Morgunblaðið - 27.07.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR
ÞYKKARA, FYLLRA HÁR Á 30 DÖGUM
NÝJA INTRA FORCE
HÁRLÍNAN
Prófuð og sönnuð vörn
gegn hármissi. Inniheldur:
Aminexil sem byggir upp og
lengir líftíma, Arginin örvar
virkni í hársverðinum, Zink
hreinsar, stuðlar að heil-
brigðum hársverði.
SÖLUSTAÐIR
REDKEN
BEAUTY BAR
FAGFÓLK
HJÁ DÚDDA
HÖFUÐLAUSNIR
MEDULLA
MENSÝ
N-HÁRSTOFA
PAPILLA
SALON REYKJAVÍK
SALON VEH
SCALA
SENTER
Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305
har@har.is
REDKEN Iceland á
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Matt Ridley, einn kunnasti rithöfundur Breta,
heldur í dag fyrirlestur í Háskóla Íslands um efni
nýjustu bókar sinnar, The Rational Optimist, eða
Skynsami bjartsýnismaðurinn, sem kom út árið
2010. Í henni heldur Ridley því fram að mannkynið
þurfi alls ekki að örvænta. Þess bíði björt framtíð
ef það heldur rétt á sínum málum.
Ridley segir að hann sé skynsamur bjart-
sýnismaður vegna staðreynda. „Ég tók eftir því
fyrir nokkrum árum að svartsýnismenn höfðu
stöðugt rangt fyrir sér. Þeir bölsýnismenn sem ég
hafði tekið mark á þegar ég var ungur höfðu sagt
mér að heimurinn væri að farast á marga vegu“.
Þeir hefðu hins vegar allir haft rangt fyrir sér. Of-
fjölgun mannkyns hefði ekki leitt til þeirra hörm-
unga sem spáð var, né heldur væri núna matar-
skortur eða olíuskortur. Þá hefði, svo eitt dæmi til
sé nefnt, árþúsundaveilan í tölvukerfum ekki haft
nein áhrif, þvert á spár. Allt þetta leiddi til þess að
Ridley fór að efast meira um svartsýnina að baki
þessum spám.
„Ég horfði þá á það sem var að gerast í raun
og veru og komst að því mér til mikillar undrunar
að um mína daga hafa rauntekjur meðalmann-
eskju þrefaldast, barnadauði minnkað um tvo
þriðju og meðallífslíkur aukist um einn þriðja.
Þetta eru ótrúlegar breytingar á velmegun mann-
kynsins og þær halda ótrauðar áfram, þrátt fyrir
kreppuna núna,“ segir Ridley og bendir á að þó að
hart sé í ári í Evrópu núna sé ástandið ekki svo
slæmt t.d. í Afríku, þar sem, svo dæmi sé nefnt,
barnadauði hafi minnkað um 6% á síðasta ári. Rid-
ley segir því að þessar staðreyndir og fleiri hafi
gert hann að bjartsýnismanni.
Sameinar Adam Smith og Darwin
Hvað skynsemina varðar segir Ridley að hann
telji sig geta skýrt út hvers vegna lífskjör fólks
batna og þróast til betri vegar. „Það verður ákveð-
in þróun á menningarsviðinu þar sem hugmyndir
mætast um það hvernig fólk geti best
unnið fyrir hvað annað og þannig sparað
sér tíma í því að uppfylla þarfir sínar og
þrár.“ Ridley segir að þessar hugmyndir
dreifi sér með því að mætast og æxlast
og þær bestu þeirra lifi af í gegnum
menningarlegt náttúruval. Þannig sé
hægt að sameina þekkingu og reynslu
fjölmargra manna í gegnum kynslóð-
irnar í einn sameiginlegan reynslusjóð.
Með aukinni sérhæfingu sem þessu
fylgi spari hver einstaklingur sér tíma
til að afla sér lífsgæða og geti nýtt
orku sína meira til þess að njóta
þeirra. Ridley nefnir sem dæmi að ár-
ið 1800 hafi það tekið hvern einstakling
sex klukkustundir að vinna sér inn fyrir kostn-
aðinum sem fylgi einum klukkutíma af mann-
gerðu ljósi, en í dag sé sá tími um hálf sekúnda.
Ridley segir að með því að sameina hug-
myndir Adams Smith og Charles Darwin sé út-
koman sú að framfarir verði til hjá almenningi en
séu ekki fyrirskipaðar af stjórnvöldum ofan frá. „Í
heildina hefur þessi heimssýn gert mig hrifnari af
því hvernig skipti á hugmyndum og vörum, eink-
um á frjálsum markaði, hafa haft áhrif á nýsköpun
mannkyns og stuðlað að framþróun.“ Ridley segir
að það þýði ekki að markaðurinn sé það eina sem
þurfi til í mannlegu samfélagi, en að engu að síður
sé það mjög mikilvægt að tryggja það að frjáls
viðskipti geti þrifist.
Spurður um hlýnun jarðar, sem oft er sögð
vera ein helsta ógnin við framtíð mannkyns, segir
Ridley að hann telji ekki að það sé ástæða til að
óttast. „Bæði vísindin og hagfræðin á bak við
hnatthlýnun segja mér það að í fyrsta lagi er
vandinn ekki jafnslæmur og haldið er fram og í
öðru lagi að þau úrræði sem helst eru lögð fram til
þess að bregðast við vandanum valda meiri skaða
á framtíð mannkynsins en hlýnunin.“ Hann er
bjartsýnn á að mannkynið muni finna lausn á
hlýnun jarðar þegar þess muni þurfa.
Fyrirlestur Ridleys verður haldinn í stofu
132 í Öskju í dag og hefst kl. 17:30. Fundarstjóri
verður Ragnar Árnason prófessor, en fyrirlest-
urinn er í boði Rannsóknarseturs um nýsköpun og
hagvöxt og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórn-
mála í Háskóla Íslands.
„Svartsýnismenn hafa
stöðugt rangt fyrir sér“
Matt Ridley, einn kunnasti rithöfundur Breta, heldur fyrirlestur í Öskju í dag
Ljósmynd/Matt Ridley
Skynsamur bjartsýnismaður Breski rithöfundurinn Matt Ridley mun flytja fyrirlestur í dag í Öskju
um hvers vegna hann telur rétt að líta með skynsamlegri bjartsýni á framtíð mannkyns.
Slökkviliðið á
höfuðborgar-
svæðinu var kall-
að út á fjórða
tímanum í gær
vegna reyks sem
lagði frá flúor-
ljósi í verslun í
verslunarmið-
stöðinni Kringl-
unni.
Viðskiptavinir voru að vonum
skelkaðir en að sögn vakthafandi
slökkviliðsmanns náðu öryggis-
verðir verslunarmiðstöðvarinnar
að sprauta á ljósið með slökkvitæki
og taka úr sambandi áður en kvikn-
aði í út frá því.
Allt var því fallið í ljúfa löð þegar
slökkvilið kom á svæðið.
Reykur í Kringlunni
Nú stendur yfir glerlistasýning Ice-
glass á Listatorgi Sandgerðisbæjar
og er þetta fyrsta sýning glerlista-
mannanna Guðlaugar Brynjars-
dóttur og Lárusar Guðmundssonar,
sonar hennar, hérlendis.
„Við höfum fengið góðar við-
tökur,“ segir Guðlaug en mæðginin
sýna nú um 40 verk. Þau bjuggu áð-
ur í Danmörku í 13 ár og ráku þar
vinnustofu í um átta ár, en hafa áð-
ur sýnt í New York og París. Þau
fluttu aftur í Reykjanesbæ fyrir
nær sex árum og reka þar opna
vinnustofu. „Við erum að byrja á
því að fara með glerið út úr húsi,“
segir Guðlaug um sýninguna sem
stendur til 19. ágúst.
Mæðgin vinna og
sýna glerlist saman
Björgunarskipið
Björg kom í gær-
morgun með bát-
inn Þorlák IS til
hafnar í Rifi en
Þorlákur varð
vélarvana á mið-
vikudag þegar
veiðarfæri flækt-
ust í skrúfunni.
Kafarinn Víðir
Haraldsson var
kallaður út til að losa veiðarfærin
sem flæktust í skrúfunni og segir
hann það hafa tekist vel. Aðeins tók
um 20 mínútur að losa nótina úr
skrúfunni.
Vélarvana bátur
dreginn í land
Björgunarskip var
kallað út.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, og Dorrit Moussaieff, for-
setafrú, verða viðstödd setningu ól-
ympíuleikanna í Lundúnum í dag.
Áður en setningarathöfnin hefst
á morgun munu forsetahjónin
ásamt öðrum þjóðhöfðingjum verða
í boði Elísabetar Englandsdrottn-
ingar í Buckinghamhöll.
Á laugardag og sunnudag munu
forsetahjónin fylgjast með keppni
íslenskra þátttakenda, m.a. fyrsta
leik handboltaliðsins sem fram fer á
sunnudagsmorgun.
Forsetahjónin við-
stödd setningu ÓL
Ólafur Ragnar Grímsson heilsar Rögnu
Ingólfsdóttur í Lundúnum í gær.
Matt Ridley fæddist árið 1958 og lauk dokt-
orsprófi í dýrafræði frá Oxford-háskóla 1983.
Hann var vísindaritstjóri tímaritsins The Eco-
nomist frá 1984 til 1987, þegar hann varð
fréttaritari blaðsins í Bandaríkjunum og síðar
ritstjóri frétta vestanhafs. Ridley skrifar
nú reglulega um vísindi fyrir The
Wall Street Journal og er vinsæll
fyrirlesari.
Ridley hefur gefið út sex bæk-
ur, sem fjalla aðallega um þróun-
arkenninguna og áhrif hennar á
mannlegt samfélag. Bill Clinton,
fyrrverandi forseti Bandaríkj-
anna, nefndi bók Ridleys, The
Origins of Virtue eða upphaf
dyggðarinnar sem eina af þeim
bókum sem hefðu haft hvað mest
áhrif á sig. Bækur Ridleys hafa
selst í hátt í einni milljón eintaka.
Hefur selt hátt í
milljón bækur
MATTHEW RIDLEY
STUTT