Morgunblaðið - 21.01.2012, Síða 33
UMRÆÐAN 33Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2012
Á sunnanverðum
Vestfjörðum hafa vega-
mál verið í miklum
ólestri árum saman.
Tillaga Ögmundar Jón-
assonar um hálend-
isveg yfir báða hálsana
milli Gufufjarðar og
Þorskafjarðar snýst
um að áralöng bið eftir
láglendisvegi- og jarð-
göngum undir Klett-
sháls verði framlengd
um sex áratugi án þess að ráðherra
samgöngumála þurfi að taka afleið-
ingunum. Mun minna fjármagni hef-
ur á undanförnum árum verið varið
til vegagerðar á Vestfjörðum en í
öðrum landshlutum. Það er stað-
reynd sem innanríkisráðherra getur
þrætt fyrir þegar honum hentar.
Eitt helsta lögmál nútíma vega-
gerðar snýst líka um að brattir og
hlykkjóttir fjallvegir yfir erfiða og
snjóþunga hálsa skuli víkja fyrir lág-
lendisvegum og stuttum veggöngum.
Um Austur- og Vestur-Barðastrand-
arsýslu skiptir greiðfær og öruggur
láglendisvegur miklu máli til þess að
hægt sé að tryggja áframhaldandi
byggð og framþróun í samfélags- og
atvinnumálum á sunnanverðum
Vestfjörðum. Mín skilaboð til Ólínu
Þorvarðardóttur eru þau að tími
fjallveganna sé nú liðinn þegar fram-
farir í jarðgangagerð eru að aukast.
Tillögur innanríkisráðherra um að
endurbyggja erfiða hálendisvegi á
báðum hálsunum í óbreyttri mynd
gegn vilja heimamanna snúast frekar
um að ögra íbúum suð-
urfjarðanna og að allar
byggðirnar sunnan
Dynjandisheiðar skuli
búa við áframhaldandi
vetrareinangrun næstu
hálfu öldina. Þetta eiga
þingmenn Norðvest-
urkjördæmis að kynna
sér á meðan ágrein-
ingur er milli stjórn-
arflokkanna um Vaðla-
heiðargöng sem 1000
króna vegtollur á hvern
bíl borgar aldrei. Stað-
reyndin sem Ögmund-
ur andmælir er að fjallvegir á snjó-
þungum og illviðrasömum svæðum
auka viðhaldskostnað ökutækja og
eldsneytisnotkun, þá eykst flutnings-
kostnaðurinn til og frá sunnanverð-
um Vestfjörðum sem er alltof mikill.
Þrátt fyrir fögur loforð um bættar
samgöngur í fjórðungnum sem inn-
anríkisráðherra hefur svikið berast
engar fréttir af því að Dýrafjarð-
argöng séu í sjónmáli. Síðustu daga
októbermánaðar bárust fréttir af því
að Vegagerðinni væri nú full alvara í
því að skoða möguleika á þverun
Gufufjarðar og Djúpafjarðar sem Ól-
ína Þorvarðardóttir og Einar K. Guð-
finnsson hafa deilt um. Þessir tveir
þingmenn Vestfirðinga skulu svara
því hvort það sé heppilegt að lög-
reglan á Patreksfirði keyri 400 km
báðar leiðir til að þjóna íbúum Reyk-
hóla án þess að ákvörðun um jarð-
göng undir Klettsháls liggi fyrir
næstu áratugina. Fyrir löggæsluna á
Patreksfirði er þetta svæði milli
Vesturbyggðar og Reykhóla alltof
stórt.
Á löngum tíma hefur milljörðum
króna verið varið til vegagerðar í
Dalabyggð og í Djúpveg. Komið hafa
fram hugmyndir um að tengja saman
þessi vegakerfi með stuttum veg-
göngum meðfram Kollafjarðarheiði.
Þá myndi láglendisvegur frá Ísafirði
til Reykjavíkur sem nútímafólk gerir
kröfu um styrkja byggð á norð-
anverðum Vestfjörðum. Eftir að veg-
urinn á Klettshálsi var byggður upp
fyrir hálfan milljarð króna hefur
hann alltaf verið lokaður alla vetr-
armánuðina án þess að Einar K Guð-
finnsson vilji tala um veggöng undir
þennan farartálma. Búast má við því
sama á Ódrjúgshálsi og Hjallahálsi
sem Ögmundur Jónasson vill byggja
upp í óþökk heimamanna.
Fyrir Vegagerðina getur verið
vonlaust og alltof kostnaðarsamt að
þjónusta fjallvegi fjarri starfs-
stöðvum þeirra án þess að innanrík-
isráðherra viðurkenni þá staðreynd
að það sé liðin tíð að fara með upp-
byggða vegi upp á snjóþung og ill-
viðrasöm svæði í meira en 200 m hæð
sem Vegagerðin getur ekki haldið
opnum. Mín hugmynd er að Ólína
Þorvarðardóttir svari því hvort hún
fallist á málamiðlunartillögu heima-
manna sem gerir ráð fyrir veggöng-
um undir Hjallaháls og að nýr vegur
verði lagður út Djúpafjörð að aust-
anverðu og yfir Gufufjörð.
Tími fjallveganna
er liðinn, Ólína
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
» Þrátt fyrir fögur lof-
orð um bættar sam-
göngur í fjórðungnum
sem innanríkisráðherra
hefur svikið berast eng-
ar fréttir af því að Dýra-
fjarðargöng séu í sjón-
máli.
Guðmundur Karl
Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Skyldi hugtakið „jafnrétti“ hafa
valdið einna mestum skaða í þjóð-
félögum heimsins þegar allt kemur
til alls? Þó ekki væri nema bara
vegna þess að fólk er engan veginn
allt jafnt frá náttúrunnar hendi (þótt
innsti kjarninn sé sá sami) – fyrir nú
utan allan félagslega mismuninn
sem orðið hefur til í aldanna rás, ein-
mitt vegna téðs tilfinnanlega
„ósanngjarns“ meginfyrirbæris lífs-
ins.
„Jafnrétti“ er jafnan haldið hvað
hæst á lofti af þeim sem skilgreina
sig sjálfir neðan meðaltalsins (vegna
minnimáttarkenndar?) hvort sem
þeir hafa staðist síminnkandi kröfur
um námsárangur í skólakerfunum
eða ekki. Manni sýnist menntahroki
hafa farið vaxandi síðustu áratugi,
einkum innan félagshyggjuflokk-
anna, „vegna þess að sjálfu verka-
fólkinu er ekki treystandi til að rífa
niður uppbyggingu forfeðranna
hjálparlaust“. Til þess þarf víst til-
styrk „systurflokkanna“ í Evrópu án
þess að femínistar komi þar sér-
staklega við sögu. Með öðrum orð-
um: Baráttu gegn Bandaríkjamönn-
um.
Skefjalausum hatursáróðri gegn
þessu mesta stórveldi jarðar hefur
verið haldið á lofti af íslenskum
vinstrimönnum um sjö áratuga skeið
eða lengur. Staðhæft er af sumum að
kvikmyndir frá Hollywood gefi
raunsanna mynd af bandarísku þjóð-
félagi, þótt fátt sé fjær sannleik-
anum í flestum tilfellum. Orðalepp-
arnir sem uppi voru hafðir um
varnarliðið á sínum tíma eru auðvit-
að ekki hafandi eftir í virðulegu fjöl-
skyldublaði – en oft hefur það
hvarflað að manni að það virðast
einkum þeir sem aldrei hafa komið
til Bandaríkjanna sem tala hvað
verst um þá yndislegu þjóð. Að vísu
er margur potturinn brotinn í því
vísa landi (les; heimsálfu) líkt og
hvarvetna annars staðar. Útrás-
arvíkingarnir þeirra eru síst skárri
en okkar og fráleitt til þess fallnir að
sýnast verðugir fulltrúar þjóð-
arinnar.
Ósköp virðist nú annars illa fyrir
okkur komið Íslendingunum, þetta
kjörtímabilið, óskabörnum banda-
manna, sjálfum sigurvegurunum.
Urðum við ekki ofaná? Ég veit það
ekki. Flottasta land/þjóð jarðar?
Vonandi klúðrar því ekki „jafnrétti“
þótt áfram verði rætt um „jöfnun“.
PÁLL PÁLMAR
DANÍELSSON
leigubílstjóri.
Jafnrétti? Óhugsandi
Frá Páli Pálmari Daníelssyni