Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 1
Morgunblaðið/Ernir
Breytingar Kristján Þór Einarsson hefur í mörg horn
að líta þessa dagana. Meiðsli, félagaskipti og óvissa með
framhaldið.
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Kristján Þór Einarsson, kylfingur úr Mos-
fellsbæ, glímir við meiðsli í öxl og er að reyna
að fá sig góðan fyrir mótatörn sem framundan
er í háskólagolfinu í Bandaríkjunum. „Ég gat
byrjað að slá aftur fyrir þremur vikum en
hafði verið í hvíld síðan í lok árs. Ég fór ekki úr
lið en viðbeinsliðurinn mun hafa losnað frá öxl-
inni en það er flókið að útskýra þetta. Ég hef
verið í strangri sjúkraþjálfun og mátti bara
vippa og pútta. Maður þurfti að horfa á strák-
ana í liðinu fara út á völl og spila, sem var frek-
ar leiðinlegt,“ sagði Kristján sem sagðist
ennþá verkja í öxlina en vonast eftir því að
geta spilað af fullum krafti í þeim mótum sem
framundan eru.
„Ég get spilað 18 holur án þess að finna
mikið fyrir þessu en það skýrist fljótlega hvort
öxlin er tilbúin í 36 holur á dag þar sem ég þarf
að bera pokann. Ef ekki þá þarf ég að sækja
um undanþágu til að fá að nota kerru,“ sagði
Kristján þegar Morgunblaðið spjallaði við
hann í gær.
Keppnisleyfið að renna út
Ef til undanþágubeiðninnar kemur þá verð-
ur það ekki eina málið frá Kristjáni sem verð-
ur inni á borði hjá NCAA en það er samheiti
fyrir háskólaíþróttirnar í Bandaríkjunum.
Kristján er á öðru ári í Nicholls State-
skólanum og hafði hugsað sér að dvelja þar
fjóra vetur en nú eru blikur á lofti.
„Tæknilega séð er þetta síðasta önnin sem
ég má spila í háskólagolfinu. Skólinn er að
sækja um undanþágu fyrir mig hjá NCAA. Ef
ég fæ neikvætt svar við því þá veit ég ekki
hvað ég geri í framhaldinu. Þá er ekki útilokað
að ég reyni við úrtökumót fyrir PGA- eða Evr-
ópumótaröðina strax í haust en ég ætlaði ekki
að gera það fyrr en eftir fjögur ár í Bandaríkj-
unum,“ sagði Kristján sem hefur unnið flest
háskólamót íslenskra kylfinga. Þessi staða
kom flatt upp á hann og þá sem að liðinu
standa í Nicholls State.
Íþróttafólki er heimilt að keppa í fjögur ár í
háskólaíþróttunum og Kristján hafði ekki farið
í háskóla áður en hann hélt til Louisiana fyrir
tveimur árum. Tíminn sem leið frá stúdents-
prófi hans er hins vegar talinn með og þess
vegna er tími hans að renna út. NCAA virðist
því meta íslensku mótaröðina til jafns við há-
skólamótin en þar hefur Kristján leikið í nokk-
ur ár sem kunnugt er. Þar sem Kristjáni var
ekki kunnugt um þessar reglur, og hefur ekki
farið í annan háskóla, þá eru menn hjá Nic-
holls State vongóðir um að hann fái keppn-
isrétt næsta vetur en ósennilegt þykir að hann
fái að keppa í fjögur ár eins og stefnt var að.
Kristján veit ekki hvenær úr þessu fæst skorið
en vonast skiljanlega eftir niðurstöðu sem
fyrst.
Úr Kili yfir í Keili
Þegar Kristján kemur heim í sumarfrí í vor
þá mætir hann ekki á æfingar í Mosfellsbæ
heldur í Hafnarfirði. Þjálfari hans, Ingi Rúnar
Gíslason, skipti á dögunum yfir í Keili og
Kristján fylgdi honum.
„Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég
skipti um klúbb og hann verður áfram minn
þjálfari. Ég lít á þetta sem nýja áskorun. Með
fullri virðingu fyrir strákunum í GKj þá er
meiri samkeppni fyrir mig í Keili og það er ein
aðalástæðan fyrir þessu. Ég hef stærri plön
fyrir minn feril seinna meir og á þessum tíma-
punkti þarf ég á meiri samkeppni að halda,“
sagði Kristján Þór Einarsson í samtali við
Morgunblaðið.
Blikur á lofti hjá Kristjáni
Kylfingurinn Kristján Þór Einarsson orðinn Keilismaður Gæti verið á heim-
leið frá Bandaríkjunum ef hann fær ekki undanþágu Glímir við meiðsli í öxl
LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
íþróttir
Algarve Möguleikar á verðlaunasæti úr sögunni eftir ósigra gegn tveimur bestu
landsliðum Evrópu. Svíar voru of sterkir og gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik. 3
Íþróttir
mbl.is
„Ég ætlaði mér
að klára leiktíð-
ina, vinna út
samningstímann
minn hjá félag-
inu. Ég held að
mér hefði ekki
verið sagt upp ef
ég hefði verið
með lengri samn-
ing en fram á
vorið,“ sagði
Ágúst Þór Jóhannsson, sem í gær-
morgun var sagt upp starfi þjálfara
hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lev-
anger. Liðið er í 10. sæti af 12 liðum
í norsku úrvalsdeild kvenna.
„Uppsögnin var óvænt, ekki síst
þar sem ég fékk stuðningsyfirlýs-
ingu fyrir 10 dögum frá íþrótta-
stjóra félagsins. Síðan hefur hann
ekki rætt við mig og er annar
þeirra sem taka tímabundið við
þjálfun liðsins af mér. Eigum við
ekki að segja að framkoma hans sé
mjög sérstök,“ segir Ágúst.
„Ég er auðvitað ekki sáttur við
þessa ákvörðun og alls ekki sam-
mála henni. Vissulega hefur árang-
ur liðsins verið upp og ofan allt
keppnistímabilið. Meginástæða
þess er að það hefur vantað þrjá til
fjóra sterkustu leikmennina stóran
hluta leiktíðarinnar vegna meiðsla
og barnsburðar. Forráðamenn fé-
lagsins hafa ekki verið tilbúnir að
fylla upp í skörðin með því að fá
leikmenn til liðsins. Fyrir vikið hafa
ungir en afar efnilegir leikmenn
borið hitann og þungann af leik
liðsins og það nægir ekki í svo
sterkri deild,“ segir Ágúst.
„Svona er þjálfarabransinn,
menn geta átt von á því að vera
látnir fara fyrirvaralaust. Þetta er í
fyrsta sinn sem mér er sagt upp
starfi þjálfara.“
Ágúst segir það vera ofsagt í
norskum fjölmiðlum í gær að Lev-
anger verði að vinna tvo af þeim
þremur leikjum sem liðið á eftir til
þess að halda sæti sínu í úrvals-
deildinni. „Einn sigur nægir þar
sem liðið með betri innbyrðis
markatölu gegn þeim liðum sem
eru í neðri hlutanum ásamt okkur.“
Reiknar með að flytja heim
Ágúst reiknar með að flytja heim
til Íslands frekar en að færa sig um
set til Danmerkur en hann er með
tilboð frá danska úrvalsdeildarlið-
inu HC Odense. „Viðræður við
danska liðið hafa tekið lengri tíma
en ég átti von á þannig að líkurnar
á að við flytjum heim eru meiri en
minni,“ segir Ágúst.
„Næsta verkefni er að undirbúna
íslenska kvennalandsliðið fyrir tvo
mikilvæga landsleiki við Sviss í
undankeppni EM í síðari hluta
þessa mánaðar. Nú get ég einhent
mér í þann undirbúning af fullum
krafti,“ segir Ágúst Jóhannsson,
landsliðsþjálfari kvenna í hand-
knattleik og fyrrverandi þjálfari
norska úrvalsdeildarliðsins Lev-
anger. iben@mbl.is
Óvænt og
hvorki sáttur
né sammála
Ágúst Þór
Jóhannsson
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Richard Eiríkur Tahtinen, hefur valið átján manna lands-
liðshóp, sem mun keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeist-
aramóti kvenna í íshokkí í Suður-Kóreu. Landsliðshóp-
urinn dvelur á Akureyri um helgina og þá fara fram
síðustu æfingabúðirnar fyrir keppnina en Ísland leikur í B-
riðli 2. deildar.
Ísland hafnaði í 3. sæti á heimavelli í fyrra en fyr-
irkomulagi mótsins hefur nú verið breytt í takti við þær
breytingar sem gerðar voru hjá körlunum. Tveir riðlar eru
í hverri deild og er raðað í þá eftir styrkleika. Ísland er því
í neðri riðlinum í 2. deild en þaðan getur liðið unnið sig upp
í efri riðil 2. deildar en ekki upp um deild. Ísland vann sig
upp úr 4. deild í 3. deild árið 2008 en ekki var leikið árið
2009 og ekki heldur árið 2010 þar sem þá var ólympíuár.
Fyrrverandi landsliðsþjálfari
Stærstu tíðindin varðandi landsliðshópinn eru þau að
Sarah Smiley er í hópnum. Hún fékk íslenskan ríkisborg-
ararétt seint á síðasta ári eftir að hafa búið á Íslandi í fimm
ár. Hún hefur leikið með Skautafélagi Akureyrar árum
saman og er gift fyrirliða karlalandsliðsins, Ingvari Þór
Jónssyni. Sarah er frá Kanada og þjálfaði kvennalandslið
Íslands 2007, 2008 og 2011 áður en hún varð lögleg sem
leikmaður.
Richard Eiríkur mun nú stýra kvennalandsliðinu í
fyrsta skipti en hann þjálfar einnig kvennalið Bjarnarins.
Richard stýrði karlalandsliði Íslands í 2. deild HM árin
2009 og 2010 en í síðara skiptið náði liðið sínum besta ár-
angri sem svo var jafnaður í fyrra.
Tólf leikmenn frá SA
SA á tólf leikmenn í landsliðinu að þessu sinni en hinir
sex koma frá Birninum. Hópurinn er skipaður eftirtöldum
leikmönnum: Markverðir eru Karítas Sif Halldórsdóttir og
Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Varnarmenn eru Jón-
ína Margrét Guðbjartsdóttir, Anna Sonja Ágústsdóttir,
Eva María Karvelsdóttir, Guðrún Marín Viðarsdóttir,
Arndís Sigurðardóttir, Silja Rún Gunnlaugsdóttir og Lilja
María Sigfúsdóttir. Sóknarmenn eru Birna Baldursdóttir,
Bergþóra Heiðbjört Bergþórsdóttir, Sarah Smiley, Linda
Brá Sveinsdóttir, Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir, Flosrún
Vaka Jóhannesdóttir, Guðrún Blöndal, Sigríður Finn-
bogadóttir og Hanna Rut Heimisdóttir kris@mbl.is
Smiley með landsliði Íslands á HM
Áður þjálfari en nú leikmaður landsliðsins í íshokkí
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Gjaldgeng Sarah Smiley er í ís-
lenska landsliðinu sem spilar á HM í
Suður-Kóreu.