Morgunblaðið - 28.06.2012, Blaðsíða 24
24 finnur.is 28. júní 2012
M
iðjubróðirinn í jeppa-
og jepplingafjölskyldu
Audi er Q5. Stóri
bróðirinn, sá sem
kom fyrstur, er Q7 og minni bróð-
irinn, sem kom á markað í fyrra,
er Q3. Þeir virðast því fara sím-
innkandi í þessari ágætu fjöl-
skyldu. Audi Q5 kom fyrst til sög-
unnar árið 2009 og er því enn af
fyrstu kynslóð. Allir eiga þessir
bílar það sameiginlegt með fólks-
bílum Audi að vera lúxusbílar og
mjög vel smíðaðir. Audi Q5 er þó
ekki að keppa við neina aumingja í
sínum flokki, bíla eins og BMW
X3, Volvo XC60, Land Rover Freel-
ander og Range Rover Evoque
sem líka eru hlaðnir lúxus og góð-
ir akstursbílar. Reynsluakstursbíll-
inn var útbúinn 2,0 l. díselvél,
þeirri aflminnst sem í boði er en
einnig þeirri sparneytnustu.
Innréttingar í sérflokki
Það væri einkennilegt ef ytra
útlit Audi Q5 væri ekki fallegt og
skæri sig frá öðrum Audi bílum í
þeim efnum. Hann er einkar
myndarlegur, ber Audi-svipinn og
er með mörg gen frá Q7. Stórt
grillið er eins og vörumerki Audi
nú um stundir og fyrir vikið er
hann með kraftalegt nef. Einhvern
veginn hefur þeim sem teiknuðu
Q5 tekist að hafa hann með létt-
ara yfirbragði en flestir jepplingar
bera og hann er eiginlega líkari
fólksbíl fyrir vikið. Innréttingar
Audi er umtalaðar sem leiðandi í
bransanum fyrir fegurð, vand-
aðan frágang, efnisval og skil-
virkni þegar kemur að stjórntækj-
um.
Innréttingin í Q5 er einmitt í
þessum flokki og erfitt að biðja
Finnur Orri Thorlacius reynsluekur Audi Q5 2,0 dísil
Ljúfur lúxusjeppi
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Audi Q5 ber sterkan ættarsvip og líkist talsvert stóra bróður, Q7. Stórt grillið gefur honum kraftalegan svip þó línur séu allar með fágaðasta móti.
Audi Q5 2,0 dísel Árgerð 2012
•Mengunargildi:
• 175 g CO2/km
• Farangursrými 530/1.560 l..
• 2,0 l. díselvél
• 170 hö/350Nm
• 8 gíra S-tr. ssk.
• 17“ álfelgur
• Eigin þyngd: 1.730 kg
• Burðargeta: 535 kg
• 0-100: 9,9 sek.
• Hámark: 204 km/klst
• Fjórhjóladrif
• Verð: 9.840.000 kr.
• 6,8 l/100 km. í bl. akstri
• Umboð: Hekla
Innréttingarnar eru með glæsilegasta móti í Q5.
Mesta úrval landsins af rafgeymum
fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi