Morgunblaðið - 27.07.2012, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
VIÐ ERUM ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
Smiðjuhátíð Tækniminjasafnsins
verður haldið í sjötta sinn á Seyðis-
firði dagana 27. til 29. júlí.
Hátíðin er fræðandi fjölskyldu-
hátíð þar sem fólk á öllum aldri get-
ur skemmt sér við tónlist og veit-
ingar um leið og það kynnist
starfsemi safnsins og gömlu hand-
bragði í verkstæðum þess.
Blústónleikar verða á föstudags-
kvöldinu með 56 riff ásamt blús-
hetjunni Garðari Harðar og
trommusnillingnum Sigfúsi Óttars-
syni sjóðheitum frá L.A. og dans-
leikur verður á Angrósbryggjunni
á laugardeginum þar sem stórsveit
Þorleifs Guðjónssonar leikur.
Húsasmíðameistarinn Gunnar
Bjarnason fjallar um járn og tré-
verk í gömlum húsum í máli og
myndum.
Nánari upplýsingar um dagskrá
og skráningar á námskeið er að
finna á www.tekmus.is .
Gamalt handverk á
Smiðjuhátíðinni
á Seyðisfirði
Í Kattholti
dvelja nú marg-
ir fallegir kettir
sem leita sér að
góðu heimili.
Laugardaginn
28. júlí frá kl.
11-14 verður
ættleiðing-
ardagur í Katt-
holti. Þá geta
kisuvinir komið
og valið sér þann kött sem þeim
líst best á, stálpaða eða kettlinga.
„Von okkar í Kattholti er að
marga langi til að eignast kött og
nú er tækifærið,“ segir í tilkynn-
ingu.
Starfsfólk Kattholts þekkir alla
kettina vel og getur gefið ,,per-
sónulýsingu“ á hverjum og einum.
Fólk getur valið kátan kött, róleg-
an, stríðinn eða kelinn.
Ættleiðingardagur í
Kattholti á morgun
Úrvalslið Rugby Íslands mun laug-
ardaginn 28. júlí spila 15 manna
rugbyleik gegn gestum frá Banda-
ríkjunum. Gestirnir að þessu sinni
eru The Skippy Lizards RFC frá
New York, lið sem stofnað var árið
2004 til heiðurs þjálfaranum Paddy
Bartlett.
Leikurinn fer fram á íþrótta-
svæði Vals að Hlíðarenda og hefst
hann kl. 15. Áætlaður leiktími er 80
mínútur. Ókeypis er á völlinn og er
fólk hvatt til að fjölmenna.
Keppt í rugby
STUTT
Benjamín Baldursson
Eyjafjarðarsveit | Mikil breyting
hefur orðið á mjólkurframleiðslu í
gamla Öngulsstaðahreppi. Fyrir
hálfri öld voru um 50 mjólkurfram-
leiðslubýli í hreppnum en eru nú
aðeins 14 talsins, mjólkurmagnið er
þó lítið minna nú en þá var.
Ferða- og veitingaþjónustan sæk-
ir hinsvegar í sig veðrið og er nú
stunduð á mörgum bæjum. Á Stað-
arbyggðinni, sem er miðhluti gamla
hreppsins, hafa nýlega verið opnuð
þrjú veitingahús. Það nýjasta heitir
Lamb Inn og er á Öngulsstöðum
III. Fyrir voru Kaffi kú í Garði og
Silva sem er grænn veitingastaður
á Syðra-Laugalandi efra.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fv.
alþingismaður og bóndi á Önguls-
stöðum, hefur á nýjan leik tekið við
rekstri ferðaþjónustunnar þar, en
reksturinn hefur verið leigður út
undanfarin ár. Hann opnaði nú ný-
verið veitingahúsið Lamb Inn. Eins
og nafnið bendir til verður aðalrétt-
urinn á matseðlinum lambakjöt,
nánar tiltekið lambalæri af gamla
skólanum með heimalöguðu rauð-
káli og brúnuðum kartöflum. Einn-
ig verður hægt að fá fjölmarga aðra
rétti svo sem lambasalat og ýmsa
þjóðlega rétti eins og hangikjöt,
magál og fleira góðgæti.
Kaffi kú er rekið á loftinu í fjós-
inu í Garði, einni stærstu fjósbygg-
verið góð. Aðstaðan hefur einnig
verið talsvert nýtt fyrir smærri
fundahöld.
Veitingahúsið Silva var opnað í
vor í húsnæði sem áður hýsti skrif-
stofu Eyjafjarðarsveitar og þar áð-
ur Barnaskólann á Syðra-
Laugalandi. Þar er boðið upp á eld-
aða grænmetisrétti og
hráfæðisrétti, auk þess sem í boði
er úrval af hollum kökum og eft-
irréttum. Einnig er boðið upp á ný-
hrista þeytinga og nýpressaða safa.
Aðsókn að staðnum fer mjög vel af
stað, enda hefur tíðarfarið verið
ferðaþjónustunni afar hliðhollt.
ingu landsins sem tekin var í notk-
un vorið 2007. Á daginn er þar
rekið kaffihús, en á kvöldin ríkir
kráarstemming. Hægt er að fylgj-
ast með kúnum og fjósverkum af
svölum sem stúkaðar eru af með
glervegg. Kaffihúsið nýtur mikilla
vinsælda og hefur aðsókn að því
Ferðaþjónusta með mjólkinni
Þrjú veitingahús nýlega opnuð í Eyjafjarðarsveit Mjólkurbúum fækkað úr
50 í 14 á hálfri öld Boðið upp á afurðir úr héraði Kaffihús yfir fjósinu
Öngulsstaðir III Veitingahúsið Lamb Inn. Syðra-Laugaland Efra Veitingahúsið Silva. Garður Kaffi kú er rekið á loftinu yfir fjósinu.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Ferðaþjónusta Jóhannes Geir Sigurgeirsson sker fagmannlega af lambalæri fyrir einn gestinn á veitingahúsinu.
„Þegar launa-
lækkun ráð-
herra og þing-
manna var aflétt
var reglan einn-
ig úr gildi num-
in sem kvað á
um að enginn
(utan forsetinn)
skyldi vera
hærra launaður
en forsætisráð-
herra. Þannig er engin slík regla
í gildi núna,“ segir í svari forsæt-
isráðuneytisins við fyrirspurn
Morgunblaðsins um það hvort
horfið hafi verið frá þeirri reglu
að enginn opinber starfsmaður
skuli vera hærra launaður en for-
sætisráðherra, í ljósi þess að ýms-
ir embættismenn eru með hærri
laun en ráðherrann miðað við
upplýsingar úr tekjublaði Frjálsr-
ar verslunar.
Launareglan hefur
verið numin úr gildi
Jóhanna
Sigurðardóttir
„Ég fagna því
að sjómenn séu
með góð laun,“
segir Sævar
Gunnarsson,
formaður Sjó-
manna-
sambands Ís-
lands, spurður
út í fyrstu við-
brögð sín
vegna fréttar gærdagsins um að
sjómenn séu farnir að „toppa“
forstjóra í launum.
Hann segir þetta mikið gleði-
efni fyrir sjómenn en bendir á að
tekjuúttektir geti verið vafasam-
ar. „Svona úttektir eru alltaf
mjög vafasamar því að við vitum
það að í sumum tilefnum geta
skipstjórar verið með allt að
þreföld laun háseta og þegar
teknir eru tvöhundruð tekju-
hæstu þá gefur það ekki heild-
armynd af launum sjómanna, það
er alveg ljóst,“ segir Sævar.
„Við vitum það að tvö síðustu
ár eftir að gengið hrundi, og
afurðaverðið varð gott, þá hefur
þetta gengið mjög vel fyrir sjáv-
arútveginn, bæði hjá útgerðar-
og sjómönnum,“ bætir Sævar við.
Fagnar góðri launa-
stöðu sjómanna
Sævar Gunnarsson