Morgunblaðið - 27.07.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11ástæður
Á sama tíma og Mario Draghiseðlabankastjóri evrunnar hét
stuðningi við myntina, hvatti José
Manuel Barroso formaður fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins Grikki til að standa við skuld-
bindingar sínar
til að geta verið
áfram hluti af
evrusvæðinu.
Þetta átti sérstað í gær
þegar Evrópu-
vaktin greindi frá
því að fyrrverandi héraðsstjóri
Asturias á Spáni, Francisco Alvar-
ez Cascos, hefði orðið fyrstur
áhrifamanna landsins til að krefj-
ast róttækrar stefnubreytingar og
slíta evrusamstarfinu nema því
væri breytt á róttækan hátt, eins
og lesa mátti í pistli eftir Björn
Bjarnason.
Um ástandið á evrusvæðinusegir Björn: „Brotalömin í
evru-samstarfinu er augljós. Úr
henni verður ekki bætt með því að
koma á nýju evrópsku bankaeft-
irliti eða auka eftirlitshlutverk
embættismanna í Brussel. Efna-
hagslægðin og aðhaldsaðgerðirnar
hafa enn aukið á tortryggni ESB-
þjóða í garð sameiginlegra stjórn-
enda og stjórnenda einstakra
þjóða. Angela Merkel er eini ESB-
stjórnmálamaðurinn sem nýtur
umtalsverðs trausts heima fyrir
eftir að hafa tekist á við evru-
vandann misserum saman. Láti
Merkel undan kröfum stjórnmála-
manna á Spáni eða Ítalíu sem
krefjast skjótra aðgerða á kostnað
annarra hrynur traust til hennar á
örskömmum tíma.
Þótt Merkel hafi sagt að evransé Evrópa og með „meiri Evr-
ópu“ eigi að bjarga evrunni verð-
ur hún að horfast í augu við stað-
reyndir eins og aðrir. Evru-dæmið
gengur einfaldlega ekki upp. Því
fyrr sem þetta er viðurkennt þeim
mun betra.“
Evran skelfur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.7., kl. 18.00
Reykjavík 14 léttskýjað
Bolungarvík 14 heiðskírt
Akureyri 12 skýjað
Kirkjubæjarkl. 14 skýjað
Vestmannaeyjar 14 skýjað
Nuuk 17 skýjað
Þórshöfn 12 súld
Ósló 22 léttskýjað
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 21 skýjað
Helsinki 22 skýjað
Lúxemborg 28 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 18 léttskýjað
Glasgow 21 léttskýjað
London 23 heiðskírt
París 31 heiðskírt
Amsterdam 25 heiðskírt
Hamborg 26 léttskýjað
Berlín 30 léttskýjað
Vín 27 skýjað
Moskva 27 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 33 léttskýjað
Róm 30 léttskýjað
Aþena 32 léttskýjað
Winnipeg 17 skúrir
Montreal 22 skýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 26 alskýjað
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:21 22:48
ÍSAFJÖRÐUR 4:01 23:19
SIGLUFJÖRÐUR 3:43 23:03
DJÚPIVOGUR 3:44 22:24
Heimir Hannesson, nemi við stjórn-
málafræðideild Háskóla Íslands, hef-
ur tilkynnt framboð sitt til for-
mennsku í Heimdalli, félagi ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík. Sitj-
andi formaður er Áslaug Arna Sig-
urbjörnsdóttir og gefur hún einnig
kost á sér til endurkjörs en aðalfund-
ur verður haldinn í Valhöll 1. ágúst
næstkomandi.
Áslaug Arna er nemi við lagadeild
Háskóla Íslands og er hún fjórða kon-
an sem gegnir embætti formanns
Heimdallar í 85 ára sögu félagsins.
Áslaug Arna hefur setið í stjórn Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna og
Varðar síðan 2011. Varaformannsefni
hennar er Einar Smárason.
Heimir hefur langa reynslu af fé-
lagsstörfum og sat hann m.a. í stjórn
Sambands ungra sjálfstæðismanna
árin 2005-2007. Varaformannsefni
hans er Erla María Tölgyes.
Formanns-
slagur í
Heimdalli
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Heimir
Hannesson
Við Vesturlandsveg standa yfir end-
urbætur þessa dagana, en um er að
ræða gerð fjögurra strætisvagna-
biðstöðva við Vesturlandsveg ásamt
tengistígum.
Reykjavíkurborg sér um fram-
kvæmdina, en kostnaður skiptist til
helminga á milli Reykjavíkurborgar
og Vegagerðarinnar.
Tvær biðstöðvar eru við Viðar-
höfða og tvær við Úlfarsá en ráðgert
er að gera tengiveg fyrir strætis-
vagna á milli Vesturlandsvegar og
Hestháls.
Við biðstöð vestan Viðarhöfða
verður gerður hellulagður biðstöð-
varpallur ásamt svæði fyrir biðskýli.
Við biðstöð austan Viðarhöfða verð-
ur m.a. gert malbikað útskot og
hellulagður biðstöðvarpallur ásamt
svæði fyrir biðskýli.
Við strætisvagnabiðstöðvar norð-
an Úlfarsár, vestan- og austanmegin
við Vesturlandsveg, verður gerður
hellulagður pallur ásamt svæði fyrir
biðskýli, en tröppur og tengistígur
verða niður að núverandi stíg sam-
síða Vesturlandsvegi.
Lokadagur verksins er áætlaður
15. september 2012.
Breyta biðstöðvum við Vesturlandsveg
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Framkvæmdir Reisa á ný strætisvagnabiðskýli við Vesturlandsveg.