Morgunblaðið - 09.07.2012, Side 32
Ólafur Björn Loftsson virð-
ist hafa sett nokkurs konar
Íslandsmet í golfi þegar
hann lék á 25 höggum undir
pari á meistaramóti Nes-
klúbbsins sem lauk um
helgina. Hann sló þá níu ára
gamalt met Birgis Leifs
Hafþórssonar. Ólafur hefur
ákveðið að gerast atvinnu-
maður í golfi síðsumars og
segir að næstu vikur verði
spennandi hjá sér í
íþróttinni. »1
Íslandsmet í golfi
hjá Ólafi Birni?
Þróttur úr Reykjavík, sem leikur í 1.
deild, komst í undanúrslit bik-
arkeppninnar í knattspyrnu í gær-
kvöld með því að vinna úrvalsdeild-
arlið Selfyssinga, 3:0. Guðjón
Þórðarson og lærisveinar hans í
Grindavík eru líka komnir þangað,
lögðu Víkinga 3:0 í Reykjavík, og bik-
armeistarar KR unnu Eyjamenn í
dramatískum leik, 2:1. »4-5
Þróttarar komnir í
undanúrslit bikarsins
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 191. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fyrrverandi á von á barni
2. Lokuðu sig inni á salerni flugvélar
3. Í ástaratlotum á ítalskri snekkju
4. Hamarshöllin í Hveragerði risin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hinir árlegu Stuttmyndadagar í
Reykjavík fara fram í Bíó Paradís
3.-4. september nk. Keppt er um
bestu stuttmyndina og rennur frest-
ur til að skila inn myndum út þann
10. ágúst.
Morgunblaðið/Golli
Stuttmyndadagar
í Reykjavík
Fimmtu tón-
leikar sumarsins í
tónleikaröðinni
Þriðjudagskvöld í
Þingvallakirkju
verða haldnir ann-
að kvöld. Þá mun
miðaldasönghóp-
urinn Voces Thu-
les taka lagið en
boðið verður upp á trúarlega tví-
söngva og fjögurra radda sálma eftir
17. aldar íslensk skáld þar sem lagt er
út af Davíðssálmum.
Voces Thules í
Þingvallakirkju
Óperan Don Giovanni eftir Mozart
verður flutt í Eldborgarsal Hörpu
annað kvöld. Flytjendur eru ungir
íslenskir einsöngvarar en að auki
taka Háskólakórinn og
Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins þátt í
flutningnum. Stjórn-
andi er Gunnsteinn
Ólafsson og er
það Fjölnir Ólafs-
son sem fer með
hlutverk kvenna-
bósans.
Don Giovanni í Eld-
borgarsal Hörpu
Á þriðjudag Norðan 5-10 m/s og lítilsháttar væta A-lands,
en annars bjart með köflum. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast SV-til.
Á miðvikudag og fimmtudag Hæg breytileg átt, víða létt-
skýjað og fremur hlýtt, en stöku skúrir S-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil rigning SA-lands. Kólnandi
veður og hiti 6 til 17 stig, hlýjast SV-lands.
VEÐURÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Ég heyrði að það hefðu verið hátt í
20 þúsund manns á svæðinu, það var
allavega orðið á götunni. Það er al-
veg góður slatti af fólki og framar
vonum,“ segir Nanna Bryndís Hilm-
arsdóttir, meðlimur hljómsveitar-
innar Of Monsters and Men. Sveitin,
sem hefur átt miklum vinsældum að
fagna upp á síðkastið, stóð fyrir úti-
tónleikum í Hljómskálagarðinum á
laugardagskvöldið.
„Við stoppum aðeins stutt á land-
inu en okkur langaði mjög mikið að
halda tónleika og hugsuðum okkur
vel um hvar við ættum að halda þá.
Við vildum fyrst og fremst hafa
þetta þannig að það myndi myndast
góð stemning. Okkur leist mjög vel á
að halda útitónleika þar sem allir
væru velkomnir og frítt væri inn á
svæðið og þannig varð það,“ segir
Nanna.
Veðrið var eins og best verður á
kosið og vart sást í grænan blett í
Hljómskálagarðinum, slíkur var
mannfjöldinn.
„Við vorum svolítið stressuð, við
vissum ekki alveg hvernig þetta
myndi fara. Við vorum búin að heyra
frá fólki að það væri góð stemning
fyrir þessu þannig að við vorum að
reyna að sannfæra okkur um að það
yrði ágætis mæting. Síðan komu
miklu fleiri en við bjuggumst við.
Þetta var rosalega flott sýn, að
standa uppi á sviðinu og líta yfir
mannhafið,“ segir Nanna.
Lay Low og Mammút spiluðu
einnig á tónleikunum en Lay Low og
Of Monsters and Men ferðuðust ný-
lega saman um Bandaríkin. Nanna
svaraði því aðspurð að næstu tón-
leikar sveitarinnar hér á landi yrðu
líklega í haust.
„Það er aldrei að vita nema við
reynum að halda svona skemmtilega
tónleika hérna heima aftur en við
munum pottþétt spila á Airwaves,“
segir Nanna að lokum. »28-29
Veðrið lék við ófreskjur og menn
Tónleikar Of Monsters and Men
fylltu Hljómskálagarðinn
Morgunblaðið/Golli
Aðdáun Fleiri mættu en búist var við og myndaðist mjög góð stemning meðal tónleikagesta enda fallegir tónar og gott veður ætíð góð blanda.
Mannhaf Mikill mannfjöldi kom saman í Hljómskálagarðinum á laugardaginn
þar sem sveitirnar Of Monsters and Men, Mammút og Lay Low stigu á sviðið.
„Nú er ég búin að vera
þrjú ár í ruglinu“
Helga Margrét Þorsteinsdóttir fer
ekki leynt með vonbrigði sín yfir því
að hafa ekki náð lágmarkinu í sjö-
þraut fyrir Ólympíuleikana í London.
„Maður má bara ekki fara svona fram
úr sér. Nú er ég búin að vera þrjú ár í
ruglinu. Vissulega er ég búin að bæta
mig í einhverjum greinum en ég hef
ekki getað sett saman góða þraut,“
segir Helga Margrét sem setti Ís-
landsmet 17 ára gömul, fyrir þremur
árum, en hefur ekki náð að bæta það
síðan. »8