Morgunblaðið - 14.03.2012, Page 2
Í EGILSHÖLL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Söguleg stund var í Grafarvoginum í
gærkvöldi þegar Björninn fagnaði
sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli
karla í íshokkíi í sögu félagsins.
Björninn tryggði sér titilinn með 7:4
sigri á SR og sigraði 3:1 í úr-
slitarimmunni. Er þetta væntanlega
fyrsti stóri titillinn sem vinnst í
Grafarvoginum í hópíþróttum karla
en Björninn hefur tvívegis orðið Ís-
landsmeistari í kvennaflokki.
Úrslitarimma liðanna var bráð-
fjörug og þeir íshokkíunnendur sem
beðið höfðu eftir fyrsta Reykjavík-
urslagnum urðu varla fyrir von-
brigðum. Leikirnir voru í heildina
fjörugir og jafnir þar sem mörkin
vantaði ekki en minnst var skorað í
þriðja leiknum sem fór 4:2.
Réðu við spennustigið
Fyrirfram átti undirritaður von á
því að leikmenn Bjarnarins ættu
erfitt með að ráða við aðstæður í
gærkvöldi þar sem liðið gat unnið
sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á
heimavelli. Við slíkar aðstæður get-
ur spennustigið orðið ansi hátt, sér-
staklega hjá liði þar sem einungis
tveir leikmenn höfðu áður orðið Ís-
landsmeistarar. Þetta varð þó ekki
raunin því leikmenn Bjarnarins voru
nokkuð yfirvegaðir þrátt fyrir allt
og það voru frekar SR-ingar sem
brenndu sig á því að láta æsinginn
ná tökum á sér.
Í öðrum leikhluta misstu SR-
ingar einbeitinguna á kafla og var
refsað fyrir það. Þá breyttist staðan
úr 2:2 í 4:2 fyrir síðasta leikhlutann.
Varnarmenn SR sváfu á verðinum
þegar gamla brýnið Sergei Zak kom
Birninum í 3:2 en Björninn þurfti
lítið að hafa fyrir því marki. Auk
þess gerðu SR-ingar sig seka um að
næla í heldur ódýrar brottvísanir og
slíkt er ekki vænlegt til árangurs í
úrslitaleikjum.
Þáttur þjálfarans
Þjálfari Bjarnarins, David Mac-
Isaac, hlýtur því að eiga ansi stóran
þátt í titlinum. Hann tók við liði sem
er frekar ungt og hafði aldrei unnið
titilinn. Liðið hafði í sjálfu sér ekki
farið oft í úrslitarimmuna heldur.
Honum virðist hafa tekist að stjórna
spennunni nokkuð vel auk þess sem
hann þurfti að púsla liðinu saman
upp á nýtt þegar þrír fyrrverandi
lykilmenn liðsins snéru aftur frá
Danmörku, Gunnar Guðmundsson,
Úlfar Jón Andrésson og Róbert
Freyr Pálsson. Ekki er sjálfgefið að
slíkar breytingar séu endilega til
góðs rétt fyrir úrslitakeppni því
hlutverk þeirra sem spilað hafa all-
an veturinn breyttust.
Reynsla fylgdi Birki
Sjálfsagt hefur það einnig verið
stórt púsl í púsluspili Bjarnarins að
fá landsliðsmanninn Birki Árnason
til liðsins þegar hann kom heim úr
námi frá Danmörku í sumar. Birkir
var gerður að fyrirliða liðsins og var
afar mikilvægur í vörninni. Hann
kom auk þess með nokkuð inn í hóp-
inn sem þar var ekki að finna:
Reynslu af því að vinna titilinn.
Á mbl.is er að finna
myndbandsviðtöl við Steinar Pál
Veigarsson úr SR og Gunnar Guð-
mundsson, Kóp Guðjónsson, Úlfar
Jón Andrésson og Styrmi Örn
Snorrason úr Birninum auk texta-
lýsingar frá leiknum.
Íslandsmeistarar 2012 Söguleg stund hjá Birninum úr Grafarvogi, og jafnframt á Íslandsmótinu í íshokkíi, þegar félagið tryggði sér sinn fyrsta meistaratitil
með þriðja sigrinum í fjórum leikjum gegn Skautafélagi Reykjavíkur. Leikmenn Bjarnarins voru að vonum sigurreifir í leikslok.
Söguleg stund í
Grafarvoginum
Fyrsti stóri titill hverfisins í hópíþróttum karla þegar Björninn vann SR
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
Egilshöll, fjórði úrslitaleikur um Ís-
landsmeistaratitil karla í íshokkí,
þriðjudag 13. mars 2012.
Mörk/stoðsendingar Bjarnarins:
Sergei Zak 3/0, Hjörtur Geir Björns-
son 1/1, Ólafur Hrafn Björnsson 1/1,
Matthías Skjöldur Sigurðsson 1/0, Úlf-
ar Jón Andrésson 1/0, Birkir Árnason
0/1, Birgir Jakob Hansen 0/1, Andri
Helgason 0/1,
Mörk/stoðsendingar SR: Gauti Þor-
móðsson 1/2, Daniel Kolar 1/1, Björn
Róbert Sigurðarson 1/0, Egill Þor-
móðsson 1/0, Guðmundur Björg-
vinsson 0/1,
Áhorfendur: Rúmlega 500. Fullt í 400
sætum og staðið alls staðar þar sem
hægt var að standa í húsinu.
Björninn – SR 7:4
Lengjubikar karla
A-DEILD, 1. riðill:
Breiðablik – Selfoss................................. 1:0
Viggó Kristjánsson 88.
Staðan:
Fram 4 4 0 0 10:4 12
Breiðablik 4 3 0 1 10:3 9
KR 3 2 0 1 8:4 6
Víkingur Ó. 3 1 0 2 6:7 3
Selfoss 3 1 0 2 3:5 3
Þróttur R. 3 1 0 2 5:8 3
Haukar 2 0 0 2 1:3 0
BÍ/Bolungarvík 2 0 0 2 1:10 0
England
A-DEILD:
Liverpool – Everton ................................ 3:0
Steven Gerrard 34., 51., 90.
Staða efstu liða:
Man. Utd 28 21 4 3 68:27 67
Man. City 28 21 3 4 69:20 66
Tottenham 28 16 5 7 52:34 53
Arsenal 28 16 4 8 57:39 52
Chelsea 28 14 7 7 48:32 49
Newcastle 28 12 8 8 40:41 44
Liverpool 28 11 9 8 33:26 42
B-DEILD:
Cardiff – Hull ........................................... 0:3
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Cardiff.
Doncaster – Reading............................... 1:1
Brynjar Björn Gunnarsson var ekki í
leikmannahópi Reading.
Derby – Nottingham Forest ................... 1:0
Leicester – Birmingham.......................... 3:1
C-DEILD:
Colchester – Sheffield United................. 1:1
Stevenage – Oldham ................................ 1:0
Tranmere – Preston................................. 2:1
Yeovil – Scunthorpe ................................. 2:2
Meistaradeild Evrópu
16 liða úrslit, seinni leikir:
Bayern München – Basel ........................ 7:0
Mario Gomez 44., 50., 61., 67., Arjen Rob-
ben 11., 81., Thomas Müller 42.
Bayern áfram, 7:1 samanlagt.
Inter Mílanó – Marseille ......................... 2:1
Diego Milito 75., Giampaolo Pazzini 90.
(víti) – Brandao 90. Rautt spjald: Steve
Mandanda (Marseille) 90.
Jafnt, 2:2, Marseille áfram á útimarki.
KNATTSPYRNA
1. deild karla
ÍBV – Selfoss ........................................ 21:23
Stjarnan – Víkingur ............................. 22:21
ÍR – Fjölnir ........................................... 29:24
ÍR 27, Víkingur 23, Stjarnan 18, ÍBV 16,
Selfoss 16, Fjölnir 0.
Þýskaland
B-deild:
Düsseldorf – Emsdetten ..................... 31:26
Ernir Hrafn Arnarson skoraði 1 mark
fyrir Emsdetten. Fannar Þór Friðgeirsson
lék ekki með liðinu vegna meiðsla.
HANDBOLTI
Keflavík – Snæfell 59:61
Gangur leiksins: 5:0, 7:2, 7:7, 11:12, 16:12,
16:18, 21:19, 27:27, 34:32, 36:34, 36:42,
40:42, 50:47, 51:49, 53:57, 59:61.
Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 29/10
fráköst, Eboni Mangum 10/7 fráköst, Ja-
leesa Butler 8/15 fráköst/6 varin skot, Sara
Rún Hinriksdóttir 4, Birna Ingibjörg Val-
garðsdóttir 4, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2,
Hrund Jóhannsdóttir 2/4 fráköst.
Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 16/10 frák.,
Jordan Murphree 12/13 frák., Hildur
Kjartansdóttir 11/8 frák., Kieraah Marlow
8/10 frák., Helga H. Björgvinsdóttir 8, Alda
Leif Jónsdóttir 4, Rósa Indriðadóttir 2.
Staðan:
Keflavík 27 20 7 2064:1887 40
Njarðvík 26 19 7 2161:1951 38
Snæfell 27 15 12 1967:1999 30
Haukar 26 13 13 1908:1863 26
KR 26 13 13 1904:1808 26
Valur 26 11 15 1908:1928 22
Fjölnir 26 8 18 1848:2123 16
Hamar 26 6 20 1812:2013 12
Svíþjóð
Örebro – Solna................................. 120:102
Logi Gunnarsson skoraði 8 stig fyrir
Solna og átti 3 stoðsendingar.
Norrköping – 08 Stockholm............... 76:83
Helgi Már Magnússon skoraði 5 stig fyr-
ir Stockholm og tók 4 fráköst.
LF Basket – Sundsvall ...................... 105:83
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 24 stig
fyrir Sundsvall og tók 4 fráköst, Hlynur
Bæringsson skoraði 4 stig, tók 8 fráköst og
átti 5 stoðsendingar. Pavel Ermolinskij er
meiddur.
Södertälje – Jämtland....................... 100:94
Brynjar Þór Björnsson skoraði 8 stig
fyrir Jämtland.
NBA-deildin
New Jersey – Milwaukee................... 99:105
Chicago – New York .......................... 104:99
New Orleans – Charlotte..................... 71:73
San Antonio – Washington ................ 112:97
Utah – Detroit..................................... 105:90
Phoenix – Minnesota........................ 124:127
LA Clippers – Boston .......................... 85:94
KÖRFUBOLTI