Morgunblaðið - 28.06.2012, Blaðsíða 25
28. júní 2012 finnur.is 25
• Stýrishlutir
• Pakkningasett
• Ventlar
• Vatnsdælur
• Tímareimar
• Knastásar
• Legur
• Stimplar
Varahlutir sem þú
getur treyst á!
Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com
VARAHLUTAVERSLUN
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
Head í flestar gerðir bíla
Frábært verð
Við seljum bílinn þinn meðan þú slappar af.
Mikil sala!
Vilt þú selja bílinn þinn?
Settu hann á skrá hjá okkur frítt!
Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk. Sími: 580-8900
F u n a h ö f ð a 1 • 1 1 0 R e y k j a v í k • S í m i 5 6 7 4 8 4 0 • h o f d a h o l l i n h o f d a h o l l i n . i s
FYLGSTU MEÐ OKKUR Á FACEBOOK
-þegar gæði verða lífsstíll
Fullur salur af flottum bílum!
Mikil sala - komdu og skoðaðu úrvalið.
Vanir sölumenn okkar sjá um að þinn bíll
seljist fljótt og örugglega.
Tilboð
:
Fólksbíll – 6500,-
(fullt verð 9000,-)
Jepplingur – 8000,-
(fullt verð 12.000,-)
Pantaðu alþrif strax í dag
Handþvottur / Handbón
BÓNSTÖÐIN
DALVEGI 16C
Sími 571-9900 / 695-9909
Er bíllinn þinn skítugur?
um meira, nema fyrir þá sem
kjósa meira áberandi íburð í stað
hreinleika í stíl. Framsætin eru
mjög góð í bílnum en stærð bíls-
ins leyfir illa að fín aftursætin
rúmi vel 3 fullorðna farþega.
Sama á við um farangursrými Q5,
þar er ekki sérlega stórt en álíka
og í mörgum samkeppnisbílum
hans.
Undir gólfinu í farangursrými er
svokallaður „aumingi“; varadekk
sem hentar afar illa íslenskum að-
stæðum. Svo illa vildi til að stór
nagli vildi endilega eiga heima í
öðru framdekki bílsins og við
akstur utan höfuðborgarinnar fór
allur vindur úr því. Því varð að
setja „aumingjann“ undir, sem
bæði er tímafrekt þar sem dæla
þarf í hann með þar til gerðri
dælu. Og það sem verra er, ekki
mátti aka bílnum langt með slíkt
varadekk, né yfir 80 km hraða.
Stórar spurningar vakna ef þetta
myndi gerast á miðri heiði mjög
fjarri byggð. Svona er þetta
reyndar í mjög mörgum nýjum bíl-
um í dag.
Lítil en sparneytin vél
Audi Q5 má fá með þremur
gerðum véla, 2,0 l. bensínvél sem
er 208 hestöfl, 2,0 l. dísilvél sem
er 170 hestöfl og 240 hestafla og
3,0 l. dísilvél. Sá ódýrasti þeirra
var eins og reynsluakstursbíllinn,
með minni dísilvélinni en greiða
þarf þrettán hundruð þúsundum
meira fyrir þá stærri, meðan
bensínbíllinn liggur þar á milli.
Með þessa minni dísilvél er hann
engin spíttkerra sem 9,9 sek-
úndna talan upp í hundraðið segir
til um. Engu að síður togar þessi
vél vel og er alveg dugandi bíln-
um. Það er ekki fyrr en hann er
beðinn um mikið sem afl skortir
og þá er hann líka farinn að eyða
langt frá uppgefnum tölum. Það á
sem sagt það sama við þennan bíl
sem margan annan, að ef taka á
hann reglulega til kostanna borg-
ar sig að hafa hann með stóra vél
og þá eyðir hann líklega minna
fyrir vikið. En ef aka á honum á
eðlilegum og ávallt löglegum
hraða og án mikillar hraðaaukn-
ingar er hagkvæmara að velja
hann með minni vél, því þá eyðar
hann litlu.
Eftirtektarvert lítið hljóð heyrist
frá þessari vél og sperra þarf upp
eyrun til að heyra hvort bíllinn er í
gangi eður ei. Reynsluakstursbíll-
inn var sjálfskiptur með S-tronic 8
gíra skiptingu eins og í mörgum
öðrum góðum Audi-bílum og virk-
ar alltaf mjög vel, er hröð og þýð.
Stíf fjöðrun og fínir
aksturseiginleikar
Akstur Q5 er ánægjulegur og í
honum fær ökumaður meira á til-
finninguna að hann sé að aka
fólksbíl en jepplingi og það vísar á
gott. Fjöðrunin er stíf og góð og
yfirbyggingin hreyfist lítið þó lagt
sé talsvert á hann. Eitthvað vantar
þó á að ökumaður hafi nægilega
mikla tilfinningu fyrir veginum og
á það við margan jepplinginn,
hvað þá jeppann.
Mörgum finnst fjöðrun Q5 of
stíf og hörð og eðlilega eru skiptar
skoðanir um hversu mjúkir bílar
eiga að vera og sumir kjósa helst
lungamjúka fjöðrun gömlu amer-
ísku sleðanna. Aðrir kjósa frekar
harða fjöðrun sem eykur á akst-
ursgetuna og hörð fjöðrun Q5-
bílsins höfðaði vel til reynsluöku-
manns. Audi-bílar hafa svikið fáan
kaupandann síðustu ár og þessi
er engin undantekning frá því en
Audi-bílar eiga líka það sameig-
inlegt að vera dýrir. Þeir sem hafa
efni á því að eignast Audi eiga að
láta það eftir sér og sætta sig við
að líka er dýrt að bæta við auka-
hlutum í þá. Audi Q5 er mjög eigu-
legur bíll og góður kostur í þess-
um flokki bíla. Þeir sem hafa kost
á því að setja aðeins meiri pen-
ingar í bílakaup ættu að íhuga að
bæta við þremur milljónum kr. og
fá sér Audi Allroad, sem er alger-
lega geggjaður bíll.
finnurorri@gmail.com
Afl og afbragðs hönnun fara saman undir húddinu.
Baksvipurinn minnir í senn á skutbíla og aðra jeppa frá Audi.
Útlitið er úthugsað, nær sem fjær.