Morgunblaðið - 27.07.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
● Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen
greindi frá methagnaði á fyrri hluta
þessa árs í gær, en Volkswagen hagn-
aðist um 8,8 milljarða evra, sem svarar
til 1.329 milljörðum íslenskra króna.
Það jafngildir því að hagnaðurinn jókst
um 36% miðað við sama tímabil árið
2011.
Framleiðandinn, sem auk Volks-
wagen á Audi og Skoda jók bifreiðasölu
sína í janúar til júlí um 8,9% og seldi
samtals 4,6 milljónir farartækja.
Aukinheldur samþykkti stjórn
Volkswagen fyrr í þessum mánuði að
eignast Porsche sportbílana að fullu.
Volkswagen á einnig Bentley og jókst
salan á þeim um 50% og seldir voru
5.000 slíkir vagnar.
Hagnaður Volkswagen
tæpir 1.330 milljarðar
Hlutafé hótelkeðju aukið
Eigendur Miðbæjarhótela juku hlutafé um 45 milljónir Reka fimm hótel í
bænum þar á meðal Hótel Plaza Bankahrunið og eldgos komu illa við reksturinn
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Miðbæjarhótel Rekur fimm hótel í miðbænum, m.a Hótel Plaza. Fyrirtækið
er í eigu hjónanna Kristófers Oliverssonar og Svanfríðar Jónsdóttur.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Eigendur Miðbæjarhótela/Center-
hotels hafa aukið hlutafé fyrirtæk-
isins um 45 milljónir króna. Þetta er
gert til að styrkja reksturinn eftir
áföll tengd bankahruninu árið 2008
og eldgosi í Eyjafjallajökli árið 2010
og er hluti af endurskipulagningu á
rekstri hótelkeðjunnar, að sögn
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Miðbæjarhótel er í eigu hjónanna
Kristófers Oliverssonar og Svanfríð-
ar Jónsdóttur. Fyrirtækið rekur
fimm hótel í miðbænum, þ.á m. Hótel
Plaza. Reksturinn er ýmist í eigin
fasteignum eða leiguhúsnæði. Krist-
ófer segir að verðtryggðir og geng-
istryggðir leigusamningar hafi
hækkað upp úr öllu valdi eftir banka-
hrunið. Einnig hafði eldgosið í lok
mars 2010 þau áhrif að ferða-
skrifstofur og fyrirtæki afbókuðu
stóran hluta pantana sumarsins.
„Eldgosið var okkur gríðarlegt erfitt
og tap var á rekstrinum,“ segir hann.
Tapið nam 357 milljónum, skv.
ársreikningi. Hótelrekendur hafi
brugðið á það ráð að fara í mikið
verðstríð, sem olli því að ferða-
mannafjöldinn til landsins skilaði
sér, en að verð sem þeir greiddu fyr-
ir hótelgistingu hafi verið alltof lágt.
„Þá hefur mikil aukning orðið á leyf-
islausri íbúðagistingu, sem virðist
vera látin afskiptalaus af stjórnvöld-
um enn sem komið er a.m.k, “ segir
hann. Þetta hefur valdið því að því að
rekstur hótela hefur verið erfiður, en
sumarið er almennt uppskerutími
hjá hótelrekendum. Það sé því mikil-
vægt að sumrin lukkist vel. „Á vet-
urna eru hótel yfirleitt rekin með
tapi,“ segir hann. Þrátt fyrir áföll
undanfarinna ára gengur hótelrekst-
ur þokkalega þessi misserin. Það er
hins vegar afar mikilvægt að byggja
upp sterka eiginfjárstöðu til framtíð-
ar. „Það er ólíklegt að framtíðin
verði með öllu áfallalaus,“ segir
hann.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.+
+/,.,/
+,,.0/
,0.,12
,0.-2+
+3.2-4
+,5.55
+.53/,
+25.13
+50.32
+,-.2
+/,.31
+,,.45
,0.-,3
,0.44+
+3.221
+,5./
+.52-2
+21.,,
+5+.,
+//.34/+
+,4.0/
+/-.,-
+,,.2+
,0.-21
,0.50+
+3./-2
+,1.,5
+.5224
+21.33
+5+.1,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Hlutafé Steypustöðvarinnar hefur
verið aukið um 80 milljónir króna.
Alexander Alexandersson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir í
samtali við Morgunblaðið að ráðist
hafi verið í hlutafjáraukninguna til
að uppfylla kaupsamning á félag-
inu. Eigendahópurinn sé óbreyttur.
Alexander Ólafsson og fjölskylda
keyptu félagið af Miðengi, félagi í
eigu Íslandsbanka, í fyrravor.
Við hlutafjáraukninguna hækkar
hlutafé félagsins í 475 milljónir úr
395 milljónum, samkvæmt tilkynn-
ingu til Hlutafélagaskrár. Steypu-
stöðin er félag sem varð til þegar
Íslandsbanki tók steypuhluta Mest
til sín. Steypustöðin í þeirri mynd
sem hún er í dag tók til starfa á
miðju ári 2008. helgivifill@mbl.is
80 milljóna
hlutafjár-
aukning
Auka hlutafé
Steypustöðvarinnar
Í rafhlöðum eru efni sem eru skaðleg
náttúrunni. Þær mega því alls ekki fara í
almennt sorp að notkun lokinni.
Efnamóttakan leggur heimilum og
fyrirtækjum til ókeypis kassa til að auðvelda
söfnun á ónýtum rafhlöðum. Einnig má setja
í hann ónýt smáraftæki.
Kassinn er margnota og hann má nálgast á
söfnunarstöðvum sveitarfélaga.
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Rafhlöðukassi
Það má losa úr kassanum á
söfnunarstöðvum sveitarfélaga
(endurvinnslustöðvum). Einnig er víða
tekið á móti rafhlöðunum í sérstakar
rafhlöðutunnar á bensínstöðvum N1 og Skeljungs.
Hvert á að skila?
Hagnaður Marels jókst mikið á öðr-
um ársfjórðungi samanborið við
sama tíma í fyrra en reksturinn var
engu að síður undir væntingum IFS
greiningar. Hagnaðurinn á öðrum
ársfjórðungi nam 7 milljónum evra
eða rúmum milljarði króna saman-
borið við 0,2 milljónir evra á sama
tíma fyrir ári. IFS reiknaði með 13,1
milljón evra hagnaði á fjórðungnum.
Tekjur jukust um 15% milli ára.
Í bréfi frá IFS segir að stjórnend-
ur fyrirtækisins eigi mikið verk fyrir
höndum, vilji þeir ná markmiðum
sínum fyrir árið. Pantanir hafi dreg-
ist saman um 20 milljónir evra frá
fyrsta ársfjórðungi en IFS segir að
það gefi ágæta mynd af framtíðar-
tekjum fyrirtækisins; en bendir á að
þriðjungur teknanna sé þjónustu-
tekjur. Í tilkynningu frá Marel segir
að pantanir séu í góðu horfi, hafi
hækkað um 13,6 milljónir evra frá
öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Rekstrarhagnaðarhlutfallið var
6,5% á fjórðungnum en markmið
stjórnenda er 10-12%. Aukinn kostn-
aður er sagður meðal orsakavalda.
Hagnaður jókst mikið
en undir væntingum