Morgunblaðið - 28.01.2012, Blaðsíða 3
Ingi Þór Stein-þórsson,
þjálfari körfu-
knattleiksliða
Snæfells, hefur
átt býsna fjöruga
viku í vinnunni.
Síðastliðinn
sunnudag spilaði
kvennaliðið bik-
arleik á móti Fjölni í Grafarvoginum
og komst áfram. Kvöldið eftir var
Ingi enn í Reykjavík en þá spilaði
karlaliðið tvíframlengdan bikarleik
gegn KR. Kvöldið eftir færði hann
sig yfir í Suðurkjördæmi og mætti
með kvennaliðið í deildarleik í
Hveragerði á móti Hamri. Ingi fékk
frí á miðvikudag en á fimmtudags-
kvöld var deildarleikur hjá karlalið-
inu gegn KR á útivelli. Ingi var
áfram í Reykjavík í gær og var við-
staddur þegar dregið var í undan-
úrslit bikarsins og í dag á Snæfell
heimaleik á móti Njarðvík í deild-
inni.
Dagný Skúladóttir, besti leik-maður umferða 1-9 í N1-deild
kvenna í handknattleik, virðist eiga
aðdáendur víðar en á Íslandi. Lands-
liðstreyju sem hún spilaði í á HM í
Brasilíu var nefnilega hnuplað úr
einu búningasetti íslenska liðsins í
þvottahúsi á keppnisstaðnum í Bras-
ilíu í síðasta mánuði.
Roy Carroll, fyrrverandi mark-vörður Manchester United, er
genginn í raðir gríska liðsins Olym-
piakos og hefur skrifað undir eins og
hálfs árs samning við félagið. Carroll
lék með danska liðinu OB og var
kjörinn markvörður ársins í dönsku
deildinni árið 2009.
Handknattleiksdómararnir Ingv-ar Guðjónsson og Jónas Elías-
son eru þessa dagana staddir í Jed-
dah í Sádi-Arabíu en þeir voru valdir
af Alþjóðahandknattleikssamband-
inu til að dæma á Asíumeist-
aramótinu. Þeir Jónas og Ingvar
dæmdu opnunarleik mótsins sem
var á milli Barein og Sádi-Arabíu í
fyrrakvöld og þóttu þeir standa sig
vel.
Serbinn NovakDjokovic,
efsti maður á
heimslistanum í
tennis, tryggði
sér gær sæti í úr-
slitum á opna
ástralska meist-
aramótinu þar
sem hann á titil
að verja. Djokvic hafði betur gegn
Bretanum Andy Murray í hörkuleik
með þremur settum gegn tveimur,
6:3, 3:6, 6:7, 6:1 og 7:5. Það verða því
Djokovic og Spánverjinn Rafael Na-
dal sem leika til úrslita og fer leik-
urinn fram á morgun.
Djokovic gæti því byrjað árið einsog hann endaði 2011 en hann
vann tíu mót á árinu og þar á meðal
opna ástralska mótið, opna banda-
ríska mótið og Wimbledon-mótið.
Daninn Thor-bjorn Ole-
sen er efstur eftir
tvo hringi á Abu
Dhabi Cham-
pionship-mótinu
sem er hluti af
Evrópumótaröð-
inni. Hann lék
annan hringinn á
67 höggum eða á fimm höggum und-
ir pari og er samtals sjö höggum
undir parinu. N-Írinn Gareth Mayb-
in er í öðru sæti, sex höggum undir
pari, og Bandaríkjamaðurinn Tiger
Woods er þriðji á samtals fimm
höggum undir pari. Woods lék í gær
á 69 höggum eða þremur höggum
undir pari. Jafn Tiger í þriðja sæti
er N-Írinn Rory McIlroy.
Fólk sport@mbl.isStjórnar
Craig Schoen
leikstjórn-
andi KFÍ.
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
SA Víkingar unnu afar mikilvægan
5:4 útisigur á Birninum þegar liðin
mættust á Íslandsmóti karla í íshokkí
í Egilshöllinni í Grafarvogi í gær-
kvöldi. Það var enginn annar en ís-
hokkímaður ársins 2011, Björn Már
Jakobsson, sem skoraði gullmark í
framlengingu og tryggði Akureyr-
ingum sigurinn.
„Við vorum fjórir á móti þremur
inni á þeirra svæði. Pökkurinn fór nið-
ur í horn og þeir seldu sig svolítið þar.
Ég fékk sendingu frá Andra Má
Helgasyni og var einn og yfirgefinn
fyrir framan markið,“ sagði Björn í
samtali við Morgunblaðið að leiknum
loknum.
„Verðum að vinna alla leiki“
Akureyringar mættu geysilega
grimmir til leiks og voru 4:1 yfir að
lokinni fyrstu lotu. Björninn sneri
hins vegar blaðinu við í annarri lotu
og jafnaði 4:4. Markalaust var í síð-
ustu lotunni og því þurfti að fram-
lengja. Akureyringar höfðu því átt
undir högg að sækja síðan í fyrstu lotu
þar til Björn skoraði sigurmarkið.
Þess má geta að spilandi þjálfari SA
Víkinga, Josh Gribben, sýndi dóm-
greindarleysi í framlengingunni og lét
reka sig í bað fyrir kjaftbrúk.
„Þetta var voða erfitt hjá okkur í
annarri lotu því þá misstum við menn
út af og þeir gengu á lagið og skoruðu
hjá okkur. Það var erfitt að ná aftur
upp stemningunni þegar mörkin voru
að leka inn hjá okkur. Einhvern veg-
inn náðum við þó að djöfla þessu í
gang og troða inn sigurmarki. Þetta
eru tvö mikilvæg stig og hvert stig
skiptir máli fyrir okkur. Við þurfum
að vinna þá leiki sem eftir eru til að
komast í úrslitakeppnina. Það er ekk-
ert annað í boði,“ sagði Björn enn-
fremur en SA mætir SR fyrir norðan
á þriðjudaginn.
Björn felldi Björninn
Íshokkímaður ársins, Björn Már Jakobsson, skoraði gullmark fyrir SA Víkinga
gegn Birninum í Egilshöllinni Björninn vann upp þriggja marka forskot SA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átök Josh Gribben spilandi þjálfari SA Víkinga liggur á ísnum og Birgir Jakob Hansen úr Birninum hoppar yfir hann.
Spánverjar urðu að sætta sig við tap gegn
Dönum í undanúrslitum Evrópumeistaramóts-
ins í handknattleik karla í Belgrad í gærkvöldi
og leika um 3. sætið á mótinu. Er um end-
urtekið efni að ræða frá því á heimsmeist-
aramótinu í Svíþjóð í fyrra en þá töpuðu Spán-
verjar einnig fyrir Dönum í undanúrslitum.
Spánverjar hafa leikið glimrandi vel í þess-
um tveimur stórmótum eins og tölfræðin sýnir
glögglega ef við rýnum í hana. Engu að síður
hefur þeim ekki tekist að komast í úrslitaleik-
ina heldur hafa þeir þurft að gera sér að góðu
að leika um bronsverðlaunin
Á HM í Svíþjóð í fyrra voru Spánverjar tap-
lausir þegar kom að undanúrslitaleiknum.
Þeir gerðu jafntefli við Frakka í riðlakeppn-
inni en Frakkar urðu heimsmeistarar. Spán-
verjar unnu hins vegar hina sjö leiki sína í
riðlakeppninni og í milliriðlinum þar sem við
Íslendingar töpuðum fyrir þeim Jönköping.
Spánverjar unnu síðan heimamenn Svía í
leiknum um bronsverðlaunin.
Á EM í Serbíu voru Spánverjar einnig á
sigurbraut þar til í gærkvöldi. Þeir unnu
fimm af sex leikjum sínum í riðlakeppninni og
í milliriðlinum en gerðu jafntefli við Ungverja
í riðlakeppninni. Þegar upp er staðið hafa
Spánverjar því einungis tapað tveimur leikj-
um af sautján í síðuustu tveimur stórmótum.
kris@mbl.is
Spánverjar tapa einungis fyrir Dönum
Vonsvikinn Juan Garcia
leikmaður Spánverja.
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Það var Frakki sem skrifaði Ösku-
buskuævintýrið eftirminnilega sem
oft er vitnað til þegar eitthvað ótrú-
legt gerist. Danir skrifuðu hinsvegar
ævintýri sem getur vel staðið eitt og
sér, þegar liðið vann Spán í undan-
úrslitum, 25:24, á Evrópumótinu í
handknattleik sem fram fer í Serbíu.
Danir urðu þar með fyrsta liðið síðan
núverandi fyrirkomulag var tekið upp
árið 2002, til að komast í úrslitaleikinn
án þess að taka með sér stig úr riðla-
keppninni í milliriðil.
Þó að Danir hafi alltaf verið líklegir
til árangurs fyrir mótið eftir góðan
árangur á heimsmeistaramótinu í
fyrra, þá var útlitið ekki gott eftir
riðlakeppnina. Síðan þá hafa Danir
hinsvegar sýnt að liðið er eitt af fimm
bestu í heiminum um þessar mundir
og leikurinn gegn Spánverjum var
engin undantekning. Það mátti þó vel
sjá að álagið við að spila sjö leiki á
innan við tveimur vikum er mikið.
Leikmenn spiluðu hægan bolta, ekki
var mikið um hraðaupphlaup og
snerpa þeirra sem spilað hafa mest á
mótinu var lítil sem engin. Það átti þó
við um bæði lið og voru það Danir sem
gátu kreist fram meiri orku til að
leggja Spánverja að velli annað árið í
röð í undanúrslitum stórmóts. Í fyrra
unnu þeir Spánverja 28:24 á HM í
Svíþjóð.
Rasmus Lauge Schmidt átti frá-
bæran leik hjá Dönum og sýndi að
hann á vel heima í liðinu. Hann var
markahæstur með 6 mörk, tveimur
meira en þeir Mikkel Hansen og René
Torft Hansen. Þá átti markvörður
Dana, Niklas Landin Jacobsen, einnig
mjög góðan leik með 15 skot varin.
Hjá Spánverjum var það Julen
Aguinagalde línumaðurinn öflugi sem
lék best og skoraði úr öllum 5 skotum
sínum. Jose Manuel Sierra varði um
20 skot í marki Spánar, þar af eitt víti.
Danir mæta Serbum í úrslitum á
sunnudaginn.
Reuters
Góður Hinn íslenskættaði Hans Lindberg fagnar marki gegn Spáni.
Unnu Spánverja annað árið í röð
Mögnuð sigur-
ganga Dana
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2012
ÍÞRÓTTIR 3