Morgunblaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 4
HANDBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Færeyska handknattleiksliðið Neistin í Færeyjum skartar nú ís- lenskum bræðrum í liði sínu. Finn- ur Hansson hefur leikið með því síðustu árin en í vikunni gekk bróð- ir hans, Daníel, í raðir félagsins. Hann verður í láni hjá færeyska liðinu frá Íslandsmeisturum FH út tímabilið en Daníel kom til FH frá Stjörnunni síðastliðið sumar. Finnur er 32 ára gamall og leik- ur í stöðu skyttu en Daníel er 21 árs gamall hornamaður. Báðir eru þeir synir Hans Guðmundssonar sem gerði garðinn frægan með FH-ingum á árum áður og lék 32 leiki með íslenska A-landsliðinu þar sem hann skoraði 105 mörk. Kom fyrst til Færeyja fyrir 14 árum Finnur er orðinn öllu vanur í Færeyjum en 14 ár eru liðin frá því hann kom fyrst til eyjanna. Hann hefur komið heim til Íslands í stuttan tíma tvívegis á þessum tíma og spilað með FH en hann hefur spilað með fjórum liðum í Færeyjum og með þeim öllum hef- ur hann orðið meistari, annað hvort landsmeistari eða bikarmeistari. Finnur ákvað að taka upp færeyskt ríkisfang og var þá í kjölfarið val- inn í færeyska landsliðið. Hann hefur spilað 14 landsleiki fyrir Færeyjar og lék til að mynda með Færeyingum í undankeppni fyrir HM 2011. Finnur er á sínu fimmta ári í herbúðum Neistans en hann hefur einnig leikið með Kyndli, H-71 og Strandar Íþróttafélagi. Finnur og félagar hans í Neistanum hafa hampað færeyska meistaratitlinum síðustu tvö árin og hann varð einn- ig meistari með liði Kyndils og bik- armeistari með liðum H71 og Strandar Íþróttafélagi. Þess má geta að karl faðir hans lék með liði H71 á sínum tíma. „Ég er bara virkilega ánægður hér í Færeyjum,“ sagði Finnur við Morgunblaðið en hann starfar sem sölumaður samhliða því að spila með liði Neistans. Sló út gamla lið sitt og pabba Finnur er ánægður með að hafa fengið bróður sinn í liðið en þeir eru samfeðra. „Daníel er örvhentur hornamað- ur. Við vorum búnir að vera í vand- ræðum með þessa stöðu og þegar hann kláraði skólann nú um ára- mótin þá hafði ég samband við FH- ingana og spurði hvort við gætum ekki fengið hann að láni. Þeir voru til í það og nú er hann byrjaður að spila með okkur og ég veit að hann á eftir að standa sig vel,“ sagði Finnur. Fyrsti leikur Daníels með liði Neistans var undanúrslitaleikur í bikarnum um síðustu helgi þar sem Neistin sló út H71, gamla lið Finns og föður hans. Neistin er því komið í úrslit í bikarkeppninni og er sem stendur í þriðja sæti í deildinni. „Við byrjuðum mótið illa en við höfum verið að sækja í okkur veðr- ið og við stefnum á að ná öðru sæt- inu og komast í úrslit um meist- aratitilinn en tvö efstu liðin eftir deildakeppnina leika til úrslita,“ sagði Finnur. KÍF frá Kollafirði er langefst í færeysku úrvalsdeildinni með 24 stig en VÍF frá Vestmanna og Neistin eru með 15 stig og H71 er með 14 stig. Sjö lið leika í deildinni sem er sú efsta af þremur í Fær- eyjum. Neistinn tók þátt í Evr- ópukeppninni í haust. Liðið sló út Latsia frá Kýpur í 1. umferð EHF- keppninnar, vann 30:17 á Kýpur og 37:25 í Þórshöfn, en féll úr leik fyr- ir portúgalska liðinu Madeira SAD í 2. umferðinni. Tapaði þá 20:34 í Þórshöfn og 17:31 á eyjunni Ma- deira. Barnabarn Bigga Björns Handboltinn er Finni í blóð bor- inn. Eins og áður segir var faðir hans, Hans Guðmundsson, sig- ursæll í liði FH auk þess sem hann lék í nokkur ár með landsliðinu og var atvinnumaður á Spáni um tíma. Móðir hans, Sólveig Birgisdóttir, lék með meistaraflokki FH í mörg ár og afi hans, Birgir Björnsson, lék 500 leiki með FH og lék með landsliðinu ásamt því að þjálfa það en Birgir lést á síðasta ári. Spurður hvar handboltinn í Fær- eyjum standi í samanburði við bolt- ann á Íslandi sagði Finnur; „Það hafa orðið miklar framfarir hér en ég myndi segja að bestu liðin væru líklega að berjast í neðri hlutanum í úrvalsdeildinni heima á Íslandi. Við höfum síðustu árin komið til Ís- lands og spilað á opna Reykjavík- urmótinu og Ragnarsmótinu og höfum verið að standa í íslensku liðunum,“ sagði Finnur, sem er bú- settur í Miðvogi og á þar eiginkonu og fjögur börn. Gat ekki hafnað þessu boði Spurður út færeyska landsliðið sagði Finnur; „Færeyingar vildu fá mig til að spila með landsliðinu í undankeppni fyrir HM 2011 og ég gat ekki hafnað því boði. Þetta var það eina sem ég átti eftir að prófa á ferlinum,“ sagði Finnur en Fær- eyingar voru í riðli með Svisslend- ingum, Kýpurbúum og Hvít- Rússum og höfnuðu í neðsta sæti. Finnur fékk bróður sinn til færeysku meistaranna  Finnur og Daníel Hanssynir spila með Neistanum  Finnur fékk færeyskt rík- isfang og spilar með landsliðinu Bræður Daníel Hansson og Finnur Hansson eru nú orðnir samherjar með Neistanum í Þórshöfn. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012 FRJÁLSAR Kristján Jónsson kris@mbl.is FH-ingurinn Bergur Ingi Pétursson, Íslandsmethafi í sleggjukasti, leggur nú drög að því að flytjast tíma- bundið til Svíþjóðar. Bergur hefur sett stefnuna á að gera atlögu að ólympíulágmarkinu í greininni og hefur hug á því að einbeita sér að æfingum og keppni á árinu. „Ég ætla að reyna að komast til Svíþjóðar og hefja þar æfingar á fullu. Vonandi kemst ég í keppnisform til þess að ná lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana. Ef mér tekst að fjármagna dæmið mun ég fara sem fyrst og það væri draumur að komast strax út í næstu viku,“ sagði Bergur í samtali við Morgunblaðið í gær Ef áætlanir hans ganga eftir mun hann dvelja í bæn- um Växjö í suðurhluta Svíþjóðar, en þar er sjöþraut- arkonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir einnig búsett og stundar æfingar. Bergur kemur þá til með að æfa undir handleiðslu sænska þjálfarans Pers Karlssons sem er fyrrverandi sleggjukastari og á best 75,78 metra. „Þetta lítur allt saman ansi vel út og það er bara spurning hvort pen- ingamálin gangi upp,“ sagði Bergur ennfremur. Fór í speglun á hné Íslandsmet Bergs er 74,48 metrar sem hann setti í Hafnarfirði vorið 2008 og fór í kjölfarið á Ólympíu- leikana í Peking en lágmarkið er 74 metrar. Að sögn Bergs mun það taka hann nokkra mánuði að komast í keppnisform þar sem hann er að jafna sig af meiðslum. Ef allt gengur eftir er hann bjartsýnn á að geta gert at- lögu að lágmarkinu í sumar en hann hefur tíma til 17. júlí til að ná lágmarkinu. Bergur greindist með brjósk- los í baki síðasta vetur og síðasta sumar kom í ljós að liðþófi í hnénu var skaddaður og hann náði ekki að ljúka tímabilinu síðasta haust af þeim sökum. „Heilsan er virkilega góð. Ég myndi segja að ég væri búinn að ná mér í bakinu og ég er byrjaður að lyfta lóð- um á ný. Á næstunni ætti ég að geta byrjað að kasta af einhverju viti. Þetta lítur því rosalega vel út,“ sagði Bergur en hann fór í speglun á hné í október. „Það kom rifa í liðþófann en í spegluninni kom í ljós að þetta hafði verið lengur til staðar en ég gerði mér grein fyrir og fyrir vikið hafði brotnað upp úr brjóski. Í aðgerðinni var þetta allt þrifið upp,“ sagði Bergur Ingi Pétursson. Bergur til Svíþjóðar?  Vill komast aftur í keppnisform og gera atlögu að ólympíu- lágmarkinu  Verður þá undir leiðsögn Pers Karlssons í Växjö Morgunblaðið/Eggert Heill Bergur Ingi Pétursson hefur barist við meiðsli í baki og hné und- anfarin misseri en er nú tilbúinn í baráttuna um ólympíusæti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.