Morgunblaðið - 28.06.2012, Blaðsíða 23
28. júní 2012 finnur.is 23
Viðamikil bandarísk könnun sem
gerð var meðal ríflega 3.000
bandarískra bíleigenda sýnir enn
og aftur gæði Honda-bíla en
Honda trónir þar efst með
gæðaeinkunnina 81,3. Hástökkv-
arar könnunarinnar voru hins-
vegar Ford og Hyundai sem
bættu einkunn sína verulega frá
samskonar könnun fyrir 5 árum,
Ford um 37% og Hyundai um
25%. Ford náði með því fjórða
sæti framleiðenda með ein-
kunnina 70,5 og varð með því
rétt á eftir Subaru sem fékk 71,1.
Í öðru sæti var Toyota með 80,1
og var því ekki langt á eftir
Honda í gæðum að mati bíleig-
endanna. Í fimmta til sjöunda
sæti voru síðan Nissan, Volkswa-
gen og Mazda. Athygli vekur að
bandarísku merkin Chrysler,
Dodge, GMC, Buick, Jeep og
Chevrolet voru öll frekar neð-
arlega á listanum. Þó ekki eins
neðarlega og Fiat og Smart, sem
ráku lestina.
Lexus efst í lúxusbílaflokki
Árangur Ford og Hyundai kem-
ur fáum á óvart í ljósi þess að
bæði fyrirtækin hafa á síðustu
árum kynnt mikið af vönduðum
nýjungum í bílum sínum, fram-
þróaða tækni og vandaða smíði.
Áhersla beggja fyrirtækja hefur
verið á gæði umfram magn. Í
lúxusbílaflokki var Lexus, lúx-
usarmur Toyota, hæst með 80,1
og í kjölfarið komu þýsku merkin
Mercedes Benz, BMW og
Porsche, en Audi náði aðeins
áttunda sæti. Hin dýru merki
Jaguar, Cadillac, Lincoln og Land
Rover féllu öll neðar en meðaltal
lúxusbílaflokksins, sem var 71,2.
Alfa Romeo rak hinsvegar rest-
ina í flokknum.
Honda vandar enn til verka
Honda Accord er gríðarlega vinsæll bíll vestanhafs og ár eftir ár er hann
mest seldi fólksbíllinn ásamt Toyota Camry.
Honda toppar gæðaskalann
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is