Morgunblaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2012
Trommuleikarinn Joshua Tillman,
hefur sagt skilið við Fleet Foxes.
Tillman hefur barið húðir með
Seattle-sveitinni vinsælu í fjögur ár
og spilaði á báðum plötum þeirra,
Fleet Foxes og Helplessness Blues.
Hann á hinsvegar einnig langan
sólóferil að baki og undirbýr nú út-
gáfu áttundu plötu sinnar undir
listamannsnafninu John Misty.
Fleet Foxes spiluðu í Tókýó í Jap-
an í gær og tilkynnti Tillman að það
yrðu hans síðustu tónleikar með
sveitinni. „Verið þið sælir, Fleet
Foxes, aðdáendur og vinir. Ég held
aftur í gínandi kjaft hins óþekkta,“
hljóðuðu kveðjuorðin á heimasíðu
hans. Hljómsveitin hefur ekki til-
kynnt hver taki við trommunum.
Ljósmynd/Primavera Sound
Refirnir Fleet Foxes fullskipuð, fremst til
hægri situr Joshua Tillman sem er hættur.
Trommuleikari
Fleet Foxes kveður
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Mér finnst alltaf rosalega gaman að
syngja í Langholtskirkju. Það er
góður andi þar, góður hljómburður
og gott fólk í kringum hana,“ segir
Eivör Pálsdóttir söngkona sem er á
Íslandi þessa dagana og ætlar að
nýta tækifærið til að halda eina tón-
leika í Langholtskirkju, á sunnudag.
Umgjörð síðustu tónleika Eivarar
var talsvert önnur, en hún söng á há-
tíðartónleikum í tilefni af 40 ára
krýningarafmæli Margrétar Þór-
hildar Danadrottningar. Eivör við-
urkennir að það séu talsverð við-
brigði að fara úr tónleikahöll danska
ríkisútvarpsins í Langholtskirkju.
Heimilislegt að koma til Íslands
„Þetta er algjörlega sitt hvort, en
mér finnst það bara æðislegt. Það
var voðalega gaman að syngja í
þessu stóra konserthúsi með dönsku
sinfóníunni, en ég er búin að hlakka
lengi til að koma aftur til Íslands.
Það er svo heimilislegt og yndislegt
fyrir mig að koma hingað.
Einu gildir hvort Eivör syngur
fyrir konungsfjölskyldur eða kirkju-
gesti; hún heldur sínum hætti og
syngur alltaf berfætt. „Ég var svolít-
ið að spá í þetta, hvort ég mætti vera
berfætt á þessu rauða teppi fyrir
framan drottninguna, en ég ákvað að
vera bara ég sjálf. Það er alltaf besta
leiðin,“ segir Eivör sem finnur meiri
jarðtengingu berfætt.
Skrímslið litla systir
„Kannski er það einhver hjátrú í
mér en mér líður best þannig. Það er
rosalega mikilvægt þegar ég syng á
sviði að vera í núinu og á staðnum,
og þá hjálpar rosalega að vera ber-
fætt finnst mér. Ég tengist meira við
jörðina og fólkið og allt sem er í
kringum mig. En stundum væri ég
alveg til í að geta verið á háum hæl-
um. Aðrar stelpur fara í háu hælana
þegar þær fara á svið, en ég fer í þá
þegar ég fer af sviðinu.“ Eivör býr
nú í Kaupmannahöfn en dvelur á Ís-
landi um tíma þar sem hún er að
semja tónlist fyrir brúðuleikritið
Skrímslið litla systir mín, sem sýnt
verður í Norræna húsinu í febrúar.
Eivör hefur áður samið fyrir leik-
hús en þetta er í fyrsta sinn sem hún
semur barnatónlist. „Það er öðruvísi
og mér finnst þetta alveg rosalega
gaman. Svo er Páll á Húsafelli búinn
að útbúa handa mér steinhörpu og
flautur úr rabarbara, þannig að allur
hljóðheimurinn er úr náttúrunni og
sýningin sjálf úr pappír. Svo þetta er
mjög lífræn sýning en líka rosalega
skemmtileg og ég mæli með henni.
Mér finnst bara ömurlegt að ég get
ekki verið á frumsýningunni,“ segir
Eivör.
Persónuleg plata á leiðinni
Ástæðan er tónleikaferð um Dan-
mörku og í kjölfarið tónleikar í
Rússlandi, Hollandi, Noregi og Eist-
landi svo eitthvað sé nefnt. Eivör er
alltaf á faraldsfæti en íslenskir aðdá-
endur þurfa ekki að örvænta því hún
er væntanleg aftur í vor, í tilefni af
útgáfu nýrrar plötu.
„Mér líður svolítið eins og ég sé
búin að finna einhvern kjarna í þess-
ari plötu. Hún er svolítið persónuleg
og þegar hún kemur þá ætla ég að
halda útgáfutónleika í einhverju
öðru rými. Kannski í Hörpu, ég er
ekki búin að ákveða það.“
Þótt hún búi hér ekki lengur höf-
um við Íslendingar ekki misst hana
Eivöru okkar alveg, hún kemur allt-
af aftur. „Ég á eftir að vera hérna
alla ævi mína einhvern veginn. Ef ég
er of lengi í burtu frá Íslandi verð ég
alltaf að koma aftur til að fá orku.“
„Ákvað að vera bara ég sjálf“
Morgunblaðið/Golli
Eivör Listafélag Langholtskirkju skipuleggur tónleikana, sem verða þeir einu í þessari Íslandsför Eivarar.
Eivör Pálsdóttir syngur alltaf berfætt, líka fyrir drottninguna Kemur ein fram með gítarinn
í Langholtskirkju á sunnudag Tónleikar á Íslandi í vor og kannski í Hörpu í tilefni nýrrar plötu
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
HÚN ER MÆTT AFTUR Í
BESTU MYNDINNI TIL ÞESSA!
STRÍÐIÐ ER HAFIÐ!
CONTRABAND KL. 6 - 8 - 10.10 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 4 (TILBOÐ) L
FRÉTTABLAÐIÐ
GOLDEN GLOBE SIGURVEGARI
SÉÐ OG HEYRT/
KVIKMYNDIR.IS
CONTRABAND KL. 8 - 10.30 16
THE DESCENDANTS KL. 3.30 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 L
IRON LADY KL. 3.30 (TILBOÐ) - 5.40 - 8 - 10.20 L
MY WEEK WITH MARILYN KL. 3.30 (TILBOÐ) - 5.40 L
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 5.45 - 9 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.30 (TILBOÐ) L
SÉÐ OG HEYRT/
KVIKMYNDIR.IS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA!
GOLDEN GLOBE SIGURVEGARI
CONTRABAND KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.25 16
CONTRABAND LÚXUS KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.25 16
THE DESCENDANTS KL. 1 (TILBOÐ) - 3.25 - 5.30 - 8 - 10.25 L
UNDERWORLD / AWAKENING KL. 8 - 10 16
FLYPAPER KL. 8 12
THE SITTER KL. 6 - 10 14
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.50 L
STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 *AÐEINS LAU.
ARSENAL – MAN UTD 3D KL. 3.45 *AÐEINS SUN.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
CONTRABAND Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 (Power)
IRONLADY Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
PRÚÐULEIKARARNIR Sýnd kl. 1:45 (750kr.) - 4
TINKER, TAILOR, SOLDIER, SPY Sýnd kl. 7 - 10
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 2 (750kr.) - 4
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN 3D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4
BESTA LEIKKONA
Í AÐALHLUTVERKI
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
ÍSLENSKT
TAL
ÍSLENSKT
TALÍSLENSKUR
TEXTI
„EIN BESTA MYND ÁRSINS - PUNKTUR“
-JAKE HAMILTON, FOX-TV
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:15
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHH
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
„Einstaklega vel gerð spennumynd“
-Joe Morgenstern THE WALL STREET JOURNAL
T.V. -KVIKMYNDIR.IS
HHHH
H.V.A. - Fréttablaðið
HHHH
Þ.Þ. - Fréttatíminn
HHHH
B.G. - MBL
HHH
H.S.K. -MBL
HHHH