Morgunblaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012
íþróttir
Frjálsar Sleggjukastarinn Bergur Ingi Pétursson er að komast af stað á ný eftir langvarandi
meiðsli og er kominn með Ólympíuleikana í sigtið. Fer til Svíþjóðar ef fjárhagur leyfir. 4
Íþróttir
mbl.is
Þegar fótbolta-
maður skorar
fjögur mörk í
leik mætti ætla
að þau myndu
duga til sigurs.
Diego Milito,
argentínski
framherjinn hjá
Inter Mílanó,
upplifði það í
gærkvöld að
skora fernu en fara bara með eitt
stig af velli. Inter gerði jafntefli,
4:4, við Palermo í bráðfjörugum
leik á San Siro. Milito jafnaði 1:1 og
2:2, og kom Inter í 3:2 og síðast í 4:3
á 69. mínútu. Fabrizio Miccoli var
hinsvegar hetja Palermo. Hann
skoraði þrennu og jafnaði metin í
4:4 þegar fimm mínútur voru eftir
af leiknum.
Annars gerði snjókoma Ítölum
lífið leitt og fjórum leikjum í gær og
fyrradag var frestað vegna veðurs
og vallarskilyrða. vs@mbl.is
Ferna dugði
ekki til sigurs
Diego
Milito
Diego Alves,
markvörður Val-
encia, var hetja
liðsins í gær-
kvöld þegar
hann varði víta-
spyrnu frá Lionel
Messi. Það gerði
hann í fyrri und-
anúrslitaleiknum
gegn Barcleona í
spænsku bik-
arkeppninni í knattspyrnu og þar
með urðu lokatölur í Valencia, 1:1.
Jonas kom heimamönnum yfir
snemma leiks en Carles Puyol jafn-
aði fljótlega fyrir Börsunga og þar
við sat. Liðin eiga eftir að mætast
aftur á Camp Nou næsta miðviku-
dag. vs@mbl.is
Messi brást á
punktinum
Lionel
Messi
Kiril Lazarov,
stórskyttan frá
Makedóníu, gæti
verið á leið til
Hamburg í
Þýskalandi að
þessu keppn-
istímabili loknu.
Ekki nóg með
það, heldur gæti
þjálfari hans hjá
Atlético Madrid á
Spáni, hinn gamalkunni Talant
Dujshebaev, tekið við stjórn þýska
liðsins. Þetta kom fram í fjölmiðlum
í Makedóníu í gær. Per Carlén var
rekinn úr starfi þjálfara Hamburg
fyrr í vetur. Lazarov varð marka-
hæsti leikmaðurinn á EM í Serbíu
og skoraði 61 mark, sem er marka-
met í Evrópukeppninni. vs@mbl.is
Tveir stórir til
Hamborgar?
Kiril
Lazarov
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Skautafélagið Björninn mun tefla fram öflugu liði
á lokaspretti Íslandsmóts karla í íshokkí. Þrír
fyrrverandi leikmenn liðsins höfðu félagaskipti yf-
ir í Björninn frá Amager í Danmörku daginn áður
en félagaskiptaglugginn lokaði 1. febrúar. Um er
að ræða landsliðsmennina, Gunnar Guðmundsson,
Róbert Frey Pálsson og Úlfar Jón Andrésson.
Allir voru þeir í herbúðum félagsins á síðasta
keppnistímabili en héldu til Danmerkur síðastliðið
sumar. Gengu þeir til liðs við Amager í dönsku B-
deildinni en liðinu var þá stjórnað af Olaf Eller
landsliðsþjálfara Íslands. Eller tók hins vegar við
úrvalsdeildarliði Esbjerg á miðju keppnistímabili.
Hinir þrír Íslendingarnir hjá Amager, Jón B.
Gíslason, Jónas Breki Magnússon og Brynjar
Þórðarson munu leika með Amager út tímabilið.
Gera atlögu að titlinum
Karlalið Bjarnarins hefur aldrei orðið Íslands-
meistari en ætti nú að geta gert atlögu að titl-
inum. Eins og sakir standa eru mestar líkur á því
að Skautafélag Reykjavíkur og Björninn leiki til
úrslita um titilinn. Gunnar, Róbert og Úlfar gætu
spilað sinn fyrsta leik þegar þessi félög mætast í
deildinni á þriðjudagskvöldið.
Björninn lék um titilinn fyrir tveimur árum en
tapaði þá fyrir Skautafélagi Akureyrar. Þremenn-
ingarnir voru þá allir í liði Bjarnarins og var
Gunnar fyrirliði liðsins. Úlfar og Róbert léku báð-
ir með landsliðinu á HM í Króatíu í fyrra en Gunn-
ar var meiddur.
Björninn verður sterkari
Þrír landsliðsmenn í Grafarvoginn fyrir lokasprett Íslandsmótsins í íshokkíi
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Ég horfi fyrst og fremst á þetta sem viðurkenn-
ingu fyrir alla íslenska golfvelli og íþróttina á Ís-
landi. Með þessu er verið að gefa íslensku golfi
vissan gæðastimpil,“ sagði Ólafur Þór Ágústsson,
framkvæmdastjóri Keilis, þegar Morgunblaðið
innti hann í gær eftir viðbrögðum við því að
Hvaleyrarvöllur rataði inn á lista yfir 100 bestu
golfvelli í Evrópu hjá netmiðlinum Top100
golfcourses.
Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst hefur
íslenskur golfvöllur ekki ratað inn á slíka lista
fyrr en netmiðillinn igolf.is vakti athygli á listan-
um á þriðjudag.
Ýmsir golffjölmiðlar búa reglulega til ýmsa
lista yfir bestu golfvellina í heiminum eða á
ákveðnum svæðum. Í þessu tilfelli er um að ræða
breskan vef og valdi hann hundrað bestu golf-
vellina í Evrópu utan Bretlands og er Hvaleyrin í
99. sæti. Ólafur hafði ekki haft veður af því að
hinn glæsilegi völlur þeirra Hafnfirðinga myndi
rata inn á listann.
„Ég hafði ekki hugmynd um þetta fyrr en mér
var bent á þetta. Við höfum alltaf verið með bull-
andi minnimáttarkennd gagnvart golfvöllunum
okkar en það er engin ástæða til þess. Ætli það
sé ekki nokkurn veginn það eina sem við Íslend-
ingar höfum verið með minnimáttarkennd út af
gagnvart öðrum þjóðum,“ sagði Ólafur léttur.
Bestu meðmælin
Ólafur Þór er með vallarstjóramenntun frá
Skotlandi og var vallarstjóri á Hvaleyrinni í
mörg ár áður en hann tók við framkvæmda-
stjórastarfinu af föður sínum. Telur hann við-
urkenningu sem þessa auka líkurnar á því að Ís-
lendingar geti haldið stærri mót hérlendis en
hingað til?
„Það er engin spurning. Það er sterkt vopn
fyrir okkur sem golfþjóð að geta bent á að við
séum að fá viðurkenningar fyrir það sem við er-
um að gera. Eins og komið er inn á í umsögninni
þá er viðkomandi greinarhöfundur mjög ánægð-
ur með ástand og uppsetningu vallarins. Það eru
bestu meðmæli sem maður fær í þessum bransa.
Við erum alveg myljandi ánægðir með þetta,“
sagði Ólafur ennfremur og bætir því við að
vinnubrögð íslenskra vallarstjóra séu farin að
vekja athygli erlendis.
Framleiðendur farnir að koma hingað
„Það eru að verða einhver fimmtán ár síðan
við fórum fyrst að mennta okkur í golfvallarfræð-
unum. Við erum farnir að vekja athygli fyrir það
hvernig við viðhöldum golfvöllunum okkar. Við
rekum þá á sjálfbæran hátt, sérstaklega í sam-
anburði við Bandaríkin og Suður-Evrópu. Við
gerum þetta upp á gamla móðinn að mörgu leyti.
Sem dæmi þá notum nánast engin eiturefni og
lítið af áburði. Framleiðendur í bransanum eru
farnir að koma hingað í golfferðir. Í sumar kem-
ur einn stærsti golfvallarvélaframleiðandi í heim-
inum með sína stærstu viðskiptavini til Íslands í
golfferð. Hann er að gera það annað árið í röð og
það er bara ótrúlegt,“ sagði Ólafur Þór Ágústs-
son við Morgunblaðið.
Viðurkenning sterkt vopn
Hvaleyrarvöllur á lista yfir 100 bestu golfvelli í Evrópu Eykur líkurnar á að
fá stærri golfmót til landsins Vinnubrögð vallarstjóra vekja athygli erlendis
Morgunblaðið/Ernir
Hvaleyrarvöllur Landslagið við völlinn skemmir ekki fyrir en haf og hraun mynda umgjörðina.