Morgunblaðið - 27.07.2012, Síða 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
Umhverfisvæn ræsting
með örtrefjum
Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700
raestivorur.is
Ræsting með örtrefjaklútum
og moppum er hagkvæmari
og skilar betri árangri
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur mikla þörf um þessar
mundir til að tala við fólk. Treystu öðrum til
að vinna störf þín í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú lætur ýmislegt í umhverfi þínu fara
í skapið á þér, þú mátt ekki láta það bitna á
þeim sem standa þér næstir. Viðkomandi
persóna virðist of góð til að vera sönn í þín-
um huga.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur þörf fyrir að kafa til botns
í hlutunum. Ef þú ert bjartsýnn og gefst ekki
upp muntu ná takmarki þínu þótt síðar
verði. Láttu þetta ekki slá þig út af laginu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Óboðnir gestir mæta á svæðið.
Eyddu ekki meiru en þú aflar eða átt inni.
Stjörnurnar hvetja þig til að verða flottari út-
gáfa af sjálfum þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það hjálpar ótvírætt að freista þess að
sjá jafnan skoplegu hliðarnar á tilverunni.
Hugrekkið kemur með auðmýktinni, mundu
það.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinur mun veita þér holl ráð í dag og
eins gætir þú gefið góð ráð. Yfirleitt áttu
ekki í neinum vandræðum með það, en í dag
læturðu freistast til þess að leysa frá skjóð-
unni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það sem þú kýst að segja ekki, er
áhrifamikið. Er þú reynir að róa hugann
finnst þér þú endurnærast.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú neitar þér um nógu mikið
kemur hin hliðin ósjálfrátt upp á yfirborðið
og tekur af þér ráðin. Hristu þessa tilfinn-
ingu af þér því hún er ekki rétt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu ekki að þröngva þínum
vilja upp á aðra; það endar bara með skelf-
ingu. Fyrst trúir þú því að eitthvað sé mögu-
legt, svo reynir þú að finna út úr því hvernig
þú eigir að framkvæma það.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þegar þú spyrð örlögin hvað þau
ætli að færa þér færðu ekkert svar – bara
hvítan striga þrunginn möguleikum. Láttu
helgi dagsins sitja í fyrirrúmi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það liggur ýmislegt jákvætt í loft-
inu en þú þarft að vanda þig þegar þú velur
þá hluti sem þú vilt sinna. Gott næði í sveit-
inni eða kyrrlátu umhverfi gerði þér gott.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert óvenju fljótur að komast að
kjarna málsins og það vekur bæði aðdáun og
öfund þeirra sem með þér starfa. Farðu þér
því hægt og láttu tímann vinna með þér.
Kristján Ólason skrifstofumaðurá Húsavík fæddist í Kílakoti
27. júlí árið 1894. Hann var bróðir
Árna Óla blaðamanns og rithöf-
undar og voru þeir bræður í nán-
um skyldleika við Kristján Fjalla-
skáld og Jón Sveinsson, Nonna.
Kristján vann hjá Verslun Bjarna
Benediktssonar og síðan hjá KÞ.
Hann var þekktur leikari og góður
teiknari. Ferhenda með hundrað
vísum eftir Kristján kom út hjá
Menningarsjóði árið 1963 og segir
Hannes Pétursson í stuttri umsögn
um Kristján að hann sé með snjöll-
ustu hagyrðingum landsins, – "ís-
lenzk vísnagerð er ekki hætt kom-
in, meðan hún er iðkuð af jafn-
mikilli smekkvísi og Kristjáni er
lagin“.
Mér þykir við hæfi á þessum
degi að rifja upp nokkrar stökur
eftir Kristján og byrja á vorvísu:
Sólin yljar mó og mel,
mönnum léttir sporin.
Svellin gráta sig í hel
– sárt er að deyja á vorin.
Í Skáldu velur Jóhannes úr Kötl-
um þessa stöku:
Þetta finn ég – því er ver:
það er sinni og skinni
þraut að kynnast sjálfum sér
sífellt minni og minni.
Fyrsta stakan í Ferhendu ber yf-
irskriftina Veðrahrollur:
Þungt í falli þrymur Rán,
þýtur í fjalla nöfum.
Það er allra veðra ván,
við skulum halla stöfum.
Fjasað um smámuni – þagað um
hitt:
Gust og veður gjarnt er mér
að gera af smáum skeinum,
en dýpstu sárin sem ég ber
sýni ég aldrei neinum.
Rímþraut:
Kólnar ævi, komið haust,
kalla ég nauðsyn brýna:
að geta botnað lýtalaust
lífsböguna sína.
Eftirmæli um hinn skjótráða:
Þegar hann er fallinn frá,
fólkið ber í minni:
viðbrögð snögg og oftast á
undan hugsuninni.
Skrýtið:
Minninga að ganga garð
gleður okkur flesta,
en oft er það sem aldrei varð
eftirsjáin mesta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fjasað um smámuni
– þagað um hitt
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
ÆI! ÞEIR ERU
SVO SÆTIR
ÞEGAR VERIÐ ER AÐ
STELA MATNUM ÞEIRRA
ODDI
FYRSTA
KAST LEIK-
TÍÐARINNAR
ÞAÐ ER FREKAR FRIÐSÆLT AÐ
LIGGJA HÉRNA MEÐ FÍFLUNUM
ÞÚ FÆRÐ EKKI
AÐ SETJAST TIL
BORÐS...
...FYRR
EN ÞÚ ERT
BÚINN AÐ FARA
Í BAÐ OG
ÞRÍFA ÞIG
ÞÁ HELD ÉG AÐ
ÉG BORÐI BARA
HÉRNA Á
GÓLFINU
HVAÐ ERTU AÐ
GERA HÉRNA ÚTI Í
HUNDAKOFANUM?
ÉG ER AÐ FELA MIG,
MYNDASÖGUBRANSINN
MÁ ALLS EKKI KOMAST
AÐ ÞVÍ AÐ ÉG STEND Á
BAK VIÐ ÞETTA
Á
BAK VIÐ
HVAÐ?
GRÍMS-LEAKS
Um það leyti sem byrjað var aðselja bjór á Íslandi fyrir um
tveimur áratugum hugsuðu Víkverji
og félagar hans gott til glóðarinnar
þegar ellin færðist yfir. Draumurinn
var að sameinast á Grund eftir
nokkra áratugi og eiga saman
skemmtilegt ævikvöld, meðal annars
með reglulegum ferðum á Gaukinn.
x x x
Vegna þessa hafa félagarnir kynntsér gönguleiðir frá Grund í
miðbæinn og tekið tímann á leiðinni í
bæinn og þaðan til baka. Einnig
kannað bestu akstursleiðir, hvenær
umferð er minnst og athugað með
verð fyrir akstur í leigubílum og
litlum rútum. Nefna má að frá Grund
þarf að ganga um 200 m til að taka
strætó í bæinn og frá heimilinu í soll-
inn er ekki mikið lengra.
x x x
Félagarnir völdu Grund ekki sístvegna þess að þaðan var styst á
krárnar. Þeir sáu fyrir sér skipulagð-
ar rútuferðir frá Grund í miðbæinn
klukkan þrjú á þriðjudögum og
fimmtudögum og til baka klukkan
fimm síðdegis. Svona rétt eins og
boðið var upp á ferðir fyrir gamla
fólkið á Seltjarnarnesi í Bónus á
Grandanum klukkan eitt á þriðju-
dögum. Upplifðu í huganum tveggja
tíma afþreyingu í vindlareyk yfir
glasi af öli tvisvar í viku, ánægju-
stund fyrir góðan kvöldverð. Þeir
sem höfðu hvorki reykt né drukkið
áfengi um árabil staðfestu að þeir
ætluðu að byrja á ósómanum þegar
þessar samverustundir yrðu að veru-
leika í ellinni.
x x x
Ekki hvarflaði að þessum vinahópiað um 20 árum síðar hefði Hrafn-
ista við Brúnaveg í Reykjavík sótt
um leyfi til að selja bjór og léttvín og
því síður að stjórnendur Grundar
legðust gegn slíkri sölu. Félagarnir
eru því hrifnastir af Hrafnistu þessa
stundina en eru samt sannfærðir um
að fyrir árið 2032 verði hægt að fá sér
öllara á öllum öldrunarheimilum
landsins og því þurfi þeir ekki endi-
lega að búa sem næst miðbænum til
þess að lyfta sér upp síðdegis tvisvar
í viku að loknum morgunverkunum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Og á þeim degi mun ég
bænheyra, segir Drottinn. Ég mun
bænheyra himininn, og hann mun
bænheyra jörðina. (Hs. 2, 21.)