMORTALS 3D KL. 10 16
-A.E.T., MBL
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
92% ROTTENTOMATOES
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 2D KL. 3.40 - 5.50 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 L
BLITZ KL. 8 - 10.10 16
BLITZ LÚXUS KL. 8 - 10.10 16
IMMORTALS 3D KL. 8 - 10.30 16
TROPA DE ELITE KL. 10.20 16
JACK AND JILL KL. 8 - 10.10 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 3.20 - 5.40 - 8 7
ÞÓR 3D KL. 3.40 - 5.50 L
T.V., KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ & HEYRT
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 5.50 L
ARTHUR CHRISTMAS 3D ÁN TEXTA KL. 5.50 L
TROPA DE ELITE KL. 8 - 10.30 16
IMMORTALS 3D KL. 8 - 10.30 16
JACK AND JILL KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
IN TIME KL. 8 - 10.30 12
ELDFJALL KL. 5.45 L
HEFURÐU VELT ÞVÍ FYRIR ÞÉR HVERNIG MAÐUR FER AÐ ÞVÍ
AÐ AFHENDA TVO MILLJARÐA GJAFA Á EINNI NÓTTU?
Sjáðu nýja
myndbandið með
JUSTIN BIEBER
í þrívídd á undan
myndinni!