Morgunblaðið - 27.07.2012, Side 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
Ég reikna með að fara í hádegismat á golfvellinum í Hafnar-firði og fer svo á æfingu seinni partinn. Svo skilst mér að égsé að fara að labba á Esjuna um kvöldið. Annars fer veislan
fram á laugardaginn, þá er ég að fara út á land með frúnni í afslöpp-
un,“ segir Jón Páll Pálmason, afmælisbarn dagsins, en hann er þrí-
tugur í dag.
Jón Páll þjálfar meistaraflokk Fylkis í knattspyrnu kvenna, en lið-
ið er í sjöunda sæti, þremur stigum frá fallsæti. Hann segir að tíma-
bilið í sumar hafi verið mikill barningur. „Okkur var spáð þessu
gengi og við erum bara að reyna að bæta okkur með hverjum leikn-
um. Við spiluðum vel síðast og vonandi er liðið hrokkið í gang.“
Fylkir spilar mjög mikilvægan leik við Aftureldingu á þriðjudaginn
og segir Jón Páll að stelpurnar í liðinu gætu ekki gert hann glaðari
en ef þær gæfu honum sigur í þeim leik í afmælisgjöf. Jón Páll hefur
áður þjálfað karlalið Hattar í annarri deildinni og yngri flokka FH.
Á veturna kennir Jón Páll í Norðlingaskóla og segir hann að
kennarastarfið sé æðislegt. Núna er hann í sumarfríinu sínu og seg-
ir Jón Páll að hann eyði frítíma sínum þegar hann er ekki að þjálfa í
að hlusta á rokkkónginn Elvis Presley og lesa bækur um hann, en
Jón Páll er mikill aðdáandi kóngsins, bæði sem flytjanda og sem
leikara. „Allar 29 myndirnar hans eru meistaraverk, þær eru allar
nákvæmlega eins, og allar þeirra meistaraverk.“ sgs@mbl.is
Jón Páll Pálmason 30 ára
Morgunblaðið/Ernir
Elvis og Fylkir Jón Páll Pálmason þjálfar meistaraflokk Fylkis í
knattspyrnu kvenna og hlustar á Elvis í frístundum.
Hlustar á Presley í
frítíma sínum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Nataliu Boyko og Valgeiri
Ólafssyni fæddist stúlka 10. júní kl.
6.54. Hún vó 3.465 g og var 49 cm löng.
Nýir borgarar
Fimm stúlkur héldu tombólu hjá Eiðistorgi á Seltjarnarnesi. Þær gengu í hús til
að safna dóti og seldu einnig sitt eigið. Þetta voru þær Lára Ívarsdóttir 9 ára,
Anja Ísis Brown 10 ára, Lilja Lív Margrétardóttir 7 ára, Guðbjörg Lív Mar-
grétardóttir 10 ára og Agla Ívarsdóttir 4 ára. Þær söfnuðu alls 17.537 krónum og
rann það allt til Rauða krossins.
Hlutavelta
I
ngvi Hrafn fæddist í Reykja-
vík, lauk landsprófi frá Núpi
í Dýrafirði 1958, stúdents-
prófi frá MR 1965 og BA-
prófi í stjórnmálafræðum og
blaðamennsku frá Wisconsin háskól-
anum í Madison í Wisconsin 1970.
Hann tók skipstjóraréttindi á þrjátíu
tonna bát í Eyjum árið 1960.
Ingvi Hrafn var sjómaður á tog-
urum og farskipum 1958-61, blaða-
maður á Morgunblaðinu 1966-78,
starfrækti ráðgjafarfyrirtæki 1978-
85, var þingfréttamaður Sjónvarpsins
1979-83, fréttastjóri Sjónvarpsins
1985-88, sinnti ritstörfum og fjöl-
miðlaráðgjöf ásamt því að vera mark-
aðsstjóri Eðalfisks hf. í Borgarnesi
1988-91, var fréttastjóri Stöðvar 2 og
Bylgjunnar 1992-94, stundaði fjöl-
miðlaráðgjöf 1994-97 og starfrækti
laxveiðiána og veiðihúsið við Langá í
Borgarfirði 1997-2008.
Endurkoman í fjölmiðlana
Ingvi Hrafn hóf aftur fjölmiðla-
störf og þá við Útvarp Sögu sem
hluta að 365 Miðlum 1999 og starfaði
þar til 2001, rak síðan stöðina sjálf-
stætt, ásamt Arnþrúði Karlsdóttur,
Sigurði G. Tómassyni og Hallgrími
Thorsteinssyni 2001-2003, en seldi þá
sinn hlut í stöðinni og hóf störf við
NFS hjá 365 Miðlum, fyrst í útvarpi
og síðan í sjónvarpi, með þætti sína,
Hrafnaþing, til ársloka 2006.
Ingi Hrafn og Ingvi Örn, sonur
hans, stofnuðu þá sjónvarpsstöðina
ÍNN sem þeir hafa starfrækt síðan.
ÍNN sendir út meira íslenskt sjón-
varpsefni en allar aðrar stöðvar ef
endursýningar eru taldar með, en
samkvæmt nýjustu Gallup könnun ná
87% þjóðarinnar stöðinni.
Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN, 70 ára
Ljósmynd/ÍNN
Sjónvarpsstjórinn Ingi Hrafn og Ingvi Örn hafa rekið sjónvarpsstöðina ÍNN við sívaxandi vinsældir í rúm fimm ár.
Krumminn á skjánum
Fréttastjórinn Ingvi Hrafn Jónsson ræðir við Steingrím Hermannsson for-
sætisráðherra vegna væntanlegs leiðtogafundar í Höfða árið 1986.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem
hefur hafið göngu sína í Morgun-
blaðinu. Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæð-
ingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár