Morgunblaðið - 09.07.2012, Page 4
BAKSVIÐ
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Það var hátíðleg stund í þingsal
Alþingis í gær þegar konur sem
tekið hafa sæti á Alþingi komu
saman og minntust þess að 90 ár
eru liðin frá því að Ingibjörg H.
Bjarnason var fyrst kvenna kosin
til setu á Alþingi. Frá því að Ingi-
björg tók sæti á Alþingi árið
1922 hafa samtals 230 konur
gegnt þingstörfum, sem þing-
menn eða varaþingmenn. Þar af
hafa fjórar konur gegnt embætti
forseta Alþingis og voru þær all-
ar viðstaddar hátíðarsamkomuna
en þær eru Guðrún Helgadóttir,
Salome Þorkelsdóttir, Sólveig
Pétursdóttir og Ásta R. Jóhann-
esdóttir, núverandi forseti, sem
ávarpaði samkomuna. Þá voru
einnig þrír heiðursgestir, frú
Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti
Íslands, og þær Guðrún Erlends-
dóttir og Ingibjörg Benedikt-
stóttir sem báðar hafa gegnt
embætti forseta Hæstaréttar.
Viðstaddar minntust Ingibjargar
H. Bjarnason og hennar verka en
hún var atkvæðamikil í jafnrétt-
isbaráttu 20. aldar og þá sér-
staklega í baráttunni fyrir
breyttum áherslum í menntun
kvenna. Kristín Ástgeirsdóttir
sagnfræðingur flutti erindi um
lífshlaup Ingibjargar og Helga
Guðrún Jónasdóttir stjórnmála-
fræðingur flutti erindi um stjórn-
málaþátttöku kvenna á Íslandi.
Ásta R. Jóhannesdóttir lagði í
ávarpi sínu áherslu að aldrei
mætti slaka á í jafnréttisbarátt-
unni. Og hún benti hún á þá stað-
reynd að fleiri konur hefðu setið
á Alþingi eftir síðustu kosningar
heldur en nú.
Stórkostleg breyting
„Mér finnst stórkostlegt að sjá
hvað konur eru orðnar margar á
þinginu og að sjá allan þennan
stóra hóp, maður gerði sér ekki
grein fyrir því hvað þær eru
margar,“ sagði Ragnhildur
Helgadóttir, fv. ráðherra, en hún
tók sæti á Alþingi árið 1956 þá
aðeins 26 ára gömul. „Mér var
ágætlega tekið á þinginu. Ég
varð ekki vör við fordóma en ein-
hverjir hafa kannski spurt mig af
hverju ég væri ekki heima að
sinna litlum börnum mínum. Ég
sagðist bara gera það þegar ég
væri búin að vinna, rétt eins og
aðrar konur sem unnu utan
heimilis,“ sagði Ragnhildur. Hún
sagði það einstaka gæfu að fá að
upplifa breytingu síðustu ára-
tuga.
Morgunblaðið/Golli
Tímamót Ingibjörg Benediktsdóttir og Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi forsetar Hæstaréttar, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands,
og Salome Þorkelsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og Sólveig Pétursdóttir sem allar hafa gegnt embætti forseta Alþingis.
Konur fylltu þingsal Alþingis
90 ár frá því að Ingibjörg H. Bjarnason var fyrst kvenna kosin á Alþingi
Núverandi og fyrrverandi þingkonur minntust tímamótanna í gær
Morgunblaðið/Golli
Kynslóðir Ragnhildur Helgadóttir sést hér ræða við þær Sólveigu
Pétursdóttur, Unni Brá Konráðsdóttur og Ragnheiði Elínu Árnadóttur.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
•
Benidorm
Frá kr. 108.700 með fullu fæði
Kr. 108.700 - með fullu fæði - Hotel Carlos I
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í herbergi með fullu
fæði í 2 vikur. Verð m.v. gistingu í tvíbýli með fullu fæði kr. 144.900.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 26.100. Sértilboð 17. júlí í 2 vikur.
ALLRA SÍÐUSTU SÆTIN 17. JÚLÍ
14 nátta ferð - einstakt tækifæri
Heimsferðir bjóða frábær tilboð í 14 nátta ferð til Benidorm
þann 17. júlí. Í boði er Carlos hótelið með fullu fæði.
Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins á Benidorm á
ótrúlegum kjörum.
HHH
HHH
Lögreglan fékk
tilkynningu að-
faranótt sunnu-
dags um „fjöl-
vopnaða“ unga
konu fyrir utan
skemmtistað í
miðborginni og
væri hún með
hótanir í garð
dyravarða. Konan fannst skömmu
síðar og í viðræðum við varðstjóra
viðurkenndi konan að hafa verið
með hníf skömmu áður en lög-
reglu bar að en kvaðst hafa tapað
honum á hlaupum. Hnífnum hafði
hún fundið geymslustað milli
brjósta.
Þrír voru teknir fyrir ölvun við
akstur aðfaranótt sunnudags á
höfuðborgarsvæðinu og einn við
fíkniefnaakstur. Þá var stúlka á
nítjánda ári svipt ökuréttindum
eftir að hafa verið mæld á Reykja-
víkurvegi í Hafnarfirði á 107 km
hraða þar sem hámarkshraði er 50
km/klst.
Tvær líkamsárásir voru svo til-
kynntar lögreglu á höfuðborg-
arsvæðinu. Málin eru til rann-
sóknar hjá lögreglu. pfe@mbl.is
Með hníf
á milli
brjóstanna
Þrír teknir fyrir
ölvun við akstur
Bardagaíþrótta-
maðurinn Gunnar
Nelson, sem er
einnig yfirþjálfari
hjá bardaga-
íþróttaklúbbnum
Mjölni, hefur
skrifað undir
samning hjá Ul-
timate Fighting
Championship
(UFC), sem er
stærsta samband heims í blönduðum
bardagaíþróttum (MMA).
Í tilkynningu um undirritunina
sem barst í gærkvöldi segir að fyrsti
bardagi Gunnars innan sambandsins
hafi ekki verið ákveðinn en það mál
gæti skýrst í næstu viku.
Fram kemur að Gunnar sé bæði
ánægður og stoltur af því að UFC
skyldi vilja fá hann í sínar raðir og
voni að samningurinn verði upphafið
að löngu og góðu samstarfi við UFC.
Gunnar Nelson
skrifar undir
hjá UFC
Gunnar
Nelson
Öllu fleiri mál lágu fyrir lögreglunni á Hvolsvelli í ár en
fyrri ár eftir Bestu útihátíðina sem haldin var á Gadd-
staðaflötum við Hellu um helgina.
„Hér voru eitthvað um 4-5 þúsund manns held ég, það
er svipað og áður. Það voru 55 fíkniefnamál á borði lög-
reglunnar og er það aukning frá því í fyrra. Það hefur ein
nauðgun verið kærð til okkar. Rannsóknardeild lögregl-
unnar á Selfossi sér um rannsókn á því máli,“ segir Guð-
mundur Ingi Ingason, varðstjóri lögreglunnar á Hvols-
velli. Hann segir jafnramt að þónokkrir hafi verið teknir
við ölvunarakstur auk þess sem nokkrir hefðu komið inn
með áverka eftir ryskingar.
Írskir dagar á Akranesi gengu stóráfallalaust fyrir sig
að sögn Helga Péturs Ottesen, varðstjóra lögreglunnar á
Akranesi.
„Ef stiklað er á stóru þá gekk hátíðin bara vel fyrir sig
og það hefur engin líkamsárás verið formlega kærð
ennþá. Eitthvað var þó um ryskingar, þrír voru teknir
ölvaðir við akstur og einungis minni háttar fíkniefnamál
komu á borð til okkar,“ segir Helgi. Hann tekur það þó
fram að kærur berist ekki alltaf strax eftir slíkar hátíðir.
Annars staðar fór helgin ágætlega fram og samkvæmt
lögreglunni í Vestmannaeyjum var til að mynda ekkert
útkall um laugardagsnóttina þrátt fyrir þúsundir gesta á
Goslokahátíð sem þar var haldin. davidmar@mbl.is
Útihátíðir gengu mis-
jafnlega um helgina
Ein nauðgun og yfir 50 fíkniefnabrot á Bestu útihátíðinni
Besta útihátíðin Eitthvað var um lögreglumál á Hellu.