Monitor - 19.01.2012, Blaðsíða 6

Monitor - 19.01.2012, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Pínu umbrotsperri Hvenær fæddist hugmyndin að Nude magazine? Hún fæddist rétt fyrir áramótin í desember 2009. Ég var að vinna sem ma rkaðs- stjóri og var í fæðingarorlofi en fyrirtækið sem ég var að vinna hjá fór á h ausinn svo ég fór að leiða hugann að því hvað ég gæti farið að gera. Vinnan sem ég var búin að vera í var orðin svona þægileg innivinna og ég var ekkert alveg a ð fi nna mig þar lengur. Svo ég hugsaði hvað væri það skemmtilegasta í heimi að vinna við og fékk það út að það væri að vinna í tískubransanum með reglulegu m ferðum til New York. Þetta sagði ég í gríni við vinkonur mínar á sínum tím a en þetta er akkúrat það sem ég er að gera í dag. Og þér fannst réttast að redda þessu bara sjálf? Tískublöðin heilluðu en það var ekkert blað hér á Íslandi sem mig langað i að vera á. Svo ég hugsaði hvort ég ætti að fl ytja til útlanda til að láta draum inn rætast og eyða mörgum árum í að vinna mig upp. En svo ákvað ég að ger a þetta bara sjálf. Var ekki mikið mál að láta hugmyndina verða að veruleika? Í raun og veru ekki. Það voru ekki margir sem höfðu trú á mér en þetta tó k ekki langan tíma. Fyrsta blaðið var klárt í lok mars 2010 og gefi ð út í apríl. Þú ert menntaður „multimedia integrator,“ ekki satt? Jú, multimedia integrator er samblanda af grafískri hönnun, forritun, þrí víddar- hönnun og fl eiru og í skólanum lærðum við hvernig má nýta þessa þekk ingu og setja hana saman. Netblöð voru ekki til þegar ég lærði þetta en ég útskri faðist úr tækniháskóla í Danmörku 2002. En með netblaði er ég í raun að hnýta saman alla þessa þætti. Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku? Ég hafði í raun meiri ástríðu fyrir tímaritum. Ég hef alltaf elskað tímarit o g safnað þeim. Ég er í raun svona pínu umbrotsperri (e. layout pervert) og é g fæ ótrúlega mikið út úr því að skoða blöð. Ég hef líka mjög gaman af tísk u en tímarita-ástríðan er sterkari. Er blaðið bara fyrir konur? Í raun og veru ekki. Auðvitað miðum við blaðið að konum en samkvæmt okkar tölum eru um 30% lesenda karlkyns. Okkur fi nnst mjög gaman að það sé u svona margir strákar að fylgjast með. Hvað fi nnst þér fallegt í fari kvenna? Mér fi nnst gaman þegar konur hafa sterkan, persónulegan stíl. Sjálfstrau st og útgeislun skipta líka máli því ef þú hefur sjálfstraust þá kemur allt hitt. S terkar konur kann ég vel að meta. Sumir segja að Internetið sé að taka við af pappírnum. Sérðu fyrir þér að gefa einhvern tímann út Nude á pappír? Mig langar það en það gæti verið hættulegur bransi að fara inn í. En það væri gaman að gera það og þá myndi ég ekki gera það mánaðarlega því þá yrð i það bara kvöð. Ég myndi frekar vilja gefa út lúxus-útgáfur að vori og hausti s em ég gæti dundað mér við og haft alveg fullkomnar. Þar sem umbrotsperrinn myndi njóta sín í botn. Af hverju heitir blaðið Nude? Þetta er liturinn „nude“ sem er uppáhaldsliturinn minn. Hann er svo hlu tlaus og er góður grunnur fyrir síbreytilega tískustrauma. Ég vildi ekki að nafnið t æki yfi r- höndina. Auðvitað vissi ég að fólk myndi hugsa um nekt og halda að þet ta væri klámblað en það hefur bara hjálpað okkur þó svo að þetta sé alls ekki klá mblað. Ég er svo saklaus að ég hélt að fólk myndi fyrst hugsa um litinn (hlær). Hvar sérðu þig eftir 5 ár? Ég hef alltaf verið með 5 ára plan en núna hefur allt gerst svo hratt þann ig að ég er komin fram úr mínum plönum. Ég er því að reyna að fi nna út úr því hvar ég verð eftir 5 ár en ég held að við verðum búin að stækka og farin ú t fyrir landsteinana. Þegar þú ert á Netinu þá eru allir vegir færir. jrj M yn d/ Ó m ar Jóhanna Björg Christensen er ritstjóri og stofnandi veftímaritsins Nude magazine. Fyrir rúmum tveimur árum fékk hún þessa fl ugu í hausinn og setti allt á fullt til að láta drauminn sinn um tískustörf og útlandaferðir ræta st. TÓK ÞÁTT Í GULLEGGINU Jóhanna Björg tók þátt í hugmyndakeppni Innovit, Gullegginu, árið 2010 og endaði í þriðja sæti keppninnar. „Þetta hjálpaði mér að ýta mér síðasta skrefi ð. Þau sögðu mér hvað væri gott við hugmyndina og hvað ég þyrfti að bæta. Ég gerði viðskiptaáætlun sem er eitthvað sem ég hefði aldrei gert. Ég í raun tók þetta af meiri alvöru og fór að vinna heimavinnuna mína. Það að lenda í þriðja sæti gaf mér aukinn trúverðugleika og það hjálpar líka helling. Ég mæli hiklaust með Gullegginu.“ Allir geta tekið þátt í keppninni en skilafrestur hugmynda er 22. janúar og mega allir taka þátt. Verðlaunin eru ekki af verri endanum en sigurvegarinn fær peningaverðlaun upp á 1.000.000 króna og ráðgjöf frá Innovit að verðmæti 600.000 krónur. Nánari upplýsingar á www.innovit.is. ÍS L E N SK A S IA .IS M S A 58 03 5 01 /1 2 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN MS.IS PRÓTEINDRYKKURINN SEM ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.