Morgunblaðið - 28.06.2012, Blaðsíða 10
10 finnur.is 28. júní 2012
É
g sæki innblástur í umhverfið og fjölskrúðugt
mannlífið og þetta litla rými passar vel utan um
mig og mín hugðarefni,“ segir Hildur Hafstein
skartgripahönnuður sem er að koma sér fyrir á
nýrri vinnustofu við Laugaveg 20b. Skartgripalína Hildar,
Kora, samanstendur af litríkum, handunnum skartgripum
með sterka skírskotun í búddísk mala-bönd, menningu sí-
gauna og blómatíma hippakynslóðarinnar.
„Skartgripirnir eru unnir úr náttúrulegum orkusteinum,
sterling-silfri, viðarperlum, fræjum, endurunnu gömlu
skarti og gömlum textíl. Steinarnir er allir nærandi fyrir lík-
ama og sál, hafa mikinn orkumátt og veita vellíðan.“
Kora-skartið er selt í völdum verslunum í bænum; í Epal,
Kastaníu, Farmers Market, Boutique Bellu og víðar, en hluti
söluandvirðis rennur til samtakanna Sól í Tógó sem vinna
að uppbyggingu heimilis og skóla fyrir munaðarlaus börn í
Tógó í Afríku.
Í anda fjallkonunnar
Hildur segir nýja húsnæðið halda skemmtilega utan um
hönnun hennar. „Þetta er einstaklega fallegt hús með mikla
sögu. Í gamla daga var þar rekið veitingahús sem hét Fjall-
konan og orðið eitt og sér veitir mér innblástur. Húsið var
lengi í eigu Náttúrulækningafélagsins sem er dásamleg
tenging við orkusteinana sem ég vinn með. Það er því
óhætt að segja að það séu góðir andar í þessu húsi.“
Hildur vildi að húsnæðið fengi á sig sem upprunalegasta
mynd og lagðist því í framkvæmdir. „Ég tók til hendinni og
nú fá gamlir, hlaðnir steinveggir hússins að njóta sín og
mynda fallega umgjörð um litríka skartgripina. Þetta nota-
lega og hlýja umhverfi hentar mér fullkomlega og ég hlakka
til að halda áfram að skapa í þessu húsi.“
Hildur er menntaður textílhönnuður frá Listaháskóla Ís-
lands og lærði fatahönnun í Barcelona á Spáni. Hún hefur
unnið bæði sem fatahönnuður og stílisti og fengist við bún-
ingahönnun og útstillingar. Árið 2009 stofnaði hún fyr-
irtæki sitt, H.HAF, og hellti sér út í skartgripahönnun.
Fallegt og hollt
„Skartgripirnir komu eiginlega óvart til mín. Ég var byrjuð
að gæla við silfursmíði þegar ég fór í frábært nám sem heit-
ir Prisma. Þar fór hugmyndin á flug og Kora fæddist. Kora-
línan er fallegt verkefni sem hefur gengið vel og nú eru að
verða til nýir og skemmtilegir hlutir.“
Hún á fjögur börn og rekur því stórt heimili. „Ég er sæmi-
lega dugleg að elda,“ segir hún, spurð út í verkaskiptinguna
á heimilinu. „Annars sér betri helmingurinn að mestu leyti
um eldamennskuna. Við borðum almennt hollan, góðan og
fallegan mat. Áherslurnar hafa breyst með árunum en ég
held að það sé frekar ómeðvitað. Brauð og pasta er til
dæmis minna á borðum en áður, án þess að við höfum tek-
ið ákvörðun um það sérstaklega.“
Hún segist aðallega versla í Bónus en fara í sælkeraversl-
anir eftir kjöti og fiski, svo sem Kjöthöllina og Fylgifiska.
„Við förum stöku sinnum út að borða hér heima og mér
finnst Hornið alltaf notalegt, það er algjör uppáhaldsstaður
hjá strákunum okkar. Í hádeginu slær Ostabúðin öllu við,
fiskurinn þar er frábær og gott að geta líka gripið með sér
góðar olíur og osta. Annars fór ég á Sushi Samba um dag-
inn og fannst hann mjög fínn; umhverfið skemmtilegt og
maturinn góður.“
Í helgarmatinn heldur Hildur mest upp góða nautasteik
með béarnaise-sósu og á mánudögum er léttsaltaður kinn-
fiskur í uppáhaldi. Hún lætur fylgja uppskrift að mánudags-
kvöldmatnum.
beggo@mbl.is
Hildur Hafstein skartgripahönnuður
Innblástur úr umhverfinu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hildur Hafstein segir áherslurnar í mat hafa breyst með árunum og nú sé minna pasta og brauð á borðum en áður.
Hildur Hafstein hannar skartgripi úr
náttúrulegum orkusteinum og opnar
vinnustofu í húsi með sál við Laugaveg.
Léttsaltaðar þorskkinnar
þorskkinnar, léttnætursaltaðar
nýjar, íslenskar kartöflur (smælki)
smjör
graslaukur
kirsuberjatómatar
hvítvínsedik
Þorskkinnar settar í sjóðandi vatn og látnar
liggja í tvær mínútur. Smjör og graslaukur úr garð-
inum brætt saman. Nýjar íslenskar kartöflur soðn-
ar, best að nota smælki. Kirsuberjatómatar skornir
í báta og hellt yfir smávegis af hvítvínsediki.
Mánudagsdesert
Grísk jógúrt sett í litlar skálar og hellt út á slatta af
íslensku hunangi, til dæmis frá Álfsstöðum.
Það er tvennt ólíkt, hörpuskel og risahörpuskel. Sú síðarnefnda
bragðast betur, býður upp á fleiri möguleika í matreiðslu og er umtals-
vert flottari þegar hún er komin á diskinn.
Það er alltaf gott að vefja hráskinku utan um risahörpuskel og grilla í
ofni, og ennþá betra að útbúa pestó með.
Skelfiskur
risahörpuskel
hráskinka
salt
pipar
Hörpuskel skoluð í köldu
vatni, þerruð vel og létt-
krydduð með salti og
pipar. Hráskinkusneið
vafið um hverja hörpu-
skel og þeim raðað í
grunnt eldfast mót með
hvítuna upp.
Pestó
sólþurrkaðir tómatar
svartar ólífur, steinlausar
basilíka, fersk
ólífuolía, extra virgin
pipar
Öllu skellt í góðan blandara og maukið sett ofan á hörpuskelina með te-
skeið. Grillað í ofni við 180 gráður í um það bil 15 mínútur, passa að
ofelda ekki.
Best með rucola-salati og balsamik-dressingu; ólífuolíu, balsamik-ediki,
dijon-sinnepi, hunangi, hvítlauk, salti og pipar.
beggo@mbl.is
Góð blanda
Risahörpuskel með
hráskinku og pestó