Monitor - 19.01.2012, Side 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
ALLTAF TIL STAÐAR
OLSEN-BRÆÐUR
Hvað hyggist þið gera í Kaupmannahöfn fyrir utan
það að halda tryllta tónleika?
Við munum að sjálfsögðu nýta ferðina í smá hópefl i.
Við förum trúlega út að borða, skoðum Kaupmanna-
höfn og skemmtum okkur.
Segjum sem svo að það myndi mæta hellingur af
Dönum á tónleikana, hvaða lag úr ykkar lagalista
heldur þú að myndi höfða best til þeirra?
Ég hugsa að það væri Sunny Day in June því það er
alltaf sól í júnímánuði í Danmörku.
Má búast við því að þið leikið danska slagara eins
og „Vi er røde, vi er hvide“ og „Fly on the Wings of
Love“ á tónleikunum?
Það er aldrei að vita. Það hefur ekki verið rætt enn en
verður hugsanlega rætt á næsta hljómsveitarfundi.
Það gæti alveg verið að það laumist inn eitt og eitt
danskt viðlag, eins og til dæmis úr laginu Papirsklip
með Kim Larsen.
Ef Olsen-bræðurnir sjálfi r byðu fram krafta sína á
tónleikunum, mynduð þið leyfa þeim að syngja eitt
af lögunum á prógramminu ykkar? Ef já, hvaða lag?
Það yrði klárlega Always Gonna Be There af því þeir
eru alltaf til staðar hvor fyrir annan.
Hvað er framundan hjá hljómsveitinni á árinu 2012?
Er forsprakkinn búinn að semja nýtt efni?
Já, hann er búinn að semja eitthvað af nýju efni svo
það eru hugsanlega upptökur á næstu mánuðum. Ég
vona bara að við getum gefi ð eitthvað meira efni út
sem allra fyrst.
Hvort kannt þú persónulega betur við að spila
á góðum tónleikum eða að taka upp gott efni í
hljóðveri?
Ég hugsa að það sé skemmtilegast að spila á góðum
tónleikum og fara svo í stúdíóið eftir tónleikana.
elg
M
yn
d/
Kr
is
tin
n
Fyrsta nafnið sem treður upp á tónleikaröðinni Músíkpartý,
er Jón Jónsson. Monitor heyrði í Kristjáni Sturlu Bjarnasyni,
hljómborðsleikara, fyrir komandi tónleika í kóngsins Köben.
KRISTJÁN STURLA
Á 30 SEKÚNDUM
Fyrstu sex: 170185.
Uppáhaldsskyndibiti: Hamborgari.
Uppáhaldslitur í Trivial Pursuit:
Bleikur.
Uppáhaldsfyrirbæri frá Danmörku:
Lego.
Æskuátrúnaðargoð: Indiana Jones.
MÚSÍKPARTÝ
Í KAUPINHAFN
Tónleikaröðin Músíkpartý fer af stað
helgina 27. – 29. janúar í Kaupmanna-
höfn. MonitorTV verður að sjálfsögðu
á staðnum til fanga stemninguna og
munu myndskeiðin birtast á mbl.is í
kjölfarið. Dagskrá tónleikaraðarinnar er
eftirfarandi:
27. – 29. janúar: Jón Jónsson
3. – 5. febrúar: Dikta
17. – 19. febrúar: Siggi Hlö.
24. – 26. febrúar: Friðrik Dór og Steindi
Tónleikarnir fara fram í Bryggen á
laugardagskvöldum hverrar helgar.
KRISS ROKK FÉKK BINNA BASSA
MEÐ SÉR TIL HALDS OG TRAUSTS