Morgunblaðið - 23.01.2012, Síða 2
Margir brugðu sér á skíði í gær í tilefni af alþjóðlegu
skíðahátíðinni „Snjór um víða veröld“. Flest skíðasvæði
landsins tóku þátt í henni, þ. á m. Bláfjöll, en þar var
mjög gott skíðafæri, logn og tveggja stiga frost. Fjöl-
mörg börn þeystu niður brekkurnar á þotum eða skíð-
um, enda frítt fyrir 12 ára og yngri.
Morgunblaðið/Golli
Geystust niður brekkur Bláfjalla
Alþjóðleg skíðahátíð haldin víða um land í gær
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2012
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele þvottavélar og þurrkarar
BAKSVIÐ
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Verðmunur á heitu og köldu vatni
hjá Orkuveitu Reykjavíkur er nú
nánast þrefaldur eftir gjald-
skrárhækkanir sem tóku gildi nú
um áramótin. Alls hafa vatns- og
fráveitugjöld Orkuveitunnar hækk-
að, í takt við byggingavísitölu, um
10,69%, sé miðað við gjaldskrá fyr-
irtækisins 1. maí 2011. Þá hefur
talsverð hækkun einnig orðið á
heitu vatni frá áramótum en það
hækkaði um 5,3%.
Heitt vatn upp um 5,3%
Sé tekið dæmi og miðað við 100
fm íbúð í Reykjavík nemur vatns-
gjald þeirrar íbúðar nú 25.059
krónum á ári. Sú upphæð hefur
hækkað um 2.420 krónur frá árinu
2011 og gerir það að verkum að
íbúar þurfa að greiða 2.088 krónur
á mánuði fyrir kalt neysluvatn.
Eftir gjaldskrárhækkanir nemur
fráveitugjaldið fyrir sömu íbúð ríf-
lega 40.000 krónum á ári en árið
2011 nam það rúmum 32.000 krón-
um.
Að sama skapi hefur heitt vatn
hækkað á nýju ári um 5,3% og sé
miðað við þær forsendur að not-
aðir séu 500 rúmmetrar af heitu
vatni þarf viðkomandi ein-
staklingur að greiða 74.391 krónu á
ári. En það jafngildir 6.199 krónum
á mánuði.
Þá skal þess getið að gefnar for-
sendur þessa dæmis teljist vart
vera sparnaðarnotkun á heitu vatni
og að inni í þessum tölum er 7%
vsk. ásamt 2% orkuskatti.
Mismunandi aðferðir
Þegar kemur að útreikningum á
vatnsgjaldi notast Orkuveitan við
stærð viðkomandi húsnæðis í fer-
metrum en flest önnur fyrirtæki í
sambærilegum rekstri, t.a.m. HS
Veitur, miða við ákveðna prósentu
af fasteignavirði húsnæðis. Sú pró-
sentutala hljóðar upp á 19,3 pró-
mill.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitu Reykjavík-
ur, segir ástæðu þess að Orkuveit-
an notist við fermetrastærð vera
m.a. þá að rekstrarkostnaður og
tekjur veitna sé tiltölulega þekkt
stærð og því henti þetta fyr-
irkomulag ágætlega. „Þetta trygg-
ir viðkomandi veiturekstri nokkuð
stöðugar tekjur í samræmi við
gjöldin,“ segir Eiríkur og bætir við
að auk fyrri rekstrarsvæða Orku-
veitu Reykjavíkur bætist nú við
innheimtur vatnsgjalda á Grund-
arfirði, Stykkishólmi, Hvalfjarð-
arsveit og Úthlíð í Biskupstungum.
Kalt vatn kostar sitt
HS Veitur eiga og reka vatns-
veiturnar í Reykjanesbæ, Garði og
í Vestmannaeyjum. Að undanförnu
hafa sveitarfélögin séð um að inn-
heimta vatnsgjaldið fyrir HS Veit-
ur en í ár hefur verið gerð breyt-
ing á því fyrirkomulagi og munu
HS Veitur nú sjá um að innheimta
þessi gjöld í stað sveitarfélaganna.
Morgunblaðinu barst nýverið af-
rit af yfirliti vegna vatnsgjalds fyr-
ir árið 2012 frá íbúa í Keflavík.
Um er að ræða alls 116 fm íbúð,
sem metin er á ríflega 24,6 millj-
ónir króna, og er notast við 19,3
prómill af fasteignavirði íbúðar-
innar við útreikning vatnsgjalds-
ins. Samkvæmt yfirlitinu þurfa
íbúar umræddrar íbúðar í Keflavík
að greiða 47.575 krónur á ári, eða
það sem nemur að jafnaði 3.965
krónum á mánuði, fyrir kalt
neysluvatn.
Sé það borið saman við tölur
Orkuveitu Reykjavíkur, sem gefn-
ar voru upp fyrir 100 fm íbúð í
Reykjavík, er munurinn
samtals 22.516 krónur.
Þá fengust þær upplýs-
ingar frá HS Veitum
að ástæður þessa verð-
munar væru margskon-
ar. Var í því samhengi
t.d. bent á að fast-
eignamat í
Reykjanesbæ
hefði að und-
anförnu hækk-
að lítillega og
slíkt stuðlaði
m.a. að hækk-
un vatnsgjalds.
Mikill verðmunur á köldu vatni
Vatnsgjald 100 fm íbúðar í Reykjavík nemur ríflega 25 þúsund krónum á ári á sama tíma og það er
rúmar 47 þúsund krónur af 116 fm íbúð í Keflavík Ólíkar reikniaðferðir hjá OR og HS Veitum
Dæmi um vatnsgjöld í Reykjavík og Keflavík
Vatnsgjald Vatnsgjald Hækkun Hækkun
árið 2011 árið 2012 í kr. í %
100 m2 íbúð í Rvk 22.639 kr. 25.059 kr. 2.420 kr. 9,7%
116 m2 íbúð í Keflavík 42.653 kr. 47.575 kr. 4.922 kr. 10,3%
„Við vorum að skoða þann
möguleika að taka upp fermetra-
gjald, líkt og er í Reykjavík,“ seg-
ir Júlíus Jónsson, forstjóri HS
Veitna. Segir hann að við þá at-
hugun hafi komið í ljós að þegar
á heildina er litið kynni breyt-
ingin að reynast neytendum HS
Veitna kostnaðarsamari en nú-
verandi fyrirkomulag. „Þetta er
náttúrulega mismunandi út-
færsla. Þar sem á öðrum staðn-
um er bara tekið tillit til stærð-
arinnar en á hinum staðnum er
fasteignamatið. Það getur sveifl-
ast til og frá.“
Júlíus kveðst þó vera
fremur hlynntur fermetra-
gjaldi en ákveðinni pró-
sentu af fasteignavirði
og útilokar ekki breyt-
ingar í náinni fram-
tíð. „Það hvar hús er
staðsett ræður engu
um vatnsnotkunina.“
Skoða breytt
fyrirkomulag
VATNSGJALD
Júlíus
Jónsson
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
„Við erum að ræða saman og vinna
að málefnasamningi,“ segir Ármann
Kr. Ólafsson, bæjarfulltrúi og odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi,
spurður hvernig meirihlutaviðræður
Sjálfstæðisflokksins við Næstbesta
flokkinn og Lista Kópavogsbúa
gangi og bætir við: „Eins og við
sögðum strax ætlum við að taka góð-
an tíma í þetta, við höfum ekki sett
okkur neinn ákveðinn tímaramma.
Við hittumst bæði í gær og í dag og
við munum síðan hittast aftur á
morgun [í dag].“
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu um helgina eiga bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi í viðræðum við fulltrúa
Næstbesta flokksins og Lista Kópa-
vogsbúa um
meirihluta-
samstarf. Að
sögn Ármanns
fer vel á með
fulltrúum
listanna þriggja
og ná þeir ágæt-
lega saman.
Ármann segist
ekki vilja tjá sig
um efnislegt inni-
hald málefnasamningsins. Fram
kom í Morgunblaðinu á laugardag að
Sjálfstæðisflokkurinn gerir kröfu
um bæjarstjórastólinn í Kópavogi en
Listi Kópavogsbúa hefur lagt
áherslu á að bæjarstjórinn sé ópóli-
tískur.
Vinna í sameiningu
að málefnasamningi
Viðræður í Kópavogi halda áfram
Ármann Kr.
Ólafsson
„Það yrði örugglega tekin afstaða til
málskostnaðar í málinu, ég er nátt-
úrlega skipaður verjandi þannig að
ég á rétt á málsvarnarlaunum fyrir
það sem búið er, þannig að það yrði
væntanlega tekin afstaða til þess í
landsdómi,“ segir Andri Árnason,
verjandi Geirs H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, spurður hvað
taki við ef þingsályktunartillaga
Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins, fæst samþykkt
og málshöfðun
Alþingis gegn
Geir verður dreg-
in til baka í kjöl-
farið.
Að sögn Andra
er mikilvægt að
afgreiða þings-
ályktunartillögu
Bjarna sem fyrst
fyrir Alþingi, úr
því að það varð
niðurstaðan að þingið tæki hana til
efnislegrar umfjöllunar, enda stytt-
ist nú í að lokaundirbúningur máls-
ins hefjist.
Meðferð málsins hefst fyrir lands-
dómi hinn 5. mars næstkomandi en
gert er ráð fyrir að lokafrestur til að
skila gögnum renni út 16. febrúar.
Andri vill ekki tjá sig efnislega um
þingsályktunartillögu Bjarna Bene-
diktssonar né meðferð hennar fyrir
þinginu.
Tjáir sig ekki um tillöguna
Gerir kröfu um málskostnað ef ákæran verður afturkölluð
Andri
Árnason