Morgunblaðið - 27.07.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Danska varðskipið Hvidbjørnen sést hér sigla
tignarlega um Hvalfjörðinn. Skipið áði þar með-
an beðið var eftir varahlutum en fjörðurinn er
þekkt skipalægi þótt oft hafi þar verið meira um
stór skip en nú. Í Hvalfirði lá t.d. fjöldi herskipa
á tímum síðari heimstyrjaldarinnar. Þá gat þar
oft að líta stærstu herskip veraldar sem veittu
skipalestum Bandamanna vernd gegn orrustu-
skipum þýska flotans. hjaltigeir@mbl.is
Ísbjörninn beið átekta í Hvalfirði
Morgunblaðið/Eggert
Danska varðskipið F360 Hvidbjørnen hafði viðkomu í Hvalfirði á leið sinni til Grænlands
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
Bílastæðasjóður hækkar stöðu-
mælagjald á þrem gjaldsvæðum af
fjórum og taka þær breytingar gildi
núna á mánudaginn, 30. júlí. Þetta er
fyrsta hækkunin á gjaldskyldum
stæðum síðan árið 2000 og hækkar
verð á gjaldsvæðum 1, 2 og 4. Hækk-
unin nemur 50% á verði á klukku-
stund. Engin hækkun verður á
gjaldsvæði 3, sem er ætlað sem lang-
tímastæði.
Tekjur Bílastæðasjóðs af bíla-
stæðum á hverju ári eru um 275
milljónir króna. Ekki fengust upp-
lýsingar um það í gær hve miklu
hækkunin skilar.
Gjaldskyldutími lengist einnig á
laugardögum og verður frá 10:00 til
16:00 í stað þess að ljúka klukkan
13:00.
„Þetta er auðvitað tæki til að stýra
flæðinu. Víða erlendis, ef farið er að
þrengja um, er oft hækkað til að losa
um en það hefur sjaldan verið gert
hér. Gjaldsvæðin eru nánast ofnýtt
og er ekki æskilegt að þau séu jafn
mikið nýtt og þau eru hér,“ segir
Bjarki R. Kristjánsson, rekstrar-
stjóri Bílastæðasjóðs.
Stöðumælagjald
hækkað um helming
Tekjur af bílastæðum 275 milljónir
Lengri gjaldskylda á laugardögum
Bílastæði Gjaldsvæðin eru mikið not-
uð og telur Bjarki R. Kristjánsson
hærra stöðumælagjald geta losað um.
Morgunblaðið/Ómar
Fyrirtækið Icegroup, sem Kristþór
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ísa-
foldarprentsmiðju, á hlut í, var eitt af
þeim 13 fyrirtækjum sem gerðu tilboð
í Plastprent þegar Framtakssjóður
Íslands bauð fyrirtækið til sölu. Plast-
prent var selt Kvos, móðurfélagi
Odda.
Kristþór staðfestir þetta en tekur
fram að Icegroup hafi dregið sig út úr
söluferlinu. „Ég veit ekki hvaða kröf-
ur voru gerðar til þeirra. Við sýndum
fram á greiðslugetu til að greiða 250
milljónir,“ segir Kristþór þegar hann
er spurður hvort hann teldi að gerðar
hefðu verið aðrar kröfur til Kvosar en
Icegroup. Kristþór gagnrýndi sölu
Plastprents til Kvosar í grein í
Fréttablaðinu á dögunum á þeim
grundvelli að Kvos hefði fengið af-
skrifaðar 5 milljarða króna skuldir og
velti því fyrir sér hvernig fyrirtækið
hefði getað sýnt fram á 250 milljóna
króna greiðslugetu til að koma til
greina sem kaupandi Plastprents.
Fram kom hjá Þorgeiri Baldurs-
syni, forstjóra Kvosar, í frétt á mbl.is í
fyrradag að afskriftirnar hefðu til-
heyrt dótturfélaginu Infopress sem
var í erlendum fjárfestingum og
rekstri en ekki Kvos eftir að Lands-
bankinn hefði tekið félagið yfir og
gert gjaldþrota. Þorgeir sagði jafn-
framt að núverandi hluthafar Kvosar
auk nýrra innlendra fjárfesta hefðu
aflað þeirrar fjárhæðar sem þyrfti til
að sýna fram á 250 milljóna króna
fjárfestingargetu og hún lægi fyrir til
hlutafjáraukningar í félaginu þegar
Samkeppniseftirlitið hefði staðfest
kaupin.
Kristþór gat þess ekki í blaðagrein
sinni að hann hefði verið aðili að fyr-
irtæki sem bauð í Plastprent ásamt
Kvos og mörgum fleiri fyrirtækjum.
Hann segist ekki geta séð að það
skipti máli við umfjöllun um afskriftir
skulda keppinautanna. Hann hafi
ekki vitað að hann væri að bjóða á
móti Kvos og hafi ekki tekið þátt í
ferlinu til loka. helgi@mbl.is
Fyrirtæki framkvæmda-
stjórans bauð í Plastprent
Gat ekki um tengslin í gagnrýni sinni á söluna til Kvosar
Gengið var frá svörum sveitar-
stjórnar við athugasemdum sem
bárust við tillögu að nýju aðal-
skipulagi Langanesbyggðar, á fundi
umhverfis- og skipulagsnefndar og
sveitarstjórnar í gærkvöldi. Ekki
fengust upplýsingar um efni svar-
anna en athugasemdunum virðist
hafa verið hafnað.
Unnið hefur verið að nýju aðal-
skipulagi fyrir Langanesbyggð. Þar
er meðal annars gert ráð fyrir stór-
skipahöfn í Finnafirði og miklu
svæði fyrir iðnað. Horft er til þjón-
ustu við olíuvinnslu á Drekasvæð-
inu, meðal annars olíuhreinsistöð.
Fjórtán athugasemdir bárust og
voru margar frá landeigendum og
velunnurum svæðisins sem er í ná-
grenni iðnaðarsvæðsins. Á fundi
sveitarstjórnar sem Halldór Jó-
hannsson, skipulagsráðgjafi sveitar-
félagsins, sat var gengið frá svörum
við athugasemdum og verða svörin
send út fljótlega. Siggeir Stefánsson
oddviti kaus að tjá sig ekki um mál-
ið þegar leitað var eftir upplýs-
ingum um niðurstöðuna í gærkvöldi.
Sagði að hún kæmi fram í fund-
argerð sem birt yrði einhvern næstu
daga.
Inngrip í náttúruna
Einn hreppsnefndarmaður
greiddi atkvæði gegn afgreiðslunni,
Reimar Sigurjónsson, bóndi á Felli.
„Mér líkar ekki þetta inngrip í nátt-
úruna. Það er töluverð breyting
þegar grónu landi er breytt í stein-
steypt. Svo er ég með minn atvinnu-
rekstur hér og lífsviðurværi,“ segir
Reimar. Hann segir að skiptar
skoðanir séu um málið. „Mér finnst
ég heyra svolítið í fólki sem er alfar-
ið á móti þessum áformum, þeir sem
vilja þetta tala sjálfsagt við hina,“
segir Reimar. helgi@mbl.is
Gagnrýni
á áform í
Finnafirði
Sveitarstjórn svar-
ar athugasemdum
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn Íbúar Langanesbyggðar
eru ekki einhuga í skipulagsmálum.
50ÁRA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Íslandsmeistari kvenna í golfi
Gleraugnasalan | Laugarvegi 65 | 551 8780 | gleraugnasalan.is
LÆKKAÐU
FORGJÖFINA
MEÐGOLF-
GLERAUGUM
FRÁOKKUR
„Við hörm-
um þessa
hækkun og
ljóst er að
hún mun
enn frekar
fæla við-
skiptavini
frá fyrir-
tækjum í
miðborg-
inni,“ segir
Björn Jón Bragason, tals-
maður hóps kaupmanna og
fasteignaeigenda við Lauga-
veg, um nýlega hækkun stöðu-
mælagjalda í miðborginni og
víkkun gjaldskyldutíma. Hann
segir að með sama áframhaldi
muni verslun við Laugaveg
líða undir lok.
Fælir við-
skiptavini frá
HARMA HÆKKUN
Björn Jón
Bragason