Morgunblaðið - 02.02.2012, Page 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012
Valsmennfengu í gær
til liðs við sig
Kristin Frey Sig-
urðsson, knatt-
spyrnumann úr
Fjölni, og sömdu
við hann til fjög-
urra ára. Kristinn
er 22 ára gamall
og hefur leikið á miðjunni hjá Fjölni
undanfarin ár en hann er uppalinn
hjá Grafarvogsfélaginu. Hann lék 14
leiki með því í úrvalsdeildinni tíma-
bilið 2009 og hefur síðan spilað 37
leiki og skorað 5 mörk með Fjöln-
ismönnum í 1. deildinni undanfarin
tvö ár. Þá á hann að baki 6 leiki með
yngri landsliðum Íslands.
Handknattleiksmaðurinn Krist-inn Björgúlfsson og samherjar
hans í hollenska liðinu Hurry up töp-
uðu sínum fyrsta heimaleik á tíma-
bilinu á dögunum, 23:24, fyrir liði
Bevó sem er í 3. sæti úrvalsdeild-
arinnar en Hurry up er í 2. sæti. Lið-
ið saknaði Breiðhyltingsins í leiknum
þar sem Kristinn sat mestmegnis á
varamannabekknum vegna meiðsla
sem hann varð fyrir í sigurleik á móti
Arnem Swift. Hurry up lék sinn
þriðja leik á nýju ári í vikunni og
sigraði þá Quintos 30:26. Kristinn
var þá orðinn leikfær á ný og skoraði
4 mörk.
Enska knatt-spyrnu-
félagið Totten-
ham hafði í nógu
að snúast þegar
verið var að loka
félagaskipta-
glugganum seint í
fyrrakvöld. Áður
en yfir lauk hafði
félagið lánað Steven Pienaar til
Everton og selt Roman Pavlyuc-
henko til Lokomotiv Moskva en
fengið Louis Saha lánaðan frá Ever-
ton. Þá er varnarmaðurinn Ryan
Nelsen væntanlega á leið í herbúðir
Tottenham en hann fékk sig lausan
undan samningi við Blackburn í
fyrrakvöld.
Yohan Cabaye, franski miðjumað-urinn hjá Newcastle, fer í
þriggja leikja bann fyrir að slá Adam
El-Abd, leikmann Brighton, í andlit-
ið í bikarleik liðanna á laugardaginn.
Newcastle áfrýjaði kæru enska
knattspyrnusambandsins en í gær
kvað aganefndin upp þann úrskurð
að leikmaðurinn þurfi að taka út
þriggja leikja bann fyrir brot sitt.
Réttarhöld-unum yfir
John Terry, fyr-
irliða Chelsea,
hefur verið frest-
að fram yfir úr-
slitakeppni Evr-
ópumótsins í
sumar en Terry
er sakaður um
kynþáttarníð í garð Antons Ferdin-
ands, leikmanns QPR. Ákveðið var
að taka upp þráðinn í júlí eftir Evr-
ópumót landsliða í knattspyrnu en
Terry hefur lýst yfir sakleysi sínu og
kom lögmaður hans þeim skila-
boðum til dómara þar sem Terry
mætti ekki í dómsalinn.
Jack Wilshere, leikmaður Arsenalog landsliðsmaður Englands í
knattspyrnu, verður enn lengur frá
keppni en reiknað var með því í ljós
hefur komið að hann er með álags-
brot á hælbeini. Wilshere var skor-
inn upp vegna ökklameiðsla í sept-
ember og hefur ekki spilað
fótboltaleik síðan í júní þegar hann
lék með enska landsliðinu gegn
Sviss. Búist var við honum á völlinn á
ný með Arsenal í þessum mánuði en
nú er það úr sögunni. Wilshere sagði
í gær að það væri útilokað að segja
strax hvenær hann yrði leikfær.
Fólk sport@mbl.is
Japan sem verður mótherji ís-
lenska karlalandsliðsins í hand-
knattleik í forkeppni Ólympíu-
leikanna tryggði sér sæti í
undanúrslitum á Asíumótinu í
gær. Það mátti þó ekki tæpara
standa en Japan tapaði fyrir Suð-
ur-Kóreu, 28:27, í síðasta leik
riðlakeppninnar. Japan fór engu
að síður áfram á betri innbyrðis
viðureignum við Írani og Kúveit
sem bæði sitja eftir með sárt enn-
ið ásamt Jórdaníu. Suður-Kórea fór áfram með fullt
hús stiga úr riðlinum.
Íslendingar hafa átt sína fulltrúa á mótinu en dóm-
araparið Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson
dæmdu viðureign Suður-Kóreu og Japans í gær. Þá
höfðu þeir áður dæmt tvo leiki á mótinu, meðal annars
opnunarleikinn. Þeir hafa fengið góða dóma fyrir sín
störf.
Suður-Kórea mætir gestgjöfum Sádi-Arabíu í und-
anúrslitunum en Japan sigurvegurum B-riðils, Katar.
Erfitt getur verið að meta styrk asísku þjóðanna en
fyrir utan Suður-Kóreu tapaði Japan einnig fyrir Íran
sem ekki er þekkt fyrir mörg afrek á handboltavell-
inum.
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari
Íslands, ætti því að geta, auk þess að horfa á leiki, rætt
við þá Ingvar og Jónas um japanska liðið sem er eins
og áður segir með Íslandi í riðli í undankeppninni fyrir
Ólympíuleikana.
Króatía og Síle eru auk þess í riðli Íslands sem spil-
aður verður á heimavelli fyrrnefnda liðsins 6.-8. apríl.
omt@mbl.is
Andstæðingar Íslands í undanúrslit
Jónas
Elíasson
veita. Það má hinsvegar einungis gera ef boltinn
hefur ekki farið oftar en einu sinni í leik.
Deilan snýst því fyrst og fremst um hvort boltinn
hafi verið farinn oftar en einu sinni í leik og hvort
þetta hafi í raun verið 5. liðsvilla Keflavíkur.
Kæran sem barst frá Keflavík var ekki fullnægj-
andi og hefur félagið frest þangað til á morgun að
skila inn bættri kæru. Aga- og úrskurðanefnd KKÍ
mun svo taka hana fyrir í fyrsta lagi um helgina.
Það kemur svo í ljós hvernig nefndin tekur á
kærunni og hver niðurstaðan verður. Hún hefur
nokkra kosti en einn þeirra er að spila leikinn aft-
ur verði Keflavík dæmt í hag. Ef ekki verður það
ákveðið eins fljótt og auðið er hvenær leikirnir
fara fram en mikil umræða hefur verið um málið
innan sambandsins. Njarðvík á að mæta Haukum
og Snæfell fær Stjörnuna í heimsókn. omt@mbl.is
m veldur óvissu
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Það var ekki á blaðinu til að byrja
með að fara til Randers. Menn frá
félaginu settu sig í samband við mig
og í framhaldinu fór ég og hitti þá og
skoðaði aðstæður og leist miklu bet-
ur á þetta en ég bjóst við,“ sagði
knattspyrnumaðurinn Theódór Elm-
ar Bjarnason við Morgunblaðið í
gær en hann gekk í fyrrakvöld frá
þriggja og hálfs ár samningi við
danska B-deildarliðið Randers.
Elmar, eins og hann kýs að kalla
sig, hefur spilað með sænska liðinu
IFK Gautaborg frá árinu 2009 og
þegar Morgunblaðið spjallaði við
leikmanninn var hann í æfingaferð
með Gautaborgarliðinu á Spáni en
hann kveður félaga sína í dag.
Leikstíll sem hentar mér vel
„Það er mikill hugur í Randers.
Það á að leggja töluverða peninga í
félagið og forráðamenn liðsins stefna
á að verða í einu af sex efstu sæt-
unum í efstu deild á næsta ári svo ég
er bara spenntur fyrir þessu,“ sagði
Elmar en Randers er sem stendur í
öðru sæti í B-deildinni og á því góða
möguleika á að vinna sig upp í úr-
valsdeildina.
„Ég geri mér grein fyrir því að ég
er taka vissa áhættu með því að fara
í lið sem er í næstefstu deild en
stundum verður maður að taka
áhættu til að koma sér áfram. Ég hef
alltaf verið spenntur fyrir Danmörku
og tel boltann þar henta vel mínum
leikstíl,“ sagði Elmar, sem á að baki
10 leiki með íslenska A-landsliðinu.
Nálægt því semja við Ipswich
Með nýjum þjálfara sem tók við
þjálfun IFK Gautaborg eftir tímabil-
ið varð Elmari fljótlega ljóst að hann
ætti ekki framtíð hjá liðinu og síð-
ustu vikur og mánuði hefur hann
ásamt umboðsmanni sínum verið að
kanna ýmsa möguleika. Einn var sá
að fara til enska B-deildarliðsins
Ipswich en Elmar var til reynslu hjá
félaginu í desember. „Ég var nokkuð
nálægt því að semja við Ipswich en
eftir að ég fór frá liðinu eftir um
vikudvöl hjá því gekk liðinu allt í
mót. Það hitnaði undir þjálfaranum
og ég fékk þau skilaboð að liðið ætl-
aði sér að taka inn leikmann með
reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og
þar með datt þetta upp fyrir,“ sagði
Elmar.
Hann heldur til Danmerkur frá
Benidorm á Spáni í dag og mætir á
sína fyrstu æfingu hjá Randers á
morgun og spilar svo með því æf-
ingaleik á laugardaginn. Keppni í
deildinni eftir vetrarhlé hefst síðan í
byrjun apríl.
Michael Hemmingsen, þjálfari
Randers, segist hafa fylgst með
Elmari í nokkrum leikjum með
Gautaborg.
Duglegur leikmaður
„Elmar er duglegur leikmaður.
Hann hefur góða tækni og hann get-
ur lagt sitt af mörkum til liðsins með
þeirri reynslu sem hann hefur öðlast
í Svíþjóð og með íslenska landslið-
inu,“ sagði Hemmingsen við danska
netmiðilinn bold.dk.
Randers stendur ágætlega að vígi
í dönsku B-deildinni en þangað féll
liðið nokkuð óvænt síðasta vor,
ásamt Esbjerg, liði Arnórs Smára-
sonar. Eftir 14 umferðir af 26 er
Esbjerg með 35 stig, Randers 30 og
Vejle-Kolding er í þriðja sæti með 26
stig en tvö efstu liðin fara upp.
„Ég tek vissa áhættu“
Theódór Elmar Bjarnason úr sænsku A-deildinni í B-deild í Danmörku Líst vel
á Randers sem ætlar sér stóra hluti Stefnir á efri hluta úrvalsdeildarinnar að ári
Morgunblaðið/Kristinn
Landsleikur Theódór Elmar Bjarnason og Raul Meireles í leik Íslands og Portúgals.
Elmar Bjarnason
» Hann er 24 ára gamall miðju-
maður og fór í atvinnumennsku í
árslok 2004 eftir að hafa leikið
10 leiki með KR í úrvalsdeildinni
um sumarið.
» Elmar var hjá Celtic í Skotlandi
til 2008, lék hálft annað ár með
Lyn í norsku úrvalsdeildinni og í
tvö og hálft ár með IFK Gauta-
borg í sænsku úrvalsdeildinni.
» Hann á að baki 10 landsleiki
fyrir Íslands hönd og 27 leiki með
yngri landsliðunum.
Newcastle renndi sér upp fyrir Liv-
erpool og Arsenal og í fimmta sætið í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gærkvöld með góðum útisigri á
Blackburn. Arsenal seig hinsvegar
niður í 7. sætið eftir markalaust jafn-
tefli í Bolton.
Newcastle er þá með 39 stig í 5.
sætinu og aðeins þremur stigum á
eftir Chelsea, og getur hæglega
blandað sér í baráttuna um sæti í
Meistaradeild Evrópu með þessu
áframhaldi. Liverpool er með 38 stig
og Arsenal 37 en ekkert hefur gengið
hjá Arsenal í undanförnum leikjum.
Newcastle komst snemma yfir
þegar Scott Dann skoraði sjálfs-
mark. Tim Krul, markvörður New-
castle, varði vítaspyrnu frá David
Dunn og það var síðan Gabriel
Obertan sem tryggði sigur New-
castle með marki úr skyndisókn í
uppbótartíma, 2:0.
„Seigla, góður markvörður og góð-
ur fyrirliði eru lykilatriði og við höf-
um þetta allt saman. Við vörðumst af
krafti og léku með hjartanu eins og
við höfum gert í allan vetur og þess
vegna erum við í þessari stöðu,“
sagði Alan Pardew, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, við Sky Sports eftir
leikinn.
Bolton og Arsenal gerðu 0:0 jafn-
tefli þrátt fyrir talsvert af færum á
báða bóga. Markverðir beggja liða
björguðu úr dauðafærum og Robin
van Persie átti hörkuskot í stöngina á
marki Bolton. Grétar Rafn Steinsson
lék allan leikinn með Bolton.
Aston Villa og QPR skildu jöfn,
2:2, og Djibril Cissé skoraði þar strax
á 12. mínútu í sínum fyrsta leik með
QPR. Hann kom inn í liðið í stað
Heiðars Helgusonar sem var ekki
leikfær vegna meiðsla. Bobby Za-
mora var ekki orðinn löglegur með
QPR sem missti niður 2:0 forystu í
leiknum.
Íslendingaliðin Bolton og QPR
náðu því ekki að slíta sig frá þremur
neðstu liðunum og dóla áfram rétt
fyrir ofan fallsætin. vs@mbl.is
Newcastle blandar sér í baráttuna