Morgunblaðið - 27.07.2012, Page 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Vinsælu heilsugrillin
væntanleg í september
„Ég hef lært útsaum yfir öxlina á
ömmu. Ég hef ekki farið í skóla að
læra þetta,“ segir Þórdís.
Þeim hafði aldrei dottið í hug að
sameina krafta sína og halda lista-
sýningu saman. Þær ræddu það
aldrei sérstaklega sín á milli en kær-
komið var það þegar boðið kom.
Þær hafa allar tekið þátt í hinum
ýmsu sýningum, jafnt einka- sem
samsýningum. Margrét og María
hafa tekið þátt í samsýningum ásamt
öðrum listamönnum. Margrét og
Þórdís hafa einnig tekið þátt í sömu
samsýningunum ásamt öðrum lista-
mönnum en aldrei allar þrjár fyrr en
nú.
Sýningin hefur vakið mikla at-
hygli gesta og þykir skemmtilegt að
fá heimafólk til að fylla sýningar-
salinn í Hofi.
„Það hefur verið grín í fjölskyld-
unni að næst verðum við fleiri því
það er nóg af listafólki í ættinni.
Jafnvel með fleiri systkinum og
kannski foreldrum líka. Spurning
hvort það verður seinna,“ segir Þór-
dís hlæjandi.
Systkinin eru sex talsins, fjórar
dömur og tveir herrar. Þórdís segir
hin systkinin mjög handlagin og geta
gert ýmislegt í höndunum en eru þó
ekki að fást við listina í líkingu við
hinar þrjár.
Hver veit nema stórfjölskyldu-
sýning verði haldin í Hofi að
nokkrum árum liðnum.
Bródering Litskrúðug blóm Þórdís-
ar teygja anga sína víða.
Tónleikaröðin Sumartónleikar við
Mývatn fagnaði 25. starfsári sínu á
síðasta ári og hefur það 26. í Reykja-
hlíðarkirkju í kvöld. Tvennir tón-
leikar eru á dagskrá að þessu sinni,
þeir fyrri með hljómsveitinni
Brother Grass og á morgun leikur
síðan Trio Bruun.
Brother Grass leikur blágresis-
kennda tónlist eins og heiti hennar
ber með sér. Sveitina skipa Hildur
Halldórsdóttir, Sandra Dögg Þor-
steinsdóttir, Soffía Björg Óðins-
dóttir, Örn Eldjárn og Ösp Eldjárn.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og
aðgangseyrir er 1.500 kr.
Trio Bruun heldur síðan tónleika
annað kvöld kl. 21.00 og er aðgangur
ókeypis að þeim tónleikum. Tríóið
skipa Hetne Regitze Bruun, sópran-
söngkona, Steffen Bruun, bassa-
söngvari, og Philip Schmidt-
Madsen, orgel- og píanóleikari. Á
efnisskrá tónleikanna eru þekkt
kirkjuleg söngverk, m.a. eftir Cesar
Franck, Mendelssohn og Haydn,
dönsk sönglög eftir Carl Nielsen og
orgeltónlist eftir Finn Viderø.
Tríó Trio Bruun kemur fram á tónleikum í Reykjahlíðarkirkju á morgun;
Hetne Regitze Bruun, Philip Schmidt-Madsen og Steffen Bruun.
Tvennir tónleikar í
Reykjahlíðarkirkju
Í umsögn um ljóðasafn sænska
skáldsins Kjells Espmark var rangt
farið með heiti bókarinna. Rétt er
að hún heitir Skrifað í stein. Beðist
er velvirðingar á þessu.
Skrifað í stein
AF SPILUM
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Ef fólk vill flýja raunveruleik-ann um stundarsakir og íeina kvöldstund setja sig í
hlutverk leiðtoga Evrópu við upphaf
tuttugustu aldarinnar á hátindi stór-
veldatíma Evrópu er tilvalið að spila
eina kvöldstund borðspilið Diplo-
macy. Spilið reynir í senn á her-
kænsku og ekki síður á samskipta-
hæfileika spilara til að mynda með
sér bandalög, gera samninga, rifta
þeim og gera nýja. Markmiðið er að
sigra heiminn með samningum, fag-
urgala, lygum og prettum en ekki
með algjörum hernaðaryfirburðum
líkt og oft tíðkast í herkænsku-
spilum.
Fyrir stuttu hittumst við vina-
hópurinn á heimili eins okkar og
nýttum kvöldið í að spila Diplomacy.
Spilið hófst vorið 1901, þegar
tuttugasta öldin var nýhafin og gríð-
arleg spenna ríkti um gjörvalla Evr-
ópu. Nýir leiðtogar, sem allir höfðu
sína stóveldisdrauma, stýrðu öllum
helstu stórveldum álfunnar. Heims-
styrjöld var yfirvofandi og í reyk-
fylltum bakherbergjum hittust þjóð-
arleiðtogarnir og ræddu næstu
skref, framtíðarskiptingu álfunnar.
Að loknu löngu viðræðutímabili
fæddist nýtt mið-evrópskt hern-
aðarbandalag inn í tilveruna. Hern-
aðarbandalagið, sem var undir for-
ystu Frakka, var gríðarstórt og nær
almáttugt, en auk Frakklands mátti
þar finna Bretland, Þýskaland og
Austurríki-Ungverjaland. Skipan
hins nýja hernaðarbandalags gaf til
kynna að hin gömlu ríki Mið-Evrópu
ætluðu sér landvinninga í austur-
hluta álfunnar og því leið ekki á
löngu þangað til að stórveldin Rúss-
land og Ottómanveldið (Tyrkland)
gengu í varnarbandalag til þess að
verjast hinni yfirvofandi innrás.
Margir munu eflaust spyrjasig hvernig þetta var mögu-
legt? Hvernig ríki Mið-Evrópu, sem
sumhver höfðu margsinnis farið í
stríð við hvert annað, gátu samein-
ast í hernaðarbrölti sínu með þess-
um hætti. Í stuttu máli er svarið fólg-
Svik, lygar og prettir
Morgunblaðið/Kristinn
Diplomacy Spilaborðið er fallega hannað og minnir einna helst á gamalt
sjóræningjakort. Með réttu samningunum er útlit þess fljótt að breytast.
ið í kraftmiklum og árangursríkum
milliríkjasamskipum. Á löngum
samningafundi, í reykfylltu bakher-
bergi, hafði Frakklandsforseta tek-
ist að telja reynslulítinn og friðar-
sinnaðan Þýskalandskanslara á að
draga máttuga heri sína frá landa-
mærum ríkjanna tveggja og aftur til
höfuborgarinnar, Berlín. Að því
loknu tókst franska leiðtoganum að
sannfæra Bretlandskonung um að
breska heimsveldinu stafaði gríðar-
leg hætta af hinu fjarlæga Rússa-
veldi.
Loks sömdu fyrrnefndir þjóð-
höfðingjar við austurrísk-ungverska
keisarann, en sá var rammkaþólskur
og leynt og ljóst löngu byrjaður að
skipuleggja nýja krossferð gegn hin-
um meintu „heiðingjum“ í austri.
Þegar farið var að hausta fóru
hlutirnir á skrið og Evrópa færðist
nær og nær allsherjarstyrjöld. Mikil
ókyrrð færðist yfir álfuna þegar
Þjóðverjar tóku einhliða ákvörðun
um að rifta friðarsamningi sínum við
Rússlandskeisara áður en blekið
náði að þorna. Stuttu eftir þetta
fylgdi keisari Austurríkis-Ungverja-
lands fordæmi kollega síns í Þýska-
landi og rifti friðarsamningi sínum
við Ottómanveldið ásamt því að ráð-
ast af fullum krafti Grikkland og
flest öll ríki Balkanskaga.
Það var á þessum tímapunkti
sem Rússlandskeisari og tyrkneski
soldáninn sneru bökum saman og
vörn í sókn með því að ráðast af full-
um krafti á herdeildir Austurríkis-
Ungverjalands á Balkanskaga. Þess-
ari varnarsókn var svarað með inn-
rás breska hersins í Noreg og
linnulausum árásum á Eystrasalts-
ríkin af hálfu þýska sjóhersins. Eftir
langt ófriðartímabil, sem einkennd-
ist af feikistórum herjum föstum í
skotgröfum, gerðist hið óhugsandi.
Bretlandskonungur tók sig til og
réðst skyndilega með heri sína inn
Slésvík og Holsetaland, sem olli því
að kanslari Þýskalands samdi í ein-
um hvelli um frið við og hernaðar-
samstarf við Rússland og Ottó-
manveldið og sleit um leið öllum
samskiptum við sína fyrri banda-
menn.
Þar með var hið almáttuga mið-
evrópska hernaðarbandalag, sem
áður hafði framtíð álfunnar í lófa
sér, að þrotum komið.
Þó deilumálum stórveldannahafi verið ólokið í lok spils þá er
það í anda þess sem ávallt hefur ein-
kennt pólítískt landslag Evrópu,
ekki síst í dag í kjölfar efnahags-
kreppu Evrópusambandsins.
» Spilið gengur út áþað að sigra heiminn
með samningum, fagur-
gala, lygum og prettum
en ekki með algjörum
hernaðaryfirburðum.
Aðalsteinn Vest-
mann, myndlist-
armaður og
kennari, sýnir nú
myndir í Safn-
aðarheimili Ak-
ureyrarkirkju.
Aðalsteinn
stundaði nám við
Myndlistar- og
handíðaskóla Ís-
lands á sínum
tíma og var myndmenntakennari
áratugum saman í Barnaskóla Ak-
ureyrar. Meðfram kennslunni
fékkst hann við myndlist og hefur
haldið fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum sunnan og
norðan heiða. Aðalsteinn er hættur
kennslu fyrir nokkrum árum en
heldur áfram að stunda myndlist,
enda segist hann ekki geta hætt
því, „maður verður að dunda sér
við eitthvað“.
Á sýningunni eru myndir frá síð-
ustu þremur til fjórum árum, vatns-
lita- og akrýlverk.
Aðalsteinn sýnir í
Safnaðarheimilinu
Aðalsteinn
Vestmann
Nú stendur í
Hörpu tónleika-
röð þar sem ís-
lensk sönglög
eru sungin og
kynnt. Um
helgina syngja á
tónleikunum
söngvararnir
Lilja Guðmunds-
dóttir sópran og
Fjölnir Ólafsson
baritón, en þau voru í aðal-
hlutverkum í óperunni Don Gio-
vanni sem flutt var í Eldborgarsal
Hörpu fyrir skömmu. Þau syngja í
dag, á morgun, sunnudag, og
mánudag. Allir tónleikarnir hefjast
kl. 17. Meðleikari er Ingileif
Bryndís Þórsdóttir píanóleikari.
Íslenskar
söngperlur
Lilja
Guðmundsdóttir